Síða 1 af 1
Farsíminn mun virka allstaðar fljótlega (verður líklega dýrt)
Sent: Mið 29. Sep 2021 21:06
af jonfr1900
Það er kominn fram ný tækni sem leyfir að farsíminn virki hvar sem er ef það eru ekki neinar landstöðvar nálægt. Þetta er gert með gervihnöttum í lágri sporbraut um Jörðu. Hvernig þetta virkar veit ég ekki og það er ekki gefið upp hvaða tíðni er notuð en ég get ímyndað mér að þetta þurfi að eiga við leyfisvandamál á þeim tíðnisviðum sem farsímar nota og eru allstaðar í mikilli notkun. Það kemur einnig ekki fram hvaða tækni er notuð en ég reikna með að þetta sé takmarkað við 2G mögulega. Kannski 4G?.
Lynk demos global satellite connection for ordinary phones and prepares for commercial launch
Re: Farsíminn mun virka allstaðar fljótlega (verður líklega dýrt)
Sent: Mið 29. Sep 2021 21:36
af ZiRiuS
Yay fleiri gervihnettir... Þarf ekkert leyfi að punga þessu upp í loftið?
Re: Farsíminn mun virka allstaðar fljótlega (verður líklega dýrt)
Sent: Mið 29. Sep 2021 21:42
af Sam
Eina númerið sem mér dettur í hug að þyrfti að hringja í þar sem GSM netvork nær ekki, er 112
Re: Farsíminn mun virka allstaðar fljótlega (verður líklega dýrt)
Sent: Mið 29. Sep 2021 22:55
af beggi83
Sam skrifaði:Eina númerið sem mér dettur í hug að þyrfti að hringja í þar sem GSM netvork nær ekki, er 112
Þá velti ég því fyrir mér hvort Neyðarlínan geti fundið út staðsetningu hvaðan hringt er ef þetta er svona neyðarkall frá sjó og hver sec skipti máli?
Re: Farsíminn mun virka allstaðar fljótlega (verður líklega dýrt)
Sent: Mið 29. Sep 2021 23:08
af oliuntitled
beggi83 skrifaði:Sam skrifaði:Eina númerið sem mér dettur í hug að þyrfti að hringja í þar sem GSM netvork nær ekki, er 112
Þá velti ég því fyrir mér hvort Neyðarlínan geti fundið út staðsetningu hvaðan hringt er ef þetta er svona neyðarkall frá sjó og hver sec skipti máli?
Þeir hjá neyðarlínunni hafa haft orð á því að í gamla daga þá voru björgunarsveitir og aðrir viðbragðsaðilar að leita að fólki sem hringdi í neyð en í dag eru þeir að sækja þau.
Neyðarnúmerin fá GPS upplýsingar frá snjalltækjum sem eru með slíkt skilst mér, enda er eðli neyðarnúmera frekar universal.
EDIT: Fann þetta, á von á því að kerfið hér virki á svipaðann máta -
https://en.wikipedia.org/wiki/999_%28em ... 9#Location
Re: Farsíminn mun virka allstaðar fljótlega (verður líklega dýrt)
Sent: Fim 30. Sep 2021 11:47
af thrkll
oliuntitled skrifaði:beggi83 skrifaði:Sam skrifaði:Eina númerið sem mér dettur í hug að þyrfti að hringja í þar sem GSM netvork nær ekki, er 112
Þá velti ég því fyrir mér hvort Neyðarlínan geti fundið út staðsetningu hvaðan hringt er ef þetta er svona neyðarkall frá sjó og hver sec skipti máli?
Þeir hjá neyðarlínunni hafa haft orð á því að í gamla daga þá voru björgunarsveitir og aðrir viðbragðsaðilar að leita að fólki sem hringdi í neyð en í dag eru þeir að sækja þau.
Neyðarnúmerin fá GPS upplýsingar frá snjalltækjum sem eru með slíkt skilst mér, enda er eðli neyðarnúmera frekar universal.
EDIT: Fann þetta, á von á því að kerfið hér virki á svipaðann máta -
https://en.wikipedia.org/wiki/999_%28em ... 9#Location
Neyðarlínan á Íslandi fær AML (
Advanced Mobile Location) sent með hverju mótteknu símtali úr nýlegum farsíma (eftir 2014-2018). Síminn sem er hringt úr sendir sjálfvirkt GPS punkt með skekkjumörkum sem fæst úr GPS búnaði símans. Mér skilst að þessi staðsetning sé að vísu oft og tíðum ekki upp á marga fiska. Það á væntanlega sérstaklega við í þéttbýli þar sem er verið að hringja innan úr steyptum húsum og skekkjumörkin geta innihaldið ansi mörg heimilisföng. Það kæmi mér ekki á óvart ef Neyðarlínan fái líka (lélegar) þríhyrningamælingar frá farsímamöstrum ef AML virkar ekki.
Hvað varðar leit viðbragðsaðila í óbyggðum/sjó, þá held ég að þetta sé ekkert úrslitaatriði. Ef einstaklingurinn er á annað borð með hlaðinn síma og í sambandi þá getur hann væntanlega lýst því hver staðsetning hans er nokkuð vel, með eða án AML.