Síða 1 af 1

Nýr Skjár

Sent: Þri 24. Jún 2003 20:06
af Bitchunter
Ég er með eldgamlan skjá, og ég ætla að fá mér nýjan er einhver með hugmyndir?

ég er á vision Master Pro 17"

Sent: Lau 28. Jún 2003 22:23
af Tomo
Ég er með skjá sem er algjört RUSL enda framleiddur "97. Ég las umsögn um þennan skjá á task.is
http://www.task.is/Scripts/prodReview.asp?idProduct=292
Þær voru allar frábærar..skjárinn ódýr og hann er 19" sem ég vill þannig að ég ætla að fá mér hann.

Hér eru nánari upplýsingar um hann og hann er ódýrari hérna en á task.is
http://www.tolvuvirkni.net/pw?inc=view& ... n%2019%20T

Sent: Sun 29. Jún 2003 01:15
af Castrate
Það er alveg rosalega búið að spyrja um þetta hérna upp á síðkastið þannig að leitaðu bara í eldri póstum. Annars mæli ég með að þú sparir ekki pening þegar þú ert að velja þér skjá.

Sent: Sun 29. Jún 2003 09:30
af Mal3
Castrate skrifaði:Það er alveg rosalega búið að spyrja um þetta hérna upp á síðkastið þannig að leitaðu bara í eldri póstum. Annars mæli ég með að þú sparir ekki pening þegar þú ert að velja þér skjá.


Hárrétt held ég líka. Horfðu á hann áður en þú kaupir. Kauptu skíran skjá sem býður upp á gott refresh. Ef þú eyðir nokkrum þúsundköllum auka í að kaupa vandaðan skjá (og nógu stóran!) sem þér líkar við myndina í mun það mjög líklega verða síðasti hlutur tölvunnar sem þú munt uppfæra.

Hey, ég er með prýðisgóðan ViewSonic 19" á 3. ári og það er það eina í tölvunni sem ég hef engan áhuga á að uppfæra. Mig langar meira að uppfæra þráðlausa músar/keyb comboið mitt í nýrra Logitech combo með optical mús. Skjárinn? Meðan hann virkar verður hann notaður. Nema auðvitað 21" skjáir fari allt í einu að verða ódýrir. Reyndar hugsar maður sér líklega til hreyfings þegar LCD skjáir eru orðnir meiri almenningsvara...

Sent: Sun 29. Jún 2003 18:49
af Tesli
En hvernig líst ykkur á þennann skjá frá tölvulistanum

19" Hansol (920D), Samsung Dynaflat, True FLAT 1280x1024@85Hz, 1600x1200@75Hz, 0.25mm
26.900 kr

Hann er flatur með góða upplausn en aðeins 0,25 punktaupplausn

er ekki míklu betra að fá sér flatan skjá heldur en hinsegin

Sent: Sun 29. Jún 2003 20:17
af Bitchunter
geturu sent link á hann. svo ég geti séð hann?

Sent: Sun 29. Jún 2003 21:52
af halanegri
Tesli skrifaði:er ekki míklu betra að fá sér flatan skjá heldur en hinsegin



Sent: Sun 29. Jún 2003 22:03
af Tesli
Bithunter það er ekki mynd eða neitt af skjánum á síðunni þeirra, allar upplýsingar sem að koma fram þar copy/paste-aði ég hér fyrir ofan....

Sent: Sun 29. Jún 2003 22:59
af Voffinn
Tesli sparaðu frekar aðeins og kaupu skjá sem þeir eru að selja, hann er með triniton túpu, og kostar já aðeins meira, en á eftir að endast þér miklubetur!!