Síða 1 af 1
Rafmagnaður tölvukassi, vandamál?
Sent: Fim 02. Sep 2021 20:04
af DoofuZ
Ég er með rafmagn tengt beint í disk í opnum tölvukassa því ég var að bjarga gögnum af disknum yfir á ðara tölvu í gegnum usb þar sem diskurinn er eitthvað að klikka. Núna er bara rafmagnið tengt, diskurinn er í gangi, og þegar ég snerti kassann þá finn ég að hann er svoldið létt rafmagnaður. Ég fæ ekki stuð af því að snerta en ég finn fyrir rafmagninu. Hvað er að orsaka þetta? Er diskurinn að leiða út? Er ekki jarðtengt í rafmagnssnúrunni sem fer í diskinn? Þarf ég að hafa áhyggjur af þessu?
Fann það sama við að snerta fartölvu sem ég var að fikta í um daginn.
Re: Rafmagnaður tölvukassi, vandamál?
Sent: Fim 02. Sep 2021 21:56
af Hausinn
Áttu AVO mæli? Prufaðu að mæla leiðni frá jörð í einhverjum tengli að kassa.
Re: Rafmagnaður tölvukassi, vandamál?
Sent: Fim 02. Sep 2021 22:44
af russi
Hausinn skrifaði:Áttu AVO mæli? Prufaðu að mæla leiðni frá jörð í einhverjum tengli að kassa.
Þetta!
Þú ert ekki að fá jarðtenginu, eru tenglarnir heima hjá þér með jörð?
Fyrst þetta er að gerast á tveimur vélum eða voru þær tengdar í sama fjöltengið og það er ekki með jörð?
Kemur þetta ekki fram sem svona einhvers konar suð/vibringur þegar þú snertir þetta? Ekki þægilegt en ekki beint óþægilegt. Soldið erfit að finna réttu orðin til að lýsa þessu
Re: Rafmagnaður tölvukassi, vandamál?
Sent: Fös 03. Sep 2021 00:47
af DoofuZ
Hausinn skrifaði:Áttu AVO mæli? Prufaðu að mæla leiðni frá jörð í einhverjum tengli að kassa.
Nei, á engan AVO mæli, veit varla hvað það er
russi skrifaði:Fyrst þetta er að gerast á tveimur vélum eða voru þær tengdar í sama fjöltengið og það er ekki með jörð?
Kemur þetta ekki fram sem svona einhvers konar suð/vibringur þegar þú snertir þetta? Ekki þægilegt en ekki beint óþægilegt. Soldið erfit að finna réttu orðin til að lýsa þessu
Það er nákvæmlega svona víbringur sem maður finnur við snertingu. Fartölvan sem ég fann þetta á var ekki heima hjá mér svo það var ekki tengt við sama fjöltengi og diskurinn/tölvan. Ætla að prófa önnur fjöltengi á morgun, sjá hvort það breyti einhverju.
Er það s.s. málið að fjöltengið sé ekki með jörð? Getur það verið slæmt fyrir tölvur sem tengdar eru við það?