Síða 1 af 1
Innstalla tveim hörðum diskum
Sent: Fös 30. Des 2005 17:10
af Maggi Sig.
sælir, ég var að fá mér nýja tölvu og ætla færa tvo harða diska úr þeirri gömly yfir í þá nýju, hef C: drifið í nýju primary master, annan gamla diskinn primary slave og hinn secondary slave, ég setti þessa diska í gömlu tölvuna fyrir um 4 árum og setti þá upp og innstallaði en ég bara er orðin svo helvíti gamall að ég bara MAN EKKI hvernig á að gera það, þ.e. að láta nýju tölvuna finna þá eftir að ég er búinn að plögga þeim í, (ég ætla ekki að formatta þá!) getur einhver leiðbeint mér í gegn um ferlið!
...og já þetta er PC vél með Windows XP
Sent: Fös 30. Des 2005 17:47
af urban
verður líklegast að formata c: drifið... Mjög svo ólíklegt að þú getir skellt c drifinu úr 1 vél yfir í aðra vél og ætlast til þess að það virki
en með hinn diskinn þá ættiru bara að geta stungið honum í samband sem slave og þá ætti hann að birtast í my computer
Sent: Fös 30. Des 2005 20:41
af Maggi Sig.
sæll þú misskilur mig, ég ætla ekki að nota primary master (C: drifið) úr gömlu vélinni í þá nýju, bara primary slave og secondary slave diskana (úr gömlu) ég var bara að velta fyrir mér hvernig ég ætti að installa þeim á nýju tölvuna án þess að formatta þá!
Sent: Fim 05. Jan 2006 22:44
af Maggi Sig.
halldor skrifaði:Stingur þeim nú bara í samband.
nú jæja, það var ekki flóknara en það!
En segið mér þá eitt ég ætla að fá mér einn nýjan harðandisk og skipta einum eldri disknum út, hvernig formatta ég hann (þann nýja) og installa honum í Windowsið? ég gerði þetta fyrir nokkrum árum en man ekki hvernig þetta er framkvæmt!
Sent: Fim 05. Jan 2006 22:48
af Rusty
Maggi Sig. skrifaði:halldor skrifaði:Stingur þeim nú bara í samband.
nú jæja, það var ekki flóknara en það!
En segið mér þá eitt ég ætla að fá mér einn nýjan harðandisk og skipta einum eldri disknum út, hvernig formatta ég hann (þann nýja) og installa honum í Windowsið? ég gerði þetta fyrir nokkrum árum en man ekki hvernig þetta er framkvæmt!
Stillir jumperinn eða hvað það nú heitir á Slave, eða stingur honum í samband við neðra IDE tengið á harða diska snúrunni, eða geisladiska snúrunni (nema það sé nú sata)
Sent: Fös 06. Jan 2006 00:11
af arnarj