Síða 1 af 1
Nova hækkar verð á NovaTv
Sent: Mið 20. Okt 2021 19:56
af jonfr1900
Núna kostar NovaTv 490 kr á mánuði ef fólk er ekki í viðskiptum við Nova. Ef fólk er í öðrum viðskiptum við Nova þá kostar NovaTv ennþá 0 kr á mánuði.
Þetta er voðalega algengt í dag. Fyrirtækin bjóða upp á eitthvað sem er ókeypis en fara síðan að rukka fyrir það síðar.
Re: Nova hækkar verð á NovaTv
Sent: Mið 20. Okt 2021 22:49
af Daz
jonfr1900 skrifaði:Núna kostar NovaTv 490 kr á mánuði ef fólk er ekki í viðskiptum við Nova. Ef fólk er í öðrum viðskiptum við Nova þá kostar NovaTv ennþá 0 kr á mánuði.
Þetta er voðalega algengt í dag. Fyrirtækin bjóða upp á eitthvað sem er ókeypis en fara síðan að rukka fyrir það síðar.
Er það ekki líka eðlilegt, fyrirtæki býðir þjónustu og vill í staðinn fá greiðslu? Gott að fá dreifingu/prófun/jákvætt umtal með að dreifa þjónstunni frítt fyrst.
Re: Nova hækkar verð á NovaTv
Sent: Mið 20. Okt 2021 22:50
af GuðjónR
Ég gleymi alltaf þessu appi
Re: Nova hækkar verð á NovaTv
Sent: Fim 21. Okt 2021 00:17
af jonfr1900
Daz skrifaði:jonfr1900 skrifaði:Núna kostar NovaTv 490 kr á mánuði ef fólk er ekki í viðskiptum við Nova. Ef fólk er í öðrum viðskiptum við Nova þá kostar NovaTv ennþá 0 kr á mánuði.
Þetta er voðalega algengt í dag. Fyrirtækin bjóða upp á eitthvað sem er ókeypis en fara síðan að rukka fyrir það síðar.
Er það ekki líka eðlilegt, fyrirtæki býðir þjónustu og vill í staðinn fá greiðslu? Gott að fá dreifingu/prófun/jákvætt umtal með að dreifa þjónstunni frítt fyrst.
Nova Tv var ekki auglýst þannig í upphafi þegar Nova byrjaði með þetta árið 2018.
Nova TV í loftið: Telja myndlykla tilheyra fortíðinni (2018, Fréttablaðið)
Dreifa sjónvarpsefni á Nova TV (mbl.is, 2018)
Re: Nova hækkar verð á NovaTv
Sent: Fim 21. Okt 2021 08:32
af hagur
Ég er búinn að nota NovaTV appið alfarið núna í hátt í 2 ár á öllum tækjum heimilisins og hefur það reynst bara mjög vel (a.m.k ekki síður en afruglararnir). Finnst svosem alveg eðlilegt að Nova vilji fá eitthvað fyrir sinn snúð og græt þennan 490 kall ekki, en þetta verður náttúrulega ekki 490 kall að eilífu.
Re: Nova hækkar verð á NovaTv
Sent: Fim 21. Okt 2021 11:03
af GuðjónR
jonfr1900 skrifaði:Núna kostar NovaTv 490 kr á mánuði ef fólk er ekki í viðskiptum við Nova. Ef fólk er í öðrum viðskiptum við Nova þá kostar NovaTv ennþá 0 kr á mánuði.
Þetta er voðalega algengt í dag. Fyrirtækin bjóða upp á eitthvað sem er ókeypis en fara síðan að rukka fyrir það síðar.
Ég skil alveg að þér finnist þetta pirrandi, en það er líka skiljanlegt að Nova geri þetta svona.
Það kostar helling að búa til svona app og halda því virku.
Þú getur reyndar fengið þér Stöð 2 appið (það er frítt) ef þú ert að leita af appi sem hefur allar ókeypis Íslensku stöðvarnar.
Ef þú vilt nota Nova appið án þess að borga þá eru augljósar leiðir framhjá því.
Getur skráð þig í AppelTV eða á vef og fengið að senda staðfestingar kóða á "vin" sem fær þá kóða í SMS og lætur þig fá og vollah!
Eða farið í viðskipti þar, kemur hvergi fram hversu mikil viðskiptin þurfa að vera. Ættir að geta keypt frelsisnúmer á 1990.- skráð þig í appinu og breytt svo númerinu í krakkafrelsi og haft þetta frítt það sem eftir er...
Ég nota nánast eingöngu RUV appið af þessum Íslensku en skráði mig inn í nýja Nova appið eftir að ég sá póstinn frá þér og það lookar vel svona við fyrstu sýn. Töluverður metnaður lagður í það. Hef ekki notað Nova appið síðan Stöð 2 læsti kvöldfréttunum á sínum tíma.
