Síða 46 af 83

Re: Hringdu.is

Sent: Fös 31. Jan 2014 22:43
af dreymandi
hafa einhverjir verið í vanda með hringdu í kvöld ?

Re: Hringdu.is

Sent: Fös 31. Jan 2014 23:12
af roadwarrior
Farinn að halda að þeir sem eru hjá Hringdu séu haldnir svolítilli sadó/masó þrá :)
Væri sjálfur löngu farinn

Re: Hringdu.is

Sent: Fös 31. Jan 2014 23:46
af Matti21
dreymandi skrifaði:hafa einhverjir verið í vanda með hringdu í kvöld ?
Jebb. Allt nánast alveg dottið út. Innlent sem erlent.
Ef ég væri ekki að fara að flytja erlendis á næstunni þá myndi ég hiklaust segja þessu upp. Get ekki verið að skuldbinda mig í X mánuði hjá nýju fyrirtæki þannig ég sit uppi með þetta.

Re: Hringdu.is

Sent: Fös 14. Mar 2014 01:19
af dreymandi
hæ eru einhverjir í vanda hjá hringdu núna með erlendar síður?

Re: Hringdu.is

Sent: Fös 14. Mar 2014 13:04
af fannar82
Tjah, ég er búinn að vera hjá þeim núna í tvo mánuði og aldrei lent í neinu :l 7-9-13

Re: Hringdu.is

Sent: Sun 16. Mar 2014 18:23
af GullMoli
Er einhver hérna að lenda í vandræðum með Torrent núna?

Re: Hringdu.is

Sent: Sun 16. Mar 2014 21:34
af Nuketown
Ég er að lenda í endalausu veseni núna seinustu daga. Netið alltaf að detta út og svo er það svo hægt að maður gæti sofnað á meðan síður loadast. Dauðlangar að skipta um símafyrirtæki

Re: Hringdu.is

Sent: Sun 16. Mar 2014 22:55
af Oak
Þeir ætluðu að hægja á þeim sem væru komnir yfir niðurhalið hjá sér um helgina...getur það verið vandamálið hjá ykkur?

Re: Hringdu.is

Sent: Sun 16. Mar 2014 22:57
af GullMoli
Mér sýnist þetta frekar vera vandamál með einn af hörðudiskunum mínum, svo internetlega séð þá virkar allt fínt hérna.

Re: Hringdu.is

Sent: Þri 25. Mar 2014 04:22
af dreymandi
Hafa menn hjá hringdu verið að fara reglulega undanfarið á heimasíðuna til að skoða gagnamagnið? það eykst hjá mér um tugi gb á dag þó ég sé ekki að dl neinu eða horfa á live tv ??

Re: Hringdu.is

Sent: Þri 25. Mar 2014 09:17
af GuðjónR
dreymandi skrifaði:Hafa menn hjá hringdu verið að fara reglulega undanfarið á heimasíðuna til að skoða gagnamagnið? það eykst hjá mér um tugi gb á dag þó ég sé ekki að dl neinu eða horfa á live tv ??
Það jókst hjá mér um hátt í 100GB í nótt meðan ég svaf, fór úr "rugl" 240GB í 330GB.
Spurning hvort þeir séu að taka VodaFone trikkið á þetta?
Þeir eru að byrja með 500GB pakka næstu áramót ;)

Rétt áður en ég fór að sofa:
Notkun í mars 2014: 241 GB
Þegar ég vaknaði:
Notkun í mars 2014: 324 GB

Það væri gaman að fá að sjá notkun síðustu 6 mánaða, borði saman við þennan mánuð sem er að líða.
Ég var að hugsa um síðustu mánaðarmót að downgreida tenginguna í 100-150GB þar linkurinn gagnamagn sýndi alltaf 70-100GB á mán.
Allt í einu er þetta komið yfir 300, efast um að ég nái því jafnvel þótt innlennt DL væri talið með. Þetta jafngildir að downloda frá útlöndum um 300 þáttum í HD gæðum á 24 dögum, ég þyrfti að horfa á 13 þætti á dag, alla daga hehehehe.

