Síða 5 af 13

Re: Nú vantar ykkar aðstoð

Sent: Sun 16. Nóv 2014 15:32
af worghal
legg mitt af mörkum um mánaðarmótin :happy

Re: Nú vantar ykkar aðstoð

Sent: Sun 16. Nóv 2014 18:10
af GuðjónR
Revenant skrifaði:Búinn að leggja í púkkið.
Glæsilegt!
Innilegar þakkir fyrir stuðninginn ;)
worghal skrifaði:legg mitt af mörkum um mánaðarmótin :happy
Kærar þakkir fyrir það ;)

Re: Nú vantar ykkar aðstoð

Sent: Sun 16. Nóv 2014 18:31
af biturk
Það er alveg á hreinu að ég tek ekki í mál að þú endurgreiðir mér þegar ég legg inná þig

Hitt er annað mál að sigurður mættu alveg styrkja eins og helming og ef einhver þekkir sauðinn má koma því til hans

Re: Nú vantar ykkar aðstoð

Sent: Sun 16. Nóv 2014 19:05
af GuðjónR
biturk skrifaði:Það er alveg á hreinu að ég tek ekki í mál að þú endurgreiðir mér þegar ég legg inná þig

Hitt er annað mál að sigurður mættu alveg styrkja eins og helming og ef einhver þekkir sauðinn má koma því til hans
hehehe það borgar sig ekki að uppnefna manninn, sérstaklega ekki ef við ætlum að biðja hann um leggja söfnuninni lið ;)

Re: Nú vantar ykkar aðstoð

Sent: Sun 16. Nóv 2014 19:18
af vesi
GuðjónR skrifaði:

það á ekki að þurfa að biðja hann um neitt,,
Hann á að sjá sóma sinn í þessu sjálfur og leggja vaktini lið óumbeðinn!

En uppnefni og dónaskapur eru að sjálfsögðu óþörf að vanda, hvort sem er á þessu spjallborði eða annarstaðar.

Re: Nú vantar ykkar aðstoð

Sent: Sun 16. Nóv 2014 19:58
af KermitTheFrog
Tbot skrifaði:
GuðjónR skrifaði:
. Sáttin hljóðaði þannig að Sigurður á að greiða Friðjóni 500.000.- í lögmannskostnað og Friðjón á að greiða mér 700.000.- í lögmannskostnað.

Núna tveim mánuðum eftir úrskurð þá segist Friðjón ekki vera borgunarmaður fyrir eigin dómssátt.
Staðan er því þannig að þrátt fyrir sýknu og dómssátt þá sit ég uppi með 700.000.- kr. kostnað vegna umræðu sem ég átti raunverulega ekki þátt í fyrir utan þá staðreynd að hún átti sér stað á vefnum okkar.
Það sem mig langar að vita:

Er Sigurður búinn að greiða Friðjóni 500.000- ???

Ef ekki, getur þú þá ekki náð að koma þarna á milli þannig að 500.000- fari til þín?
Nú er ég búinn að vera að velta þessu líka fyrir mér. Hvernig getur hann ekki verið borgunarmaður ef hann á inni meirihlutann af upphæðinni hjá Sigurði?

Hann þarf juju að borga sínum lögmanni en mér finnst að það megi mæta afgangi.

Re: Nú vantar ykkar aðstoð

Sent: Sun 16. Nóv 2014 20:23
af GuðjónR
Ég veit ekki nákvæmlega hvernig þetta virkar, en þeir voru báðir með málskostnaðar tryggingar, tryggingin hans Sigurðar borgaði sáttina hans, þ.e. 500k til vilhjálms.
Eftir stendur að reikningurinn hjá Vilhjálmi var mun hærri en 500k, Friðjón var líka með svoleiðis tryggingu en hann hefur líklega þurft að gera upp við sig hvort hann notaði hana til að borga Vilhjálmi eða mínum lögmanni.

