Síða 1 af 1

LCD skjár í jólagjöf.

Sent: Mán 21. Nóv 2005 15:18
af Andri Fannar
Hvaða skjá mæliði með?
Með helst meira en 1240x1024 í upplausn..

Sent: Mán 21. Nóv 2005 15:19
af hilmar_jonsson
Ég býst við að þú meinir með meira en 1280*1024 í upplausn. Ég mæli með VP201b. Fæst hjá thor.is á 79.900.

Sent: Mán 21. Nóv 2005 15:27
af hahallur
hilmar_jonsson skrifaði:Ég býst við að þú meinir með meira en 1280*1024 í upplausn. Ég mæli með VP201b. Fæst hjá thor.is á 79.900.
Hann er 1600 x 1200 og er editors choice allstaðar, myndi fá mér svollis ef ég ætti monninga.

Sent: Mán 21. Nóv 2005 16:38
af zaiLex
verðmunurinn á 1280x1024 og 1600x1200 er bara svo gríðarlegur að það er hreinlega ekki þess virði

Sent: Mán 21. Nóv 2005 16:50
af Stutturdreki
Vitandi af þeirri hættu á að vera skammaður fyrir að senda inn algerlega tilgangslausan póst.. verð ég bara samt að koma þessu frá mér

Mig langar í jólagjöf frá þér :)

Sent: Mán 21. Nóv 2005 16:55
af DoRi-
Stutturdreki skrifaði:Vitandi af þeirri hættu á að vera skammaður fyrir að senda inn algerlega tilgangslausan póst.. verð ég bara samt að koma þessu frá mér

Mig langar í jólagjöf frá þér :)
mér líka

jólagjöf

Sent: Þri 29. Nóv 2005 15:29
af kraft
Ekki gleyma mér :P

Sent: Mið 30. Nóv 2005 17:02
af Tyler
Mæli með Dell 2405FPW, geðveikur skjár 1900x1200 upplausn.
http://extranet.ejs.is/extranet/Product ... ID=2405FPW

Keypti hann á ebay og flutti hann inn með ShopUSA. Endaði hann í 75þ kr. Sé ekki eftir þessum kaupum.

Sent: Fim 01. Des 2005 17:36
af bluntman
Tyler skrifaði:Mæli með Dell 2405FPW, geðveikur skjár 1900x1200 upplausn.
http://extranet.ejs.is/extranet/Product ... ID=2405FPW

Keypti hann á ebay og flutti hann inn með ShopUSA. Endaði hann í 75þ kr. Sé ekki eftir þessum kaupum.
Snilld :shock:

Djöfull væri maður til í þennan. Keyptirðu hann notaðan á ebay ? (er kannski allt notað þar ?)

Sent: Fim 01. Des 2005 17:53
af Tyler
Nei, nýjan. Auðvitað er þetta alltaf smá áhætta en sem betur fer gekk þetta allt saman upp.

Sent: Lau 03. Des 2005 14:28
af Pepsi
Það er hægt að fá þessa skjái Hingað til lands á 70þús gegnum Shopusa.is

Þeir kosta ekki nema 140þúsund hérna á klakanum.

Ein spurning til Tyler!! Er Vélin að höndla leikjaspilun í 1900x1200??

Sent: Mið 07. Des 2005 17:37
af Tyler
Nei, því miður er hún ekki að gera það en virkar fín í 1280x1024 upplausn.

Sent: Fim 08. Des 2005 11:58
af Dust
Mæli með þessum

Ódýr og góður, fer reyndar ekki yfir þína óskuðu 1280x1024 upplausn, en ég mæli engu að síður með honum.