Re: Hringdu.is

Sent: Mið 26. Mar 2014 00:17
af Matti21
Er einhver búinn að fá á hreint hvað er í gangi með gagnamagns talninguna hjá þeim? Mars mánuður hjá mér var kominn í 98GB í gær (hef aldrei farið yfir 70GB áður, venjuleg notkun hjá mér er c.a 50GB). Í dag hoppaði teljarinn aftur í 0 og var 1GB um hádegið. Núna er hann kominn í 17GB þrátt fyrir að ég hafi varla notað netið í dag enda lítið heima...hvað í ósköpunum er í gangi?

Re: Hringdu.is

Sent: Mið 26. Mar 2014 00:35
af Tesy
Þetta er skrítið. Var um 130gb í gær, 7gb í morgun og núna er ég í 32gb.. ok..? (Ég er með 250GB pakkan)

Re: Hringdu.is

Sent: Mið 26. Mar 2014 00:43
af GuðjónR
Hoppaði úr 0 í hádeginu í 131 núna 12 tímum síðar :)
Augljóslega bilun hjá þeim, hafið engar áhyggjur af þessu.

Re: Hringdu.is

Sent: Mið 26. Mar 2014 10:50
af HringduEgill
Sælir,

Fyrir hönd Hringdu vil ég ítreka að við erum ekki að rukka fyrir efni sótt innanlands eða efni sem speglað hefur verið á
innlenda þjóna okkar. Stefna okkar í þessum málum er því þveröfug við Vodafone.

Á síðustu mánuðum hefur mikil vinna farið í bæta gagnamagnsteljarann og gera hann nákvæmari þar sem í ljós kom
að hann taldi of lítið gagnamagn. Birt notkun hefur því oftast verið minni en raunveruleg notkun. Flöktið sem þið sjáið
á gagnamagninu núna er afleiðing þess að við erum að endurreikna allt gagnamagn frá byrjun mánaðarins - hráu gögnin
eru enn til staðar og erum við einfaldlega að vinna úr þeim og dæla þeim aftur inn í gagnagrunninn.

Þeir sem hafa áhuga á því að fá ítarlega sundurliðun á gagnanotkun (per klst, per dagur) í þessum mánuði geta sent
email á gunnar@hringdu.is.

Þeir sem hafa verið lengir hjá okkur vita að við erum mjög sveiganlegir með þessi mál miðað við aðrar netþjónustur.
Sú stefna mun haldast óbreytt. Við sjáum fram á að fara hægja á þeim tengingum sem fara yfir gagnamagnið en ekki
án þess að láta fólk vita - og þá bjóða þeim að uppfæra pakkann sinn eða kaupa auka gagnamagn. Sjálfvirk áfylling er
ekki inn í myndinni hjá okkur og þótt þú farir yfir gagnamagnið þitt mun enginn aukakostnaður bætast á reikninginn
nema sérstaklega sé óskað eftir stækkun.

Við höfum ekki hægt á neinum tengingum í þessum mánuði og munum ekki gera það fyrr en við erum 100% vissir um
að talningin sé rétt. Hinsvegar vil ég benda á það sem ég sagði áðan að talningar fyrri mánaða hafa í flestum tilvikum
verið of lágar og er ekki hægt að bera saman notkun í seinasta mánuði og þessum mánuði og nota aukninguna sem rök
fyrir rangri talningu.

