Síða 6 af 8
Re: [Ræktin] Hvaða fæðubótarefni notið þið?
Sent: Mið 18. Maí 2011 13:07
af CendenZ
Gerbill skrifaði:
Sé ekki alveg pointið samt í að búa til þessa uppskrift, kreatínið virkar alveg jafn vel ef ég hendi því bara í PW shake-inn minn.
Því að Creatín virkar á þannig hátt að það hraðar myndum ATP, ATP sem unnið er m.a. úr kolvetnum/sykrum.. (og lípíðum!)
Það er ástæðan fyrir því að creatín er nær undantekningarlaust í öllum PW drykkjum blandað með kolvetnum/sykrum
Þess vegna pumpar maður alveg svakalega vel ef slíku og nær fyrr að hlaða vöðvana eftir hvert sett.
Það er pointið með þessari uppskrift, creatín + leppinn er ekkert nema creatín + fjölsykrur... virkar mjög vel og er mjög basic
Ef einhverjir tappar á tölvuspjalli ætla halda öðru fram geta þeir bara alveg eins hringt í þjálfara,lækna og sjúkraþjálfara landsliða um allan heim og útskýrt sko að það sé bara miklu betra að henda þessu í PW shake-inn í staðinn að blanda þessu við
sykurdrullu, kannski bara skellt smá spínati, acai berjum og möndlum því þar fær maður sko fullt af vítamínum og blablablabla...
Þetta virkaði, þetta virkar og mun virka í framtíðinni, það er ekkert sem mun keyra hvatberana í gang eins vel og Creatín og fjölsykrur... a.m.k. ekkert löglegt.
Heimildir:
menntun, 2, 14 og 23 kafli í Cellunni, 11 ára þjálfun og þekki mjög margt afreksfólk í flestum íþróttagreinum
Re: [Ræktin] Hvaða fæðubótarefni notið þið?
Sent: Mið 18. Maí 2011 13:23
af Gerbill
CendenZ skrifaði:Gerbill skrifaði:

http://www.youtube.com/watch?feature=pl ... LFZcR-jNgU" onclick="window.open(this.href);return false; (Tjékkaðu videoið, hann útskýrir þetta fyrir þér)
Áhrif kreatíns eru langtíma, þú tekur ekki inn kreatín og finnur pumpið af því á æfingunni hálftíma seinna, þú hleður upp kreatíninu yfir langan tíma (daga, vikur jafnvel).
Þú fyrirgefur félagi en ég held nú að flestir alvöru þjálfarar mundu hlægja ef ég færi að tala um hversu frábært Celltech væri og ef þú villt vera heilaþveginn af fæðubótarframleiðendum, be my guest.
Kreatín virkar já ég veit það vel, en þú þarft að hlaða því upp.
Re: [Ræktin] Hvaða fæðubótarefni notið þið?
Sent: Mið 18. Maí 2011 13:46
af CendenZ
Þú hefur eitthvað verið að misskilja, ég veit ekki betur en ég var að koma með uppskrift að ódýrri creatínblöndu, var ekki að verja Celltech... enda er það ofboðslega dýrt miðað við innihald.
Ég myndi aldrei kaupa mér celltech aftur (kominn 7 ár frá því ég keypti það síðast), ég blanda mitt dót allt sjálfur og félaga.. allt frá DMAA/NO blöndur til próteins..
Ég veit ekki hvar þú náðir að lesa það að ég væri að verja eina kolvetnablöndu framyfir aðra, ég var meira segja að koma með ágætisleið til að spara með að sneiða framhjá þeim öllum....
Bara svo þú áttir þig á því, þá eru þetta trúarbrögð.. þú finnur fólk sitthvoru meginn við Creatínið..annað hvort bendir það á að creatín virki bara alls ekki og orkan sem þú ert að fá á æfingu sé 100% frá kolvetnunum og hinsvegar finnuru fólk sem bendir á rannsóknir sem sýnir að creatín hafi þau áhrif að hvata hvatbera við framleiðslu á ATP.
