Síða 49 af 83

Re: Hringdu.is

Sent: Mán 29. Sep 2014 00:34
af rango
Dúlli skrifaði:
fannar82 skrifaði:MM, svo er ég að pæla í öðru.. Hvað eru menn að fá á teljaranum hjá þeim ? ég er búinn að vera í 57 gb núna í góða viku :L

Þeir fylgjast ekki með þessu, er með 10Gb tengingu er alltaf yfir og aldrei cappaður eða neitt.

Finnst líka allveg sama ef erlenda netið dettur í út nokkrar mínútur þar sem ég er að fá þetta fjandi ódýrt og netið er bara nokkuð stöðugt nema einstaka sinnum.

Ættirðu þá ekki að stækka tenginguna svo það sé ekki þörf á að cappa? :-"

Re: Hringdu.is

Sent: Mið 15. Okt 2014 20:45
af Oak
Er það bara ég eða er netið í ruglinu hjá ykkur líka?

Re: Hringdu.is

Sent: Mið 15. Okt 2014 20:57
af rapport
Oak skrifaði:Er það bara ég eða er netið í ruglinu hjá ykkur líka?
bara þú...

Re: Hringdu.is

Sent: Fim 16. Okt 2014 16:30
af jonsig
Af hverju er netið að detta út í 5min svo allt í lagi kannski í viku? Síðan sama sagan.

Re: Hringdu.is

Sent: Fim 16. Okt 2014 16:37
af Bengal
Erlent samband er niðri hjá mér. Einhverjir að lenda í sama?

Re: Hringdu.is

Sent: Fim 16. Okt 2014 16:39
af GullMoli
bjarturv skrifaði:Erlent samband er niðri hjá mér. Einhverjir að lenda í sama?
Jebb..

Re: Hringdu.is

Sent: Fim 16. Okt 2014 16:40
af jonsig
Alltaf eitthvað fokk á þessu, á maður ekki að fara chekka á hringiðunni eða hvað þeir heita

Re: Hringdu.is

Sent: Fim 16. Okt 2014 16:48
af Tesy
IT IS BACK!

Re: Hringdu.is

Sent: Fim 16. Okt 2014 22:48
af Oak
Þetta var HMA sem var að trufla tenginguna hjá mér í gær.

Re: Hringdu.is

Sent: Sun 26. Okt 2014 22:52
af rapport
Hvaða anskotans rugl er núna í gangi????

Mynd

Re: Hringdu.is

Sent: Mið 29. Okt 2014 20:26
af Oak
Eru aðrir í ruglinu síðast liðna allavega tvo daga?
Gæti svo sem alveg verið HMA í ruglinu líka.

Re: Hringdu.is

Sent: Fim 30. Okt 2014 20:12
af GuðjónR
Virkar Netflix hjá ykkur núna?
Næ að downloda að utan með allt að 4Mbs en einhverra hluta vegna þá virkar Netlixið í Apple TV ekki sem skyldi, krakkarnir að reyna að horfa á teiknó en það frýs á 3 mínútna fresti.
Reyndar finnst mér Netflixið eitthvað skrítið eftir að þeir fóru að beina allri traffík í gegnum London, hvernig er þetta hjá ykkur?

Re: Hringdu.is

Sent: Fim 30. Okt 2014 20:19
af toaster
Ég er með ljósnet hjá Hringdu og internetið er ekki búið að vera gott síðustu daga. Færði mig frá símanum og er fyrir vonbrigðum þar sem netið var alltaf steady hjá símanum.

Það sem ég tek mest eftir er ping í tölvuleikjaspilun og stream á netinu er búið að vera hræðilegt.

Re: Hringdu.is

Sent: Fim 30. Okt 2014 21:16
af rapport
Þetta London dæmi verður til þess að ég fer annað fyrir jól, er bara að skoða hvort ég fari í ljós og breyti hér heima aðeins með þessu.

Ókeypis Hulu þjónustan og margt annað USA dæmi er farið að hökta og get ímyndað mér að Netflix geri það líka vegna þessara breytinga.

Það er fínt að vera styrkja nýjan aðila á markaðinum EF maður er að fá sömu þjónustu.

Þetta er ekki sama þjónustan og þetta USA dæmi var stórt skref í einhverja átt sem ég hreinlega bara fatta ekki, bara verri þjónusta og sparnaður hjá þeim.

Re: Hringdu.is

Sent: Fim 30. Okt 2014 21:51
af Oak
Netið er allaveg búið að vera alveg í ruglinu á kvöldin hjá mér núna síðast liðna daga.

Alvarlega farinn að hugsa það að skipta um ISP.