Re: Nú vantar ykkar aðstoð

Sent: Sun 16. Nóv 2014 20:31
af depill
GuðjónR skrifaði:Ég veit ekki nákvæmlega hvernig þetta virkar, en þeir voru báðir með málskostnaðar tryggingar, tryggingin hans Sigurðar borgaði sáttina hans, þ.e. 500k til vilhjálms.
Eftir stendur að reikningurinn hjá Vilhjálmi var mun hærri en 500k, Friðjón var líka með svoleiðis tryggingu en hann hefur líklega þurft að gera upp við sig hvort hann notaði hana til að borga Vilhjálmi eða mínum lögmanni.
Ég hélt að Málskostnaðartrygging ( eins og mér var allavega kynnt hana frá Sjóva og Verði á sínum tíma, þar sem þetta er eiginlega orðin skylda fyrir fyrirtæki í dag ( Hagkaupsmálið alltaf tekið sem dæmi :P ) ) þá tekur þetta bara á ef þú ert kærður en ekki ef þú kærir.

En kannski er Friðjón með sér

Re: Nú vantar ykkar aðstoð

Sent: Sun 16. Nóv 2014 20:55
af GuðjónR
depill skrifaði:

Það er spurning? :-k

Re: Nú vantar ykkar aðstoð

Sent: Sun 16. Nóv 2014 22:23
af norex94
6000Kr handa þér!
Gangi þér vel með söfnunina! :megasmile

Re: Nú vantar ykkar aðstoð

Sent: Sun 16. Nóv 2014 22:28
af Zorglub
Það sorglega er að svona vitleysa kemur manni bara nákvæmlega ekkert á óvart.
Komið smá framlag frá mér, enda er þessi síða þjóðhagslega mikilvæg :D

Re: Nú vantar ykkar aðstoð

Sent: Sun 16. Nóv 2014 22:46
af GuðjónR
norex94 skrifaði:6000Kr handa þér!
Gangi þér vel með söfnunina! :megasmile
Zorglub skrifaði:Það sorglega er að svona vitleysa kemur manni bara nákvæmlega ekkert á óvart.
Komið smá framlag frá mér, enda er þessi síða þjóðhagslega mikilvæg :D
Innilegar þakkir fyrir stuðninginn félagar!
Þessi síða er rétt að komast á fermingaraldur og á mikið eftir.
Það skal enginn komast upp með að eyðileggja þetta fyrir okkur, því lofa ég.

Re: Nú vantar ykkar aðstoð

Sent: Sun 16. Nóv 2014 23:04
af Hargo
Guðjón, tekur heimilistryggingin þín ekki þátt í kostnaði við þennan lögfræðikostnað?

Tók einmitt eftir því að í minni tryggingu var eitthvað sem hét málskostnaðartrygging, en ég veit svo sem ekkert hverjir skilmálarnir eru eða hvernig hún virkar.

Annars hendi ég inn í púkkið um mánaðarmótin, þetta er algjörlega ömurlegt mál og mjög ósanngjarnt.

Re: Nú vantar ykkar aðstoð

Sent: Sun 16. Nóv 2014 23:17
af urban
Ég er nú bara að sjá þetta núna fyrst.

í fyrsta lagi, þá hef ég ekki efni á því að henda neinu inná þig núna Guðjón en geri það um mánaðarmótin.
í öðru lagi, ef að svo (mjög líklega miðað við hraðann á söfnunninni) skemmtilega vill til að þú verðir búinn að fá þennan 700 þús kall um mánaðarmótin þá vill ég samt sem áður fá að leggja það inná þig.

þú heldur aftur fyrir sjálfan þig þá 10 - 25% af því fyrir þig og við veljum síðan eitthvað gott málefni til þess að styrkja svona fyrir jólin.

10 - 25% eru þá bara þakklæti til þín fyrir störf undanfarinna ára og að nenna að hugsa svona um okkur.

En andskotinn sjálfur, það verður hreinlega að finna annan lit á þessa styrkjendur, þetta er alveg skelfilega ljótur litur, vaktar appelsínuguli liturinn finnst mér einmitt frábær hugmynd.

