Síða 1 af 1
Skráarflokkun - besta leiðin?
Sent: Fös 03. Des 2021 23:21
af falcon1
Hvernig flokkið þið allar skrárnar sem safnast upp í tölvunni? Ég hef verið mjög óskipulagður í þeim efnum og mér hefnist fyrir það núna þegar ég er að undirbúa að færa mig yfir í nýja tölvu. Er einhver skotheld leið til að halda tölvunni skipulagðri.
Re: Skráarflokkun - besta leiðin?
Sent: Fös 03. Des 2021 23:22
af Frussi
Nei. Það er ekki til. Þetta fer alltaf til fjandans
Re: Skráarflokkun - besta leiðin?
Sent: Fös 03. Des 2021 23:24
af appel
Henda henni og kaupa nýja?
annars hef ég aldrei verið í veseni með þetta, safna ekki skrám.
Bý bara til rusla-folder, set allt þar, "rusl" og svo "rusl 2", svo færi ég rusl 2 inn í rusl, og svo rusl inn í "nýtt rusl" og er kominn með svona 20 level af rusli.
Re: Skráarflokkun - besta leiðin?
Sent: Fös 03. Des 2021 23:28
af falcon1
appel skrifaði:Henda henni og kaupa nýja?
annars hef ég aldrei verið í veseni með þetta, safna ekki skrám.
Bý bara til rusla-folder, set allt þar, "rusl" og svo "rusl 2", svo færi ég rusl 2 inn í rusl, og svo rusl inn í "nýtt rusl" og er kominn með svona 20 level af rusli.
hahaha.... það gerist á endanum.
Ég hef annars verið að finna ómetanlegt efni innan um í allri óreiðunni núna þegar ég er að reyna að koma böndum á óreiðuna með því að flokka allt sem ég set á aðalflakkarann (aðalafrit).
Re: Skráarflokkun - besta leiðin?
Sent: Lau 04. Des 2021 08:51
af Hjaltiatla
Gamli góði Tré strúktúrinn hentar mér vel.
Er með Lýsandi möppur í rótinni (t.d fjármál,lærdómur ,ljósmyndir,atvinna og svo framvegis).
Ég bý síðan til undirmöppur með lýsandi nöfnum og það er auðvelt að teygja möppu strúkturinn út eftir þörfum.
Stundum getur meikað sense að búa til undirmöppur með ártali/dagsetningu ef það á við undir þeim lið sem það tilheyrir
Nokkur dæmi um það sem ég myndi gera:
Lærdómur >> framhaldsskóli >> fyrsta önn
Lærdómur >> Háskóli >> fyrsta önn
Fjármál >>Mín fjármál >> Húsnæðislán og reikningar
Tek það fram að ég geri mikinn greinarmun á mikilvægum skjölum (sem ég vista í Onedrive) og t.d Plex gögn sem eru vistuð á HDD ég myndi ekki sakna ef gögn tapast.
það hentar ekki að vista allar upplýsingar í Onedrive í skjöl en það er "Mín rót" og ég nota T.d Notion samhliða Onedrive sem stað sem ég skjala upplýsingar.
Re: Skráarflokkun - besta leiðin?
Sent: Lau 04. Des 2021 13:07
af brain
Prenta út og geymi í möppu !
Re: Skráarflokkun - besta leiðin?
Sent: Lau 04. Des 2021 16:58
af Gorgeir
Ég veit ekki hversu margar "Strau ártal" ég er með. Og skóli, skóli2 og svo framvegis..
Ég get því ekki hjálpað en ég skil þig mjög vel með óreiðuna.
En svo er ég með Plex serverinn minn virkilega vel skipulagðan. Priorities