Ef eitthvað er óskýrt eða þið viljið koma fyrirspurn áleiðis þá ekki hika við að senda póst á egillm@hringdu.is

Kveðja,
Egill

Re: Hringdu.is

Sent: Sun 13. Apr 2014 22:45
af SIKk
Ég vildi bara segja ykkur frá því þar sem ég tók hvergi eftir því hérna að minnst sé á þetta, en Hringdu.is bjóða aftur uppá frítt sms óháð kerfi á heimasíðunni þeirra :)

Re: Hringdu.is

Sent: Fim 24. Apr 2014 21:36
af Tesy
Hvernig eruð þið staddir í gagnamagninu? Ég er sjálfur búinn með 232GB af 250GB og það er um vika eftir :S Fjölskyldan er endalaust á youtube og þannig.. Vorum með 140GB hjá Vodafone í fyrra nálægt jólin og það dugði. Er Hringdu að telja of mikið eða höfum við aukið netnotkunina um næstum helming (sem mér finnst svolítið ólíklegt) ?

Re: Hringdu.is

Sent: Fim 24. Apr 2014 22:02
af GuðjónR
Tesy skrifaði:Hvernig eruð þið staddir í gagnamagninu? Ég er sjálfur búinn með 232GB af 250GB og það er um vika eftir :S Fjölskyldan er endalaust á youtube og þannig.. Vorum með 140GB hjá Vodafone í fyrra nálægt jólin og það dugði. Er Hringdu að telja of mikið eða höfum við aukið netnotkunina um næstum helming (sem mér finnst svolítið ólíklegt) ?

Notkun í apríl 2014: 217 GB
Þeir eru örugglega að mæla þetta rétt, þú skalt ekkert hafa áhyggjur af þessu, þó þú farir eitthvað smávegis framyfir þá verður þér ekkert refsað fyrir það.

Re: Hringdu.is

Sent: Fim 24. Apr 2014 22:09
af Tesy
GuðjónR skrifaði:

Okok, þeir bæta samt ekki 10GB við sjálfkrafa eins og Vodafone gerir er það?

Re: Hringdu.is

Sent: Fim 24. Apr 2014 22:10
af GuðjónR
Tesy skrifaði:

Neinei, þeir gera það ekki.

Re: Hringdu.is

Sent: Fim 24. Apr 2014 22:35
af Xberg
GuðjónR skrifaði:
Tesy skrifaði:Hvernig eruð þið staddir í gagnamagninu? Ég er sjálfur búinn með 232GB af 250GB og það er um vika eftir :S Fjölskyldan er endalaust á youtube og þannig.. Vorum með 140GB hjá Vodafone í fyrra nálægt jólin og það dugði. Er Hringdu að telja of mikið eða höfum við aukið netnotkunina um næstum helming (sem mér finnst svolítið ólíklegt) ?

Notkun í apríl 2014: 217 GB
Þeir eru örugglega að mæla þetta rétt, þú skalt ekkert hafa áhyggjur af þessu, þó þú farir eitthvað smávegis framyfir þá verður þér ekkert refsað fyrir það.
-

Notkun í apríl 2014: 224 GB
Ég er með 80.GB sem hefur dugað mér hingað til, ekkert dl á þessari tengingu, bara facebook og fréttamiðlar.
Finnst þetta voða skrítið eitthvað.

Re: Hringdu.is

Sent: Mið 16. Júl 2014 23:10
af Oak
Er erlenda out í kvöld?

Búið að hægja á mér... :/

Re: Hringdu.is

Sent: Fim 17. Júl 2014 00:58
af thor81
hvernig að laga ](*,)

Re: Hringdu.is

Sent: Fim 17. Júl 2014 01:17
af Tóti
Var að spá í að skipta um nettengingu.
Margir að kvarta yfir Hringdu .is nema GuðjónR. eða mjög sjaldan.
Hvað er í gangi ?

Re: Hringdu.is

Sent: Fim 17. Júl 2014 01:38
af Tesy
Notkun í júlí 2014: 224 GB
Mér finnst þetta alveg stórfurðulegt.. Er eitthvað að marka þessa mælingu hjá þeim?

@Tóti
Netið hefur verið mjög stable hjá mér.