Re: Nú vantar ykkar aðstoð

Sent: Sun 16. Nóv 2014 23:20
af depill
depill skrifaði:
GuðjónR skrifaði:Ég veit ekki nákvæmlega hvernig þetta virkar, en þeir voru báðir með málskostnaðar tryggingar, tryggingin hans Sigurðar borgaði sáttina hans, þ.e. 500k til vilhjálms.
Eftir stendur að reikningurinn hjá Vilhjálmi var mun hærri en 500k, Friðjón var líka með svoleiðis tryggingu en hann hefur líklega þurft að gera upp við sig hvort hann notaði hana til að borga Vilhjálmi eða mínum lögmanni.
Ég hélt að Málskostnaðartrygging ( eins og mér var allavega kynnt hana frá Sjóva og Verði á sínum tíma, þar sem þetta er eiginlega orðin skylda fyrir fyrirtæki í dag ( Hagkaupsmálið alltaf tekið sem dæmi :P ) ) þá tekur þetta bara á ef þú ert kærður en ekki ef þú kærir.

En kannski er Friðjón með sér
Reyndar sé að heimilistryggingin mín ( sem er öðruvísi en fyrirtækjatryggingin ) virðist taka á bæði :) Segir bara ágreining. ( Vörður )

Re: Nú vantar ykkar aðstoð

Sent: Sun 16. Nóv 2014 23:22
af GuðjónR
Hargo skrifaði:Guðjón, tekur heimilistryggingin þín ekki þátt í kostnaði við þennan lögfræðikostnað?

Tók einmitt eftir því að í minni tryggingu var eitthvað sem hét málskostnaðartrygging, en ég veit svo sem ekkert hverjir skilmálarnir eru eða hvernig hún virkar.

Annars hendi ég inn í púkkið um mánaðarmótin, þetta er algjörlega ömurlegt mál og mjög ósanngjarnt.
Takk fyrir það.

Hún hefði gert það ef ég hefði verið með hana :(
Mér datt bara aldrei í hug að ég þyrfti að kaupa mér tryggingu til að verjast svona löguðu.

Re: Nú vantar ykkar aðstoð

Sent: Sun 16. Nóv 2014 23:36
af GuðjónR
urban skrifaði:Ég er nú bara að sjá þetta núna fyrst.

í fyrsta lagi, þá hef ég ekki efni á því að henda neinu inná þig núna Guðjón en geri það um mánaðarmótin.
í öðru lagi, ef að svo (mjög líklega miðað við hraðann á söfnunninni) skemmtilega vill til að þú verðir búinn að fá þennan 700 þús kall um mánaðarmótin þá vill ég samt sem áður fá að leggja það inná þig.

þú heldur aftur fyrir sjálfan þig þá 10 - 25% af því fyrir þig og við veljum síðan eitthvað gott málefni til þess að styrkja svona fyrir jólin.

10 - 25% eru þá bara þakklæti til þín fyrir störf undanfarinna ára og að nenna að hugsa svona um okkur.

En andskotinn sjálfur, það verður hreinlega að finna annan lit á þessa styrkjendur, þetta er alveg skelfilega ljótur litur, vaktar appelsínuguli liturinn finnst mér einmitt frábær hugmynd.
Aftur smá double póst ..

Prófum Vaktar litinn!
Takk fyrir þessar pælingar, en núna er fókusinn og markmiðið á 700k, er ekkert farinn að hugsa lengra enda ekki tímabært. :)
Svo er ekkert útilokað að Friðjón sjái að sér og greiði það sem honum ber að greiða, þá horfir þetta allt öðruvísi við.
En söfnunin heldur áfram að af fullum krafti, get því miður ekki uppfært statusinn fyrr en í fyrramálið þar sem heimabankinn segir:
Greiðslur sem framkvæmdar eru á milli klukkan 21:00 og 02:00 birtast ekki á yfirliti fyrr en að morgni daginn eftir.