Re: Hringdu.is

Sent: Sun 02. Nóv 2014 22:56
af rapport
Er Hringdu aftur í fokkinu?

Þetta er orðið helvíti pirrandi...

Blessunarlega er ég búinn að panta hjá Hringiðunni betri tengingu, svo slútta ég þessu...

Mynd

Re: Hringdu.is

Sent: Mán 03. Nóv 2014 14:44
af chaplin
rapport skrifaði:Er Hringdu aftur í fokkinu?

Þetta er orðið helvíti pirrandi...

Blessunarlega er ég búinn að panta hjá Hringiðunni betri tengingu, svo slútta ég þessu...

[ Mynd ]
Vodafone var það slæmt í gær að ég komst ekki inn á neina síðu nema FB og Youtube, nokkrar innlendar síðar, allt annað var niðri.

Efast um að það hafi samt verið vandamál hjá Vodafone.

Re: Hringdu.is

Sent: Mán 03. Nóv 2014 14:46
af SolidFeather
chaplin skrifaði:
rapport skrifaði:Er Hringdu aftur í fokkinu?

Þetta er orðið helvíti pirrandi...

Blessunarlega er ég búinn að panta hjá Hringiðunni betri tengingu, svo slútta ég þessu...

[ Mynd ]
Vodafone var það slæmt í gær að ég komst ekki inn á neina síðu nema FB og Youtube, nokkrar innlendar síðar, allt annað var niðri.

Efast um að það hafi samt verið vandamál hjá Vodafone.

Sama hér

Re: Hringdu.is

Sent: Fös 07. Nóv 2014 16:43
af Elisviktor
Vá hvað ég er feginn að vera búinn að losna við hringdu. Hætti hjá þeim fyrir ca 1,5 ári og ég sé að fólk er ennþá í mega vandræðum með þá. Það þýðir ekkert að tala við þá í síma. Allir starfsmenn er þrautþjálfaðir í að ljúga.

Re: Hringdu.is

Sent: Fim 13. Nóv 2014 22:42
af GullMoli
Hahahaha.

Ég var að prufa að fara á Deildu.net eftir að Hringdu lokuðu á slóðina, mér til mikillar gleði tók þetta á móti mér.

Mynd


Slóðin sem þeir vísa á er þessi;
http://simon.is/2014/orskyring-deildu-og-piratebay/" onclick="window.open(this.href);return false;

Vel gert!
Mynd

Re: Hringdu.is

Sent: Fös 14. Nóv 2014 14:59
af rango
GullMoli skrifaði:Hahahaha.

Ég var að prufa að fara á Deildu.net eftir að Hringdu lokuðu á slóðina, mér til mikillar gleði tók þetta á móti mér.

-mynd-

Slóðin sem þeir vísa á er þessi;
http://simon.is/2014/orskyring-deildu-og-piratebay/" onclick="window.open(this.href);return false;

Vel gert!
=D>
Ég dýrka hringdu fyrir þetta. =D>

Re: Hringdu.is

Sent: Lau 22. Nóv 2014 14:28
af Mazi
Nú er ég með Síman sem ISP ( ADSL-12mbs/300GB ) og ég var að spá að færa mig yfir í Hringdu (ADSL-12mbs/ótakmörkuð GB ), hvernig er þjónustan svona í alvöru talað ? Fæ ég stable tengingu ? Eða er þetta bara algjört kjaftæði ? Takk :D

Re: Hringdu.is

Sent: Lau 22. Nóv 2014 15:35
af Oak
Það koma alveg tímar þar sem maður er í svona frekar hægu sambandi en það er alveg sárasjaldan allavega hjá mér.
Fæ alltaf svör mjög fljótlega hjá þeim ef ég sendi einhverjar fyrirspurnir sem hafa reyndar ekki verið margar.

Ég er allavega mjög sáttur hjá þeim.

Lenti í smá veseni fyrir svona 2 vikum og þá var víst mikið af nýju fólki að koma inn hjá þeim. Svo er þetta bara búið að vera eins og áður eftir það, mjög fín tenging. :)

Re: Hringdu.is

Sent: Sun 23. Nóv 2014 07:16
af dawg
07:16
Kemst bara inná innlendar síður einsog er. :(
Prufaði að setja á google dns til að gá hvort dns-inn væri málið en þá datt netið alveg út.
07:36
og þá er það komið í lag, ekki viss hvort þetta var vandamál hjá mér eða hringdu. :)

Re: Hringdu.is

Sent: Sun 23. Nóv 2014 14:11
af Sallarólegur
Þessi banner hjá þeim fer í mínar fínustu... allt út um allt
hringduheimasida_1920X400_3.png
hringduheimasida_1920X400_3.png (50.1 KiB) Skoðað 1659 sinnum