Síða 1 af 1

DMCA fyrir íslenska aðila?

Sent: Mán 08. Nóv 2021 15:10
af gRIMwORLD
Hvert snúa frettamiðlar sér þegar íslenskar vefsíður eru að scrape'a heilu fréttirnar, ss stela þeim?

Er eitthvað í líkingu with DMCA hér á landi?

Dæmi: fjarkinn.is

Engar contact upplýsingar virka og 1984 neita að gefa upp hver er aðilinn á bakvið síðuna. Isnic gefur heldur ekki upp neinar upplýsingar.

Re: DMCA fyrir íslenska aðila?

Sent: Mán 08. Nóv 2021 15:41
af ZiRiuS
Er þetta ekki RSS fréttir safnaðar saman? Gætir byrjað á því að loka á RSS ef þú vilt ekki að þetta endi þarna?

Re: DMCA fyrir íslenska aðila?

Sent: Mán 08. Nóv 2021 15:57
af Daz
Láta fjölmiðlanefnd vita, þar sem þetta ætti þá að vera skráður fjölmiðill ?
https://fjolmidlanefnd.is/fjolmidlar/

Re: DMCA fyrir íslenska aðila?

Sent: Mán 08. Nóv 2021 17:28
af codemasterbleep
Lögbannsbeiðni hjá Sýslumanni?

Re: DMCA fyrir íslenska aðila?

Sent: Mán 08. Nóv 2021 18:13
af gRIMwORLD
2. 1984 ehf. áskilur sér allan rétt til að slökkva á eða hamla notkun á þjónustu áskrifanda, tímabundið eða endanlega, ef 1984 ehf. álítur að: 1) notkun áskrifanda á þjónustunni valdi, eða geti valdið, truflunum á rekstri þjónustu annarra notenda í deildri hýsingu, 2) vefur eða þjónusta áskrifanda hafi verið "hökkuð" eða sé af einhverjum ástæðum undir stjórn annarra en áskrifanda sjálfs, 3) að verið sé að brjóta lög eða siðferðisviðmið sem 1984 ehf. telur eðlilegt að gera kröfu um að virt séu af áskrifendum hverju sinni.
Greinilegt að það vantar DMCA take down möguleika hér á landi sem þvingar hosting aðila til að enforca skilmálana sína.

Re: DMCA fyrir íslenska aðila?

Sent: Mán 08. Nóv 2021 19:32
af appel
Google gerir það sama, screipar vefinn. Franskir fjölmiðlar fóru í mál, en endaði með einhverju samkomulagi. Þetta er eilífðarbras, svona virkar netið bara. Ég hef alveg lent í því að heilu vefunum sem ég hef búið til er bara stolið, logoum, texta, hugverki einsog kóða libraries og hvaðeina. Það er andskotans ómögulegt að eltast yfir landamæri með þetta, nógu erfitt innanlands.

En þeir kalla sig fréttaveitu, og eiga að vera skráðir hjá fjölmiðlastofu, hverjir raunverulegir eigendur eru og svona. Ódýrast að siga Fjölmiðlastofu á þetta með einskonar ábendingu, kvörtun eða viðlíku. Þeim er hinsvegar sama hvort þeir séu að stela af þér.

Re: DMCA fyrir íslenska aðila?

Sent: Mið 10. Nóv 2021 09:47
af oliuntitled
gRIMwORLD skrifaði:
2. 1984 ehf. áskilur sér allan rétt til að slökkva á eða hamla notkun á þjónustu áskrifanda, tímabundið eða endanlega, ef 1984 ehf. álítur að: 1) notkun áskrifanda á þjónustunni valdi, eða geti valdið, truflunum á rekstri þjónustu annarra notenda í deildri hýsingu, 2) vefur eða þjónusta áskrifanda hafi verið "hökkuð" eða sé af einhverjum ástæðum undir stjórn annarra en áskrifanda sjálfs, 3) að verið sé að brjóta lög eða siðferðisviðmið sem 1984 ehf. telur eðlilegt að gera kröfu um að virt séu af áskrifendum hverju sinni.
Greinilegt að það vantar DMCA take down möguleika hér á landi sem þvingar hosting aðila til að enforca skilmálana sína.

Var það ekki þannig að það vantaði lagabókstaf til að geta enforce-að DMCA-type dótarí hér á landi ?
"Ef það er ekki verið að kæra að þá er lítil ástæða til að aðhafast" er lína sem ég fékk í gamla daga þegar tilkynningar um torrent downloads og slíkt byrjuðu að berast.
Megið endilega leiðrétta mig ef ég hef rangt fyrir mér, þetta eru orðin þónokkur ár síðan :)