Re: Nú vantar ykkar aðstoð

Sent: Sun 16. Nóv 2014 23:37
af appel
Vá, búið að brjóta 300 þús múrinn. Held að vaktararnir nái því takmarki að þetta hafi ekki mikil áhrif á fjárhaginn hjá þér Guðjón.

Það segir mikið um réttarkerfið að maður þurfi að vera annaðhvort ríkur eða með tryggingar til þess að geta varist tilefnislausum málsóknum, annars lendi maður illa í því fjárhagslega. Vilji maður leggja fjárhag einhvers í rúst þá bara dregur maður hann fyrir dómsstóla í einhverri rugl málssókn. Skemmtilegt land.

Svo er spurning hvort þeir sem stofnuðu til þessa kostnaðar séu menn í að leggja fram sómasamleg framlög. Mér sýnist að það sé aðeins Guðjón sem lenti í fjárhagslegum skít útaf þessu, og maður grætur það hvernig þessir einstaklingar sem voru í skítkastinu skuli komast svona hreinir frá þessu máli.

Það er ongoing áskorun á hendur Sigurð hjá iStore að leggja fram eitthvað í púkkið sem skiptir máli.

Re: Nú vantar ykkar aðstoð

Sent: Mán 17. Nóv 2014 00:42
af rapport
Komið frá mér 5þ.

fórna "razzport" tagginu... :evillaugh

Re: Nú vantar ykkar aðstoð

Sent: Mán 17. Nóv 2014 01:10
af GuðjónR
appel skrifaði:Vá, búið að brjóta 300 þús múrinn. Held að vaktararnir nái því takmarki að þetta hafi ekki mikil áhrif á fjárhaginn hjá þér Guðjón.

Það segir mikið um réttarkerfið að maður þurfi að vera annaðhvort ríkur eða með tryggingar til þess að geta varist tilefnislausum málsóknum, annars lendi maður illa í því fjárhagslega. Vilji maður leggja fjárhag einhvers í rúst þá bara dregur maður hann fyrir dómsstóla í einhverri rugl málssókn. Skemmtilegt land.

Svo er spurning hvort þeir sem stofnuðu til þessa kostnaðar séu menn í að leggja fram sómasamleg framlög. Mér sýnist að það sé aðeins Guðjón sem lenti í fjárhagslegum skít útaf þessu, og maður grætur það hvernig þessir einstaklingar sem voru í skítkastinu skuli komast svona hreinir frá þessu máli.

Það er ongoing áskorun á hendur Sigurð hjá iStore að leggja fram eitthvað í púkkið sem skiptir máli.
Já þetta er frekar dapurt kerfi sem við búum við, ekki hægt að segja annað.
rapport skrifaði:Komið frá mér 5þ.

fórna "razzport" tagginu... :evillaugh
Innilegar þakkir fyrir stuðninginn! :)
Var það ekki örugglega 5k virði að losna við þennan titil? :D

Re: Nú vantar ykkar aðstoð

Sent: Mán 17. Nóv 2014 15:32
af GuðjónR
Búinn að setja stöðuna efst uppi lengst til hægri ;)
Ég er mjög ánægður með árangurinn á þessum stutta tíma!

Re: Nú vantar ykkar aðstoð

Sent: Mán 17. Nóv 2014 15:45
af vesi
komið frá mér.

Re: Nú vantar ykkar aðstoð

Sent: Mán 17. Nóv 2014 16:10
af GuðjónR
vesi skrifaði:komið frá mér.
Glæsilegt!!!
Innilegar þakkir! ;)

Re: Nú vantar ykkar aðstoð

Sent: Mán 17. Nóv 2014 16:12
af vesi
vesi verndari... hljómar bara eins og Ofurhetjunafn hehe :happy

Re: Nú vantar ykkar aðstoð

Sent: Mán 17. Nóv 2014 16:13
af GuðjónR
vesi skrifaði:vesi verndari... hljómar bara eins og Ofurhetjunafn hehe :happy
:happy :happy :happy