Það er svo aftur á móti mjög erfitt að rannsaka það í þaula vegna eðli máls og efna.
Re: [Ræktin] Hvaða fæðubótarefni notið þið?
Sent: Mið 18. Maí 2011 19:53
af AntiTrust
Vill taka það fram að ég var ekki að taka fyrir kosti þess að taka inn fjölsykrur með kreatíni, var eingöngu að gagnrýna CellTechið fyrir hvað þetta kostar, fyrir hvað það er.
Talandi um, veit e-r hér hvar maður getur nálgast maltodextin og dextrósa?
Re: [Ræktin] Hvaða fæðubótarefni notið þið?
Sent: Mið 18. Maí 2011 20:13
af Gerbill
CendenZ skrifaði:Þú hefur eitthvað verið að misskilja, ég veit ekki betur en ég var að koma með uppskrift að ódýrri creatínblöndu, var ekki að verja Celltech... enda er það ofboðslega dýrt miðað við innihald.
Ég myndi aldrei kaupa mér celltech aftur (kominn 7 ár frá því ég keypti það síðast), ég blanda mitt dót allt sjálfur og félaga.. allt frá DMAA/NO blöndur til próteins..
Ég veit ekki hvar þú náðir að lesa það að ég væri að verja eina kolvetnablöndu framyfir aðra, ég var meira segja að koma með ágætisleið til að spara með að sneiða framhjá þeim öllum....
Bara svo þú áttir þig á því, þá eru þetta trúarbrögð.. þú finnur fólk sitthvoru meginn við Creatínið..annað hvort bendir það á að creatín virki bara alls ekki og orkan sem þú ert að fá á æfingu sé 100% frá kolvetnunum og hinsvegar finnuru fólk sem bendir á rannsóknir sem sýnir að creatín hafi þau áhrif að hvata hvatbera við framleiðslu á ATP.
Það er svo aftur á móti mjög erfitt að rannsaka það í þaula vegna eðli máls og efna.
Já afsakið ef ég hef misskilið það.
En ég held að þú sért líka að misskilja hvernig kreatín virkar, sama þótt þú takir kreatínið inn með kolvetnablöndu þá er það ekki að fara að hafa áhrif á pump á æfingunni, þ.e. ekki útaf því að tekur það inn fyrir æfingu.
Það þarf að hlaða kreatínið upp, auka kreatín magnið í vöðvunum og tekur það marga daga að hlaðast upp.
Þetta eru engin trúarbrögð, þetta eru vísindi, það hafa verið gerðar mörg hundruð, ef ekki þúsund rannsóknir á kreatíni.
Re: [Ræktin] Hvaða fæðubótarefni notið þið?
Sent: Mið 18. Maí 2011 20:18
af Gerbill
AntiTrust skrifaði:Vill taka það fram að ég var ekki að taka fyrir kosti þess að taka inn fjölsykrur með kreatíni, var eingöngu að gagnrýna CellTechið fyrir hvað þetta kostar, fyrir hvað það er.
Talandi um, veit e-r hér hvar maður getur nálgast maltodextin og dextrósa?
Held að þú getur fengið Ultra fuel (
http://bit.ly/iKSwtu" onclick="window.open(this.href);return false;) hjá Medico.
Re: [Ræktin] Hvaða fæðubótarefni notið þið?
Sent: Fim 19. Maí 2011 01:29
af CendenZ
Gerbill skrifaði:
Þetta eru engin trúarbrögð, þetta eru vísindi, það hafa verið gerðar mörg hundruð, ef ekki þúsund rannsóknir á kreatíni.
Nær allar sponsaðar gegnum lobbýista af fyrirtækjum sem hagnast á því, þú getur leitað á pubmed að credited rannsóknum. Þær gefa þér ekki sömu svör og þessi sem fyrirtækin segja.
AntiTrust skrifaði:Vill taka það fram að ég var ekki að taka fyrir kosti þess að taka inn fjölsykrur með kreatíni, var eingöngu að gagnrýna CellTechið fyrir hvað þetta kostar, fyrir hvað það er.
