Síða 1 af 1
Verðlag hjá íslenskum tölvunotendum
Sent: Þri 31. Ágú 2021 01:08
af Borð
Hvað er að frétta með menn sem leyfa sér bara að verðleggja eldgamlar tölvur á sama og þeir keyptu þær á fyrir 5-6 árum??
Dæmi:
Re: Verðlag hjá íslenskum tölvunotendum
Sent: Þri 31. Ágú 2021 08:06
af Hausinn
Það er frekar mikið í þessum pakka, svo þetta er ekki BRJÁLÆÐISLEGA mikið, en samt of mikið. Myndi segja sanngjarnt verð sé svona 180þús fyrir allt.
Re: Verðlag hjá íslenskum tölvunotendum
Sent: Þri 31. Ágú 2021 08:19
af DaRKSTaR
menn verðleggja hluti oft dýrt, það er ekki þar með sagt að þetta seljist.
Re: Verðlag hjá íslenskum tölvunotendum
Sent: Þri 31. Ágú 2021 08:28
af appel
Doldið mikið í þessum pakka, erfitt að verðleggja svona.
En flestir eru þó ekki í þeim startholunum að eiga ekki einu sinni lyklaborð og mús, hvað þá stól, eða skjá. Þannig að þetta er mjög persónubundið.
Ef einhver á ekkert og vill fara all-in í PC gaming og svona PC productivity umhverfi, þá er þetta fínn díll finnst mér. ólíklegt að hægt sé að prútta niður í 180 þús, kannski 230-240 þús. (myndi einnig biðja um skjáfestinguna)
Myndi ekki borga meira en 200 þús.
Re: Verðlag hjá íslenskum tölvunotendum
Sent: Þri 31. Ágú 2021 09:18
af Dr3dinn
Myndi ekki borga krónu yfir 120þ fyrir kassann persónulega, orðið eldgamlt...svo hitt telur alveg svona skjár er 10-15þ virði í dag. (144hz), auka skjár 5-10þ. Lyklaborð og mús 10-20þ, leikjastólar eru algjört drasl 5þ.
Þannig 180þ hjá appel er gott bet sko.
Re: Verðlag hjá íslenskum tölvunotendum
Sent: Þri 31. Ágú 2021 12:29
af brain
Fólk hlýtur að mega auglýsa vöru sína á hvaða verði sem því þóknast, sérstaklega í einhverjum Facebook hópi.
Það er síðan tilvonandi kaupanda að gagnrýna og finna að.
Skil ekki hvað er að þarna....
Re: Verðlag hjá íslenskum tölvunotendum
Sent: Þri 31. Ágú 2021 12:45
af rapport
Sammála 200þ. verðmiðanum.
Það er sumt svona aukastöff sem fylgir, mús, lyklaborð o.þ.h sem er nánast rekstrarvara og á að afskrifa 70-90%, að kaupa notaðan stól er næstum eins og að kaupa notað rúmm.
Sumt er bara "sveittara" en annað og á að afskrifast m.t.t. þess.
Re: Verðlag hjá íslenskum tölvunotendum
Sent: Þri 31. Ágú 2021 12:46
af rapport
brain skrifaði:Fólk hlýtur að mega auglýsa vöru sína á hvaða verði sem því þóknast, sérstaklega í einhverjum Facebook hópi.
Það er síðan tilvonandi kaupanda að gagnrýna og finna að.
Skil ekki hvað er að þarna....
Að ræða verðlagningu á notuðu dóti á þessum spjallborði... er nánast tilgangur þessa spjallborðs... finnst mér.
Re: Verðlag hjá íslenskum tölvunotendum
Sent: Þri 31. Ágú 2021 12:54
af appel
rapport skrifaði:Sammála 200þ. verðmiðanum.
Það er sumt svona aukastöff sem fylgir, mús, lyklaborð o.þ.h sem er nánast rekstrarvara og á að afskrifa 70-90%, að kaupa notaðan stól er næstum eins og að kaupa notað rúmm.
Sumt er bara "sveittara" en annað og á að afskrifast m.t.t. þess.
Já, rétt.
Mús = 2 þús kr virði (mýs endast mjög stutt núorðið)
Lyklaborð = 5-6 þús kr virði
2 FHD skjáir = 2x10 þús = 20 þús
stærri skjárinn = 30 þús
stóll = 5 þús
skjáfesting = 5 þús
tölvan = 120 þús
þannig að þetta kemur kannski út á 187 þús.
Re: Verðlag hjá íslenskum tölvunotendum
Sent: Þri 31. Ágú 2021 12:58
af gRIMwORLD
Eins og svo oft áður þá er engin sérstök regla varðandi hvað "megi" verðleggja notaðar vörur á. Seljandi setur upp verð sem fellur undir hans væntingar, tilvonandi kaupendur bjóða þá bara lægra ef þeim finnst það of hátt. Ef þeir sem eru að leita að tölvubúnaði á lægra verði ná ekki samkomulagi með seljanda þá er það bara þannig. Hvað fólk er "tilbúið" að greiða fyrir notaðan búnað og hvað fólk "ætti" að greiða fyrir notaðan búnað er eins og rapport hér að ofan bendir á....tilgangurinn með spjall.vaktin.is. Það verður samt hver og einn að taka eigin ákvörðun og ábyrgð í sínum kaupum.
Re: Verðlag hjá íslenskum tölvunotendum
Sent: Þri 31. Ágú 2021 13:16
af brain
rapport skrifaði:brain skrifaði:Fólk hlýtur að mega auglýsa vöru sína á hvaða verði sem því þóknast, sérstaklega í einhverjum Facebook hópi.
Það er síðan tilvonandi kaupanda að gagnrýna og finna að.
Skil ekki hvað er að þarna....
Að ræða verðlagningu á notuðu dóti á þessum spjallborði... er nánast tilgangur þessa spjallborðs... finnst mér.
Já á Vaktini finnst mér, en á einhverri FB grúppu eða Bland... skil ekki hvað það kemur Vaktini við.
Re: Verðlag hjá íslenskum tölvunotendum
Sent: Þri 31. Ágú 2021 18:40
af Gorgeir
Þetta er ein af ástæðum að þegar mig vantar notaðan part þá kem ég alltaf á vaktina. Þar er miklu skynsamlegra verð (oftast) og ef ekki þá kemur einhver lögga og segir frá ef of hátt er verðlagt. Hinsvegar taka ekki alltaf allir vel í það.
Það sem er á bland eða Facebook er oft hátt verðlagt og ekki séns að prútta eða að ná að tala við viðkomandi á sanngjarnan hátt og reyni ég það varla lengur.
Re: Verðlag hjá íslenskum tölvunotendum
Sent: Þri 31. Ágú 2021 19:44
af ColdIce
Þetta er ekkert verð fyrir þennan pening