Síða 1 af 1
100 pund 1982 í 100 pund 2021
Sent: Sun 14. Nóv 2021 17:27
af emil40
Sælir félagar
Er einhver sem getur hjálpað mér að reikna út hvað 100 pund árið 1982 væri mikið í dag ?
Re: 100 pund 1982 í 100 pund 2021
Sent: Sun 14. Nóv 2021 17:30
af ColdIce
286 ca held ég
Re: 100 pund 1982 í 100 pund 2021
Sent: Sun 14. Nóv 2021 17:41
af rapport
Re: 100 pund 1982 í 100 pund 2021
Sent: Sun 14. Nóv 2021 18:21
af dadik
Sýnist þetta vera rétt hjá rapport. Hlutur sem kostaði 100 pund 1982 ætti að kosta um 370 pund í dag ef tekið er tillit til verðbólgu.
Re: 100 pund 1982 í 100 pund 2021
Sent: Mán 15. Nóv 2021 10:14
af dabbihall
þetta er reiknað svona (gengi_t2/gengi_t1) * verð_t1 = verð_t2
í þessu tilfell var gengi_t2 = 1,187.596, gengi_t1 = 320.400, og verð_t1 = 100
(1,187.596/320.400) * 100 = 370,66
Re: 100 pund 1982 í 100 pund 2021
Sent: Mán 15. Nóv 2021 15:13
af appel
Ætli það sé hægt að reikna íslensku krónuna svona
500 kr þá = 40.000 í dag?
gömul grein:
https://www.vb.is/frettir/verdgildi-pen ... 981/97541/
Re: 100 pund 1982 í 100 pund 2021
Sent: Mán 15. Nóv 2021 15:19
af wicket
Hagstofan er með verðlagsreiknivél :
https://hagstofa.is/verdlagsreiknivel
Þannig kostar krónuhlaup, þegar maður fékk eitt hlaup á 1kr þegar maður keypti bland í poka 8 kr. í dag
Re: 100 pund 1982 í 100 pund 2021
Sent: Mán 15. Nóv 2021 19:36
af rapport
500kr. 1982 = 18.925kr. í dag = 37,85 földun... WTF!!! = 10 sinnum meiri rýrnun á krónunni en pundinu.
ISK er svo mikill rusl gjaldmiðill og það er verið að taka neytendur í rassgatið því að þessi rýrnun fer beint í vístöluna og vextina = við munum aldrei komast hjá því að borga fyrir þetta fyrr en gjaldmiðillinn verður stöðugur eða skipt út.
https://hagstofa.is/verdlagsreiknivel
Re: 100 pund 1982 í 100 pund 2021
Sent: Mán 15. Nóv 2021 20:29
af Manager1
rapport skrifaði:500kr. 1982 = 18.925kr. í dag = 37,85 földun... WTF!!! = 10 sinnum meiri rýrnun á krónunni en pundinu.
ISK er svo mikill rusl gjaldmiðill og það er verið að taka neytendur í rassgatið því að þessi rýrnun fer beint í vístöluna og vextina = við munum aldrei komast hjá því að borga fyrir þetta fyrr en gjaldmiðillinn verður stöðugur eða skipt út.
https://hagstofa.is/verdlagsreiknivel
Þegar íslenska krónan var stofnuð var verðgildi hennar jafnt dönsku krónunni. Núna þarftu 20 íslenskar krónur til að jafnast á við eina danska en það er búið að skera nokkur núll aftan af íslensku krónunni í gegnum tíðina þannig að í raun þarftu 2000 íslenskar krónur til að jafnast á við eina danska.
Þannig að já, íslenska krónan er algjört rusl
Re: 100 pund 1982 í 100 pund 2021
Sent: Þri 16. Nóv 2021 00:44
af emil40
er gengisfellingin inn í þessari upphæð með pundið ?
Re: 100 pund 1982 í 100 pund 2021
Sent: Þri 16. Nóv 2021 01:53
af Nariur
Það er í stórum dráttum ekkert að þessari auka verðbólgu, þar sem tekjur aukast í takt við verðlagið. Svo lengi sem hlutfallið á milli tekna og útgjalda helst er tölulegt verðgildi gjaldmiðilsins algert aukaatriði. Það sést glögglega á því að við erum ekki 2000 sinnum fátækari en DK.
Smærri atriðin varðandi verðbólgustig er svo bara fyrir hagfræðinga að rökræða.
Íslenska krónan hefur margoft bjargað á okkur rassgatinu og gert okkur kleift að rífa okkur upp úr kreppum sem hefðu annars keyrt okkur í kaf til lengri tíma. Hún hefur líka galla, en ég HATA þegar fólk tekur bara fyrir nokkra eiginlegka krónunnar, sem eru ekki einu sinni allir gallar og kallar hana rusl.
Krónan veitir okkur frelsi og lipurð, en því fylgir líka töluverður óstöðugleiki. Þetta er ógeðslega flókið og maður þarf VERULEGAN skilning, sem ég þykist ekki hafa, til að geta myndað sér almennilega skoðun á málinu.
Re: 100 pund 1982 í 100 pund 2021
Sent: Þri 16. Nóv 2021 08:04
af Hizzman
Nariur skrifaði:
Íslenska krónan hefur margoft bjargað á okkur rassgatinu og gert okkur kleift að rífa okkur upp úr kreppum sem hefðu annars keyrt okkur í kaf til lengri tíma.
Vandræðin sem krónan hefur bjargað okkur úr hafa að jafnaði verið VEGNA íslensku óstöðugu örmyntarinnar.
Re: 100 pund 1982 í 100 pund 2021
Sent: Þri 16. Nóv 2021 10:15
af GullMoli
Pínu off topic umræða en já, þó svo að krónan hafi "rýrnað" miðað við aðra gjaldmiðla, þá hafa launin hækkað töluvert á móti. Þekki nokkra sem fóru til Svíþjóðar í meistaranám en komu svo aftur til Íslands því laun og kaupmáttur var meiri hér en þar.
Einnig skil ég þetta þannig að íslenska krónan og frelsið sem fylgir henni hafi gert hagkerfinu (aðgerðir Seðlabankans, t.d. áhrif á gengið) að jafna sig eftir hruninu mikið fyrr en önnur smáríki sem eru í evrópusambandinu með sína evru og þar af leiðandi kvaðir sem fylgja henni (t.d. Grikkland sem er ennþá að að ströggla).
Sjá t.d.:
https://www.independent.co.uk/news/busi ... 29085.html