Síða 50 af 83

Re: Hringdu.is

Sent: Lau 29. Nóv 2014 15:12
af Climbatiz
ég fer "samkvæmt gagnamagns talningu hringdu" nánast alltaf langt yfir 250gb limitið mitt, en samt er ég aldrei cappaður, þó held ég að það er ekki alveg að marka þessar tölur hjá þeim, því svo sem ég veit þá er ég ekki búinn að downloada það miklu yfir mánuðinn, eru aðrir sem kannast við þetta?

Re: Hringdu.is

Sent: Þri 09. Des 2014 21:38
af linenoise
Jæja. Heimasíma og internetlaus. Er með ljósleiðara og sjónvarpið frá Vodafona virkar ennþá... Reyndi að hringja í símann hjá Hringdu með gemsanum mínum og það hringdi ekki hjá þeim. Sambandið rofnar áður en hringitónninn byrjar.

Björtu hliðarnar: 3G og gemsinn virka alla vega.

HRESST!

Re: Hringdu.is

Sent: Þri 09. Des 2014 21:48
af linenoise
Jæja. Þetta endist "bara" í ca. hálftíma.

Re: Hringdu.is

Sent: Þri 09. Des 2014 22:19
af Oak
Held að þeir séu ekki með opinn símann hjá sér núna.

Re: Hringdu.is

Sent: Þri 09. Des 2014 22:41
af linenoise
Heimasíða Hringdu skrifaði:Þjónustuver
Þjónustuver Hringdu er opið alla virka daga frá 09-22. Laugardaga 10-16. Sunnudaga 12-16.
Ég hringdi klukkan ca. hálf tíu.

Re: Hringdu.is

Sent: Þri 09. Des 2014 22:51
af Oak
Sorry kíkti ekki á opnunartímann. Greinilega búnir að breyta þessu hjá sér :)

Re: Hringdu.is

Sent: Mið 10. Des 2014 08:03
af jonsig
Er DNS´inn hjá þeim í rugli ?

Re: Hringdu.is

Sent: Mið 10. Des 2014 09:56
af linenoise
Eitthvað álíka. Það var allt í fokki líka í morgun til 9:30. Skemmtilegt þegar konan er að reyna að komast að því hvort veðrið sé of tryllt fyrir skólahald.

Ef þetta er bara DNS er ekki hægt að laga þetta með útlenskum DNS server í router?

Re: Hringdu.is

Sent: Mið 10. Des 2014 14:21
af GullMoli
Ættuð alveg að geta notað google DNS, er sjálfur að nota hann á Hringdu tengingunni minni.

8.8.8.8
8.8.4.4

Re: Hringdu.is

Sent: Mið 10. Des 2014 23:12
af Dúlli
Shit netið er í svakalegu rugli þessa seinustu daga. Netið er ónothæft eftir kl 22:00

Re: Hringdu.is

Sent: Mið 10. Des 2014 23:27
af GullMoli
Dúlli skrifaði:Shit netið er í svakalegu rugli þessa seinustu daga. Netið er ónothæft eftir kl 22:00
Virkar fínt hjá mér á ljósleiðara.

Re: Hringdu.is

Sent: Mið 10. Des 2014 23:30
af Dúlli
GullMoli skrifaði:
Dúlli skrifaði:Shit netið er í svakalegu rugli þessa seinustu daga. Netið er ónothæft eftir kl 22:00
Virkar fínt hjá mér á ljósleiðara.
Virðist vera komið í lag núna, er líka með ljósleiðaran.

Re: Hringdu.is

Sent: Fim 11. Des 2014 13:32
af Klemmi
Hvernig nenniði þessu?

Ég skil vel að vilja eiga viðskipti við smáu aðilana, en ef þeir geta ekki boðið upp á sómasamlega þjónustu að þá finnst mér óeðlilegt að halda slíku áfram.

Re: Hringdu.is

Sent: Fim 11. Des 2014 14:32
af worghal
Klemmi skrifaði:Hvernig nenniði þessu?

Ég skil vel að vilja eiga viðskipti við smáu aðilana, en ef þeir geta ekki boðið upp á sómasamlega þjónustu að þá finnst mér óeðlilegt að halda slíku áfram.
Hver er að bjóða góða og stabíla þjónustu þessa dagana?

