Síða 1 af 1

örgjörva bögg

Sent: Lau 21. Jan 2006 15:41
af HemmiR
ég veit að ég hef gert svona þráð áður en ok.
ég er med amd 2600 xp barton.
og með asus A7N8X móðurborð og ég fékk nýtt um daginn því fyrsta svona borðið var gallað eða do þegar ég tengdi nýann aflgjafa en ok.
ég setti býsna mikið kælikrem á örran en svo virkadi amd 2600 bara i svona 1 viku svo slökkkti hun á sér. þá niðurklukkaði ég hana i amd 2000 og þá virkadi hun svoleidis í svona c.a 3 daga. svo nuna er ég kominn i amd 1500 og þetta er amd 2600 örri. getur einhver sagt mer afhverju i fokkanum þetta er svona? ég er med ágætis örgjörva viftu sem dugar fyrir 3400 xp eða eikka.
þetta virkar einhvernveginn bara einsog örgjörva kremid hætti að virka eða eithvad meina ég fatta ekki allveg afhverju þetta er svona:/?

Re: örgjörva bögg

Sent: Lau 21. Jan 2006 16:26
af hilmar_jonsson
HemmiR skrifaði:(...)ég setti býsna mikið kælikrem á örgjörvan(...)
Taktu það allt af, hreinsaðu vel og settu um einn dropa á miðjuna.

Sent: Lau 21. Jan 2006 17:14
af viddi
þú átt að nota bara örlítið að kælikremi ekki mikið