Talandi um, veit e-r hér hvar maður getur nálgast maltodextin og dextrósa?
Í sekkjum ? Það er agalegt vesen að byrja á að blanda sjálfur og borgar sig ekki nema þú sért með 7-10 stráka og stelpur sem eru game í að vera með
Re: [Ræktin] Hvaða fæðubótarefni notið þið?
Sent: Fim 15. Nóv 2012 11:26
af chaplin
Við félagarnir vorum að byrja í einkaþjálfun og vorum að pæla hvaða fæðubótaefni við ættum að taka og hvar við ættum að versla þau? Markmiðið er að þyngjast þar sem við erum báðir tannstönglar.
Re: [Ræktin] Hvaða fæðubótarefni notið þið?
Sent: Fim 15. Nóv 2012 11:32
af vesley
chaplin skrifaði:Við félagarnir vorum að byrja í einkaþjálfun og vorum að pæla hvaða fæðubótaefni við ættum að taka og hvar við ættum að versla þau? Markmiðið er að þyngjast þar sem við erum báðir tannstönglar.
þarft ekkert endilega fæðubotarefni, um leið og þú lagar matarræðið muntu þyngjast. prótein myndi auðvelda þér og eg mæli ekki með eitthverju gainer drulli.
Re: [Ræktin] Hvaða fæðubótarefni notið þið?
Sent: Fim 15. Nóv 2012 11:41
af AntiTrust
chaplin skrifaði:Við félagarnir vorum að byrja í einkaþjálfun og vorum að pæla hvaða fæðubótaefni við ættum að taka og hvar við ættum að versla þau? Markmiðið er að þyngjast þar sem við erum báðir tannstönglar.
Byrja án þeirra, koma matarræðinu í 110% stand fyrst. Þeir sem byrja strax á fæðubótarefnum eru oftast þeir sem kunna ekki og skilja ekki taktíkina/fræðina á bakvið það að borða rétt miðað við markmið. Fæðubótarefnin eru bara (eiga að vera) dropinn í hafið, matarræðið er 80% af þessu öllu.
Þegar þið eruð búnir að finna út hvernig líkaminn bregst við x miklu magni af næringarefnum (kolv, prótín, fita), og búið að stíla matarræðið upp eftir því, þá myndi ég byrja á því að skoða kreatín og prótín, þetta basic. Ef það gengur illa að þyngjast með 100% réttu matarræði má alltaf bæta við gainer (e. þyngingarblöndu). Ég myndi þó alls ekki hoppa á hvað sem er þar því sumir gainerar eru bara langt overboard (Serious Mass frá On t.d.) og með mikið meira af macro's/kcal en æskilegt er fyrir marga einstaklinga. Get þó ekki mælt með neinum sérstökum gainer þar sem þetta er eitt af þeim fáu fæðubótarefnum sem ég hef látið vera í gegnum tíðina - Ef ég hef viljað þyngja mig, þá hef ég gert það í gegnum ánægjuna af auknum mat :p
Svo eru til ýmis pre-workout efni sem menn eru mishrifnir af, ég er persónulega hlynntur þeim séu þau ekki ofnotuð, gefa manni oft gott auka boozt og verulegt fókus þegar maður er annarshugar eða þreyttur eftir vinnudaginn.
Annars..
1. Matarræði
2. Matarræði
3. Matarræði
4. Æfingar
5. Svefn
6. Hugarfar
7. Fæðubótarefni
Re: [Ræktin] Hvaða fæðubótarefni notið þið?
Sent: Fim 15. Nóv 2012 11:45
af sakaxxx
það er ekki mikið sem þú þarft að gera strax og þú byrjar að lyfta þá áttu eftir að borða meira og þyngjast það sem ég borða til að þyngjast er smoothie með ca 200 grömm af haframjöl blendað í duft
ég bæti mjólk banana frosin jarðaber og stundum nokkur hrá egg úti það ég fæ mér alltaf þennan shake eftir máltíð.
ég tek einnig creatine þegar ég fer að lyfta
Re: [Ræktin] Hvaða fæðubótarefni notið þið?
