Síða 1 af 1

[leyst] Dell Inspiron 500m að frjósa

Sent: Sun 04. Des 2005 01:26
af gumol
Ég er í talsverðum vandræðum með ferðatölvuna mína, rúmlega tveggja ára Dell Inspiron 500m.

Ég sat uppí sófa í fyrradag með tölvuna á lærinu og var að vinna eitthvað í henni þegar hún varð allt í einu alveg svakalega hægvirk, hún varð alltaf hægvrikari og hægvirkari og eftir smá stund var ég hættur að geta hreyft músina. Svo þegar ég ætlaði að fara að restarta henni kom svo þetta upp á skjáinn (sjá attatchment). Ég hef aldrei tengt hana við docking station og veit ekki einusinni hvað D-Bay er.

Ef ég ýti á enter fer hún bara aftur inn í frosna Windowsið. Oft virkar að hreyfa hana aðeins til og þá af-frýs hún og þessi [BIOS?] skilaboð fara ef þau eru uppi.

Þegar ég næ ekki að laga þetta með að setja hana á sléttara yfirborð, hreyfa skjáinn eða gera eitthvað annað verð ég að slökkva á henni með því að halda takkanum inni. Svo er ég oft í mestu vandræðum við að ná henni í gang aftur. Ég ýti á takkan og það kviknar á power ljósinu, hd ljósinu og lyklaborðs-ljósinu en svo slöknar á henni án þess að neitt meira gerist.

Hefur einhver hugmynd um hvað gæti verið að?

Einhverjir ekki að sjá attatchmentið? :? : http://spjall.vaktin.is/files/img_6859__medium_.jpg

Spess

Sent: Fim 08. Des 2005 01:25
af woo4rc3
Þetta er nokuð spess. :?
væri gaman að vita hvað væri að, því þetta er mjög spess.
Spurning hvort fóðurborðið se að fara gefa sig. DUNO :?
vonadni er einhver þarna úti sem veit hvað á að gera =)

Sent: Fim 08. Des 2005 01:37
af gumol
Já :S

Alveg spurning hvort það borgar sig yfir höfuð að fara með hann í viðgerð líka.

bara spess

Sent: Fim 08. Des 2005 01:43
af woo4rc3
ég meina þetta er bara svo spess, but yet soo Wierd dæmi.

Sent: Lau 14. Jan 2006 13:52
af gumol
Móðurborðið er ónýtt :cry:

Sent: Lau 14. Jan 2006 14:04
af @Arinn@
damn eru ekki móðuborð í fartölvur nokkuð dýr ?

Sent: Lau 14. Jan 2006 16:41
af gumol
40.000 kall sagði hún, borgar sig semsagt ekki.