Síða 1 af 1
Nvidia og Ati kapphlaupið
Sent: Lau 22. Okt 2005 23:01
af Pepsi
Kveldið, ég hef verið að spá og spekulera síðustu daga, skoða nýjustu ati línuna á móti 7800 línunni frá Nvidia, svo eru einhverjir tech hausar að segja aðð Nvidia sé einfaldlega búið að taka titilinn og Ati séu búnir að vera, Eftir að F.E.A.R kom út þá hefur þessi umræða magnast mikið, þá er ég að tala um að Nvidia eigi titilinn og Ati sé history, ég er sjálfur stoltur eigandi af x800xt og á svolítið erfitt með að kyngja því að ati sé búið að vera, hvað segið þið??
Sent: Lau 22. Okt 2005 23:03
af hahallur
Af hverju finnst mér óþægilegt að lesa alla þræði sem þú skrifar.
use , . and greinaskil.
oG eftir að hafa lesið þetta bull verð ég að segja að þetta er alrangt því að X1800 XT er ekkert verra en 7800 GTX þó ATI hefðu jú átt að koma með betra kort.
Sent: Lau 22. Okt 2005 23:17
af Stutturdreki
ATI er ekki 'búið að vera' sem slíkt, en nýju x1800 kortinn þeirra eru bara ekkert að slá 7800 línuna út. x1800xt er að skora mjög svipað og 7800gtx, og x1800xl er að skora svipað og 7800gt.
Sent: Sun 23. Okt 2005 01:32
af Pepsi
Hahallur?? óþægilegt? greinarskil? Samkvæmt einhverju sem maður lærði í grunnskóla þá notar maður ekki greinaskil nema að maður sé að fara útfyrir það sem maður er að ræða eða skrifa. Allavega minnir mig það.

Sent: Sun 23. Okt 2005 03:19
af kristjanm
ATI X1800XT kortið kom of seint og er ekki nógu gott að mínu mati.
Svo finnst mér X1600XT ekki nógu gott heldur.
En svona er þetta bara núna. ATI er ekkert búið að vera, nVidia sigruðu bara þessa lotu

Sent: Sun 23. Okt 2005 06:37
af CendenZ
miðað við gæði og hraða x1800 er það um 15-20 þús of dýrt.
þetta er ekki sanngjarnt miðað við kort á sama prís.
Sent: Sun 23. Okt 2005 12:57
af hahallur
Pepsi skrifaði:Hahallur?? óþægilegt? greinarskil? Samkvæmt einhverju sem maður lærði í grunnskóla þá notar maður ekki greinaskil nema að maður sé að fara útfyrir það sem maður er að ræða eða skrifa. Allavega minnir mig það.

Þetta er forums ekki ritgerð eða saga.
Sérðu póstinn fyrir neðan þinn, svona á póstur á forums að vera.
Sent: Sun 23. Okt 2005 21:30
af Pepsi
Ok kallinn ég skal gera þetta betur.

Sent: Sun 23. Okt 2005 23:05
af wICE_man
X1800XT er sennilega hraðasta kortið á markaðnum þegar kemur að DirectX, 7800GTX er hraðast í OpenGL.
Sent: Sun 23. Okt 2005 23:15
af ICM
Afhverju er fólk alltaf svona upptekið af OpenGL? LANG flestir leikir nota D3D

Sent: Mán 24. Okt 2005 13:20
af Stebet
Ég hef aldrei skilið af hverju menn halda að þessi fyrirtæki séu eitthvað búin að vera þó það komi ekki út ein lína sem gjörsamlega rústar hinum aðilanum. Þó ég sé Nvidia maður þá efast ég ekki um að Ati eiga nóg eftir í pokahorninu.
ekki gleyma að Ati eiga eftir að fá nóg af pening úr Xbox360 sölum (og Nvidia af Playstation 3 sölum) þannig að það á nóg eftir að gerast hjá þessum fyrirtækjum næstu árin.
3Dfx fór aðallega á hausinn á sínum tíma afþví þeir tóku upp á því einstaklega vitlausa uppátæki að fara bæði í þróun OG framleiðslu á kortum aleinir (eitthvað sem Ati höfðu vit á að hætta, enda hefur þeim gengið mjög vel síðan).
Nvidia og Ati einfaldlega skiptast á vinna lotur og eiga eflaust eftir að gera áfram næstu árin.
Varðandi OpenGL, þá er augljóst af hverju OpenGL skiptir svona miklu máli fyrir hinn almenna notanda ennþá. ID Software (Doom og Quake)! Ef ekki væri fyrir þá væri OpenGL ekki notað í neina leiki heldur bara professional rendring og CAD apps.
Sent: Mán 24. Okt 2005 13:49
af hilmar_jonsson
Það er reyndar eitt sem ég sé við ATI sem mér finnst heillandi. Nýja línan þeirra virðist styðja þrjá skjái hvert kort(triple view) og jafnvel fleiri með crossfire. Fer ég ekki örugglega með rétt mál?
Sent: Mán 24. Okt 2005 14:06
af Stutturdreki
hilmar_jonsson skrifaði:Það er reyndar eitt sem ég sé við ATI sem mér finnst heillandi. Nýja línan þeirra virðist styðja þrjá skjái hvert kort(triple view) og jafnvel fleiri með crossfire. Fer ég ekki örugglega