Vodafone eru í tómu tjóni núna undanfarið, óhóflega mikið lagg þar á bæ og alltaf á sömu tímunum.

síminn er í ruglinu með sína gagnamagns pakka og ekki séns að ég fari í viðskipti við þá. Sérstaklega vegna skorts á ljósleiðara.

Hringdu er nú hálf ónýtt og alltaf að missa erlendu tenginguna sína. Þetta vandamál er núna búið að vera til staðar í meira en ár og fjöldinn allur af kvörtunum og ekkert lagast.

Hvar get ég fengið ljósleiðara með ásættanlegu gagnamagni og stabílli tengingu?

Re: Hringdu.is

Sent: Fim 11. Des 2014 14:54
af Klemmi
worghal skrifaði:Hver er að bjóða góða og stabíla þjónustu þessa dagana?
Þekki ekki ljósleiðarann þar sem það er ekki í boði þar sem ég bý, vorum með ADSL hjá Vodafone og vorum að skipta yfir í ljósnet, ekkert vesen verið hér.

Gæti þó verið önnur saga með ljósleiðarann, líkt og þú nefnir.

Re: Hringdu.is

Sent: Fim 11. Des 2014 22:30
af GuðjónR
Virkar útlandasambandið hjá ykkur núna?

Re: Hringdu.is

Sent: Fim 11. Des 2014 22:32
af Legolas
Nei :mad :mad dó fyrir u.þ.b 5min síðan

Re: Hringdu.is

Sent: Fim 11. Des 2014 22:34
af sopur
Legolas skrifaði:Nei :mad :mad dó fyrir u.þ.b 5min síðan
same

Re: Hringdu.is

Sent: Fim 11. Des 2014 22:37
af Allinn
Skrítið, virkar fínt hjá mér :/

Re: Hringdu.is

Sent: Fim 11. Des 2014 22:54
af Legolas
já er ok núna, var niðri mun lengur í gær

Re: Hringdu.is

Sent: Fim 11. Des 2014 23:45
af beatmaster
Netið hjá mér innlent og erlent er búið að vera ömurlegt síðustu 2 kvöld :(

Re: Hringdu.is

Sent: Fim 11. Des 2014 23:51
af GunniH
Hæhæ,

Routerinn sem sér um utanlandssambandið okkar hikstaði aðeins og varð mikill hægagangur á erlenda netinu frá 22:19 til 22:35. Biðjumst afsökunar á því!

Til að upplýsa ykkur aðeins um hvað var að gerast síðustu daga að þá voru við undir hardcore árás á báðum nafnaþjónunum okkar, þeir sem hafa lent í slíkri áras vita að það getur verið erfitt að ná tökum á svoleiðis, enda hafa DDoS árásir tekið niður mörg risa-risastór fyrirtæki á netinu. Við teljum okkur vera búna að redda því núna en myndi ég mæla með því að þið notið 8.8.8.8/8.8.4.4, Netflix DNS'a eða álíka næstu daga "just in case"!

Klemmi: Ég vill meina að netið okkar sé nú bara búið að vera ansi gott síðustu mánuði/síðasta árið og að þú sért kannski aðeins of mikið að rýna í okkar sögu frekar en hvernig við erum í dag. Vill endilega fá að heyra frá okkar kúnnum hér inni ef að þið eruð ósammála því.

Erlenda gáttin okkar hefur verið stækkuð umtalsvert og erum við með samninga til að stækka hana mjög fljótt ef til þess kemur, við síðustu stækkun náðum við einnig að laga vandamál sem var búið að hrjá okkur lengi með öfuga rútun sem olli háu latencyi. Það var þegar við tókum út USA gáttina og færðum allt yfir til London, til að svara aðeins rapport þá var það svo sannarlega ekki sparnaður því að díllinn sem við vorum með hjá Eastlink var fáránlega góður. Langar að taka dæmi beint úr þræði hér á vaktinni sem heitir "Frammistaða ISP á Íslandi": http://spjall.vaktin.is/viewtopic.php?p=579681#p579681" onclick="window.open(this.href);return false; - en þar má sjá að hraðinn okkar út á við er klárlega í lagi en fólk er að fá fullan hraða t.d. alla leið til Parísar. Við erum einnig mikið búnir að taka í gegn hjá okkur hardware-lega séð og höfum bætt okkur talsvert þar, sem skilar sér auðvitað í stöðugra og betra neti fyrir kúnnan.