Sent: Fim 15. Nóv 2012 11:51
af chaplin
Það var upphaflega pælingin að sleppa öllum fæðurbótaefnum enda er þjálfarinn okkar alls ekki hrifinn af þeim, en þá skulum við skoða mataræðið. Hvert fer ég til að láta gera alvöru mataræðis plan? Akkúrat núna er það í algjöru rugli.
Re: [Ræktin] Hvaða fæðubótarefni notið þið?
Sent: Fim 15. Nóv 2012 11:52
af AntiTrust
Græjar einkaþjálfarinn það ekki fyrir ykkur?
Re: [Ræktin] Hvaða fæðubótarefni notið þið?
Sent: Fim 15. Nóv 2012 11:53
af vesley
chaplin skrifaði:Það var upphaflega pælingin að sleppa öllum fæðurbótaefnum enda er þjálfarinn okkar alls ekki hrifinn af þeim, en þá skulum við skoða mataræðið. Hvert fer ég til að láta gera alvöru mataræðis plan? Akkúrat núna er það í algjöru rugli.
http://www.fitbook.com" onclick="window.open(this.href);return false; mjög flott matardagbok og ekkert mál að smiða sina eigin dagbók.
Re: [Ræktin] Hvaða fæðubótarefni notið þið?
Sent: Fim 15. Nóv 2012 13:09
af chaplin
AntiTrust skrifaði:Græjar einkaþjálfarinn það ekki fyrir ykkur?
Jú hann gerir það, langaði bara að sjá hvað þið væruð að éta.
vesley skrifaði:
http://www.fitbook.com" onclick="window.open(this.href);return false; mjög flott matardagbok og ekkert mál að smiða sina eigin dagbók.
Mjög góð matardagbók, finnst samt fáranlegt að ég þurfi að gefa upp korta upplýsingar við skráningu, þótt það sé frítt - svo gleymi ég alveg 110% að skrá mig úr þessu þegar prufan er búin.
Re: [Ræktin] Hvaða fæðubótarefni notið þið?
Sent: Fim 15. Nóv 2012 13:26
af vesley
chaplin skrifaði:AntiTrust skrifaði:Græjar einkaþjálfarinn það ekki fyrir ykkur?
Jú hann gerir það, langaði bara að sjá hvað þið væruð að éta.
vesley skrifaði:
http://www.fitbook.com" onclick="window.open(this.href);return false; mjög flott matardagbok og ekkert mál að smiða sina eigin dagbók.
Mjög góð matardagbók, finnst samt fáranlegt að ég þurfi að gefa upp korta upplýsingar við skráningu, þótt það sé frítt - svo gleymi ég alveg 110% að skrá mig úr þessu þegar prufan er búin.
sammála en þetta er ekki nema 600 kall þannig mer var sama.
Re: [Ræktin] Hvaða fæðubótarefni notið þið?
Sent: Þri 27. Nóv 2012 14:43
af Leviathan
Hvar er ódýrast að versla micronized glútamín og kreatín mono, þá helst í sem stærstum pakkningum? Og er hvergi hægt að fá pre-workout lengur sem inniheldur DMAA, eins og gamla Jack3d eða C4?
Hvernig er svo með að panta þetta bara sjálfur að utan? Má það yfir höfuð?
Re: [Ræktin] Hvaða fæðubótarefni notið þið?
Sent: Þri 27. Nóv 2012 17:41
af littli-Jake
Leviathan skrifaði:Hvar er ódýrast að versla micronized glútamín og kreatín mono, þá helst í sem stærstum pakkningum? Og er hvergi hægt að fá pre-workout lengur sem inniheldur DMAA, eins og gamla Jack3d eða C4?
Hvernig er svo með að panta þetta bara sjálfur að utan? Má það yfir höfuð?
Skilst að það sé bölvað ves að panta efni að utan. Hef heirt að tollurinn sé ekki hrifinn af því.
Re: [Ræktin] Hvaða fæðubótarefni notið þið?
Sent: Þri 27. Nóv 2012 17:43
af AntiTrust
Öll efni sem innihalda DMAA eru gerð upptæk í tollinum. Vissulega margir sem panta sér þetta og veðja á heppnina.
Re: [Ræktin] Hvaða fæðubótarefni notið þið?
Sent: Þri 27. Nóv 2012 19:20
af birgirdavid
Jack3D er komið aftur í sölu hjá protin.is en ekkert dymethylamylamine í því lengur.
http://protin.is/products/10111-jack3d-micro" onclick="window.open(this.href);return false;
Re: [Ræktin] Hvaða fæðubótarefni notið þið?
Sent: Þri 27. Nóv 2012 19:48
af Gúrú
Eftir að hafa litið yfir innihaldslýsinguna sé ég lítinn mun á þessu og Herbalife. Er ég í ruglinu eða er þetta vonlaus vara án kreatíns og DMAA?
Re: [Ræktin] Hvaða fæðubótarefni notið þið?
Sent: Mið 28. Nóv 2012 00:55
af SolidFeather
Hátt í 300mg af koffeini ætti nú að koma manni í stuð.
Re: [Ræktin] Hvaða fæðubótarefni notið þið?
Sent: Mið 28. Nóv 2012 08:59
af Jón Ragnar
Leviathan skrifaði:Hvar er ódýrast að versla micronized glútamín og kreatín mono, þá helst í sem stærstum pakkningum? Og er hvergi hægt að fá pre-workout lengur sem inniheldur DMAA, eins og gamla Jack3d eða C4?
Hvernig er svo með að panta þetta bara sjálfur að utan? Má það yfir höfuð?
http://www.baetiefnabullan.is/xodus_pro ... bCatId=640" onclick="window.open(this.href);return false;
http://www.baetiefnabullan.is/xodus_pro ... bCatId=640" onclick="window.open(this.href);return false;
http://protin.is/products/6011-musclepharm-assault" onclick="window.open(this.href);return false;
Allt saman Thumbs up
Re: [Ræktin] Hvaða fæðubótarefni notið þið?
Sent: Mið 28. Nóv 2012 09:56
af starionturbo
Sælir, ég skoðaði þetta vel og vandlega þegar ég ákvað að fara í fæðurbótaefnin.
Ég byrjaði í ræktinni, tók einn mánuð í lyftingum án þess að breyta mataræði né nota fæðubótaefni.
Eftir fyrsta mánuðinn tók ég mataræðið í gegn og borðaði hvorki hveiti né sykur. Ég léttist aftur, en að sama skapi leið mikið betur.
Þriðja mánuðinn ákvað ég að fara á gainer og keipti pre workout ofl.
Ég bar saman hlutlausar skoðanir á bestu tiltæku vörum í sínum flokkum.
Vefir sem ég notaði hvað mest voru; supplementreviews.com, muscleandstrength.com, bodybuilding.com
- Pro Complex Gainer frá Optimum Nutrition (gainer)
- Super Charge Extreme N.O. frá Labrada (pre workout)
Mér persónulega finnst þetta besta pre workout sem ég hef prófað, betra en bæði saw og hell no.
BTW, ég keypti OxyElite frá UPS Labs, fyrir konuna, sem inniheldur DMAA 1,3 - tollurinn var ekkert með læti.
Re: [Ræktin] Hvaða fæðubótarefni notið þið?
Sent: Mið 28. Nóv 2012 11:27
af Leviathan
Ég hef engan áhuga á Jack3d micro þar sem það er ekkert DMAA, og munurinn á DMAA og koffeini er eins og dagur og nótt finnst mér. Ég hef aldrei upplifað þetta krass á Jack3d sem fólk talar um, tók samt alltaf 2-3 skeiðar. Spurning um að prufa að panta C4 eða e-ð að utan. Annars var ég líka að spá bara í þessum löglegu efnum, má ég panta kreatín og glútamín að utan? Annars tékka ég á Bætiefnabúllunni, takk.
starionturbo: Hvar fæst þetta frá Labrada?