Re: Nova hækkar verð á NovaTv
Sent: Fim 21. Okt 2021 17:06
af kjartanbj
Ég er með frítt númer hjá Nova og virðist hafa getað fengið þetta til að virka með því, ég nota þetta ekkert samt, konan notar appið svolítið
Re: Nova hækkar verð á NovaTv
Sent: Fim 21. Okt 2021 17:51
af Klemmi
kjartanbj skrifaði:Ég er með frítt númer hjá Nova og virðist hafa getað fengið þetta til að virka með því, ég nota þetta ekkert samt, konan notar appið svolítið
Frítt númer?
Mátt endilega segja mér hvernig, ég er með frelsis númer sem ég legg 1000kall inn á á 6 mánaða fresti, þegar þeir eru farnir að hóta því endanlega að loka númerinu.
Re: Nova hækkar verð á NovaTv
Sent: Fim 21. Okt 2021 17:55
af zetor
er þetta nýja app þeirra fáanlegt á android tv?
Re: Nova hækkar verð á NovaTv
Sent: Fim 21. Okt 2021 18:44
af kornelius
zetor skrifaði:er þetta nýja app þeirra fáanlegt á android tv?
Já og ég er að líka að keyra það á GoogleTV for Chromecast
K.
Re: Nova hækkar verð á NovaTv
Sent: Fim 21. Okt 2021 20:03
af kjartanbj
Klemmi skrifaði:kjartanbj skrifaði:Ég er með frítt númer hjá Nova og virðist hafa getað fengið þetta til að virka með því, ég nota þetta ekkert samt, konan notar appið svolítið
Frítt númer?
Mátt endilega segja mér hvernig, ég er með frelsis númer sem ég legg 1000kall inn á á 6 mánaða fresti, þegar þeir eru farnir að hóta því endanlega að loka númerinu.
Heitir Núll í nova, frítt að hringja og senda SMS en ekkert gagnamagn, er með dual sim síma og fékk mér þetta bara til að vera með síma á báðum síma networkum, aðal númerið mitt er hjá Hringdu
Er síðan með stillt þannig að ef ég er utan þjónustu svæðis á öðru hvoru númerinu þá divertar sjálfvirkt á hitt númerið
Re: Nova hækkar verð á NovaTv
Sent: Fim 21. Okt 2021 23:34
af netkaffi
Klemmi skrifaði:kjartanbj skrifaði:Ég er með frítt númer hjá Nova og virðist hafa getað fengið þetta til að virka með því, ég nota þetta ekkert samt, konan notar appið svolítið
Frítt númer?
Mátt endilega segja mér hvernig, ég er með frelsis númer sem ég legg 1000kall inn á á 6 mánaða fresti, þegar þeir eru farnir að hóta því endanlega að loka númerinu.
Hryllilegur kostnaður.
Re: Nova hækkar verð á NovaTv
Sent: Fös 22. Okt 2021 00:00
af GuðjónR
netkaffi skrifaði:Klemmi skrifaði:kjartanbj skrifaði:Ég er með frítt númer hjá Nova og virðist hafa getað fengið þetta til að virka með því, ég nota þetta ekkert samt, konan notar appið svolítið
Frítt númer?
Mátt endilega segja mér hvernig, ég er með frelsis númer sem ég legg 1000kall inn á á 6 mánaða fresti, þegar þeir eru farnir að hóta því endanlega að loka númerinu.
Hryllilegur kostnaður.
Nú hló ég upphátt!!!
Re: Nova hækkar verð á NovaTv
Sent: Lau 23. Okt 2021 12:01
af emil40
ég er með 5g netið hjá nova allt frítt hérna
Re: Nova hækkar verð á NovaTv
Sent: Þri 26. Okt 2021 22:13
af jardel
Eru engin fri öpp til fyrir íslensku rásirnar þá?
(fyrir þá sem eru ekki í nova)
Re: Nova hækkar verð á NovaTv
Sent: Þri 26. Okt 2021 22:22
af pattzi
Enda fékk það að fjúka úr apple tv .... Nota Stöð 2 Appið bara ef ég þarf ólíklega að horfa á Rúv ....Einusinni í viku núna til að horfa á ófærð.....
Er ekki með Stöð 2 einusinni en appið virkar samt ennþá síðan ég var með stöð 2
Re: Nova hækkar verð á NovaTv
Sent: Mið 27. Okt 2021 12:45
af audiophile
RÚV appið er fínt fyrir RÚV.
Re: Nova hækkar verð á NovaTv
Sent: Fim 28. Okt 2021 00:30
af jonfr1900
jardel skrifaði:Eru engin fri öpp til fyrir íslensku rásirnar þá?
(fyrir þá sem eru ekki í nova)
Það er ekkert fyrir Sjónvarp Símans nema í áskrift hjá þeim. Þú getur notað Rúv appið til að ná Rúv og útvarpinu.
Re: Nova hækkar verð á NovaTv
Sent: Fös 29. Okt 2021 08:04
af depill
jardel skrifaði:Eru engin fri öpp til fyrir íslensku rásirnar þá?
(fyrir þá sem eru ekki í nova)
Stöð 2 appið er enn frítt fyrir alla