Bilanir á tæknilegum hlutum, eins og gerðist með router í kvöld, eru óhjákvæmilegir en sem betur fer var niðritíminn stuttur. Árásir hafa tekið niður Sony, Blizzard, CCP, Riot Games o.s.frv. Ég ætla nú ekki að ganga svo langt að segja að þetta sé fullkomið setup hjá okkur og við getum augljóslega mikið bætt okkur, og erum að vinna í því. Þetta er partur af þessum bransa en response tíminn okkar er orðinn mun betri og vitum við betur hvernig á að tækla vandamálin þegar þau koma upp. Ef þið skoðið "Netkerfi - internetið" hér á vaktinni eða Facebook síður annarra ISPa að þá sjáiði að Hringdu er ekki eina fyrirtækið sem lendir í svona hlutum.

All-in-all að þá skammast ég mín að minnsta kosti ekki fyrir netið okkar og mæli hiklaust með okkur, sem er eitthvað sem ég gerði ekkert rosalega mikið fyrir ári síðan :) Vill samt endurítreka að ykkur er velkomið að vera ósammála mér og svara þessum pósti eða senda mér einkaskilaboð, viljinn til þess að laga hlutina er allavegana vel til staðar þannig um að gera að vera vocal. Ég mun gera mitt besta til að svara spurningum. Annars eru fáránlega spennandi hlutir að fara gerast og erum við mjög stoltir af þeirri stefnu sem við tökum, sem dæmi að fara í ótakmarkað í stað þess að telja allt og það að mótmæla ritskoðuninni sem STEF fékk í gegn!

Kveðja,
Gunni!

Re: Hringdu.is

Sent: Fös 12. Des 2014 00:03
af Klemmi
GunniH skrifaði:Klemmi: Ég vill meina að netið okkar sé nú bara búið að vera ansi gott síðustu mánuði/síðasta árið og að þú sért kannski aðeins of mikið að rýna í okkar sögu frekar en hvernig við erum í dag. Vill endilega fá að heyra frá okkar kúnnum hér inni ef að þið eruð ósammála því.
Þakka svarið, ef þú byrjar hér http://spjall.vaktin.is/viewtopic.php?f ... start=1065" onclick="window.open(this.href);return false; og lest þig fram til þessa pósts, þá geturðu séð kvartanir um hægt net, hátt ping, lélegt erlent samband o.s.frv. fyrir árið sem er að líða.

Nokkrir jákvæðir póstar inn á milli, en bróðurparturinn neikvæður.

Batnandi mönnum er bezt að lifa, en nú eru rétt tæp 4 ár síðan þessi þráður var stofnaður, hann telur í 50 síður (~1250 innlegg), þar af megnið neikvætt og helstu svörin frá ykkur eru alltaf að þetta sé að lagast, þetta sé nú orðið talsvert betra en þetta var í upphafi o.s.frv.

Getur verið að ég sé of kröfuharður, en mér finnst ekki hægt að teyma menn endalaust áfram á því að þetta sé nú að lagast hægt og rólega, finnst eins og svörin sem þið komið með séu alltaf á sama veg, að nú séuð þið komnir yfir brattasta hjallann og það verði smooth sailing frameftir...

Re: Hringdu.is

Sent: Fös 12. Des 2014 00:43
af Oak
Hins vegar það versta í þessu er að verðin eru orðin nánast þau sömu og hjá hinum ISP. :(
Sem var svona meginástæðan fyrir því að maður var að fara yfir til þeirra.

Maður sætti sig við aðeins slakari þjónustu vegna þess að það munaði alveg slatta á verðinu...

Re: Hringdu.is

Sent: Fös 12. Des 2014 00:48
af Legolas
beatmaster skrifaði:Netið hjá mér innlent og erlent er búið að vera ömurlegt síðustu 2 kvöld :(

Sama hér og nú er það í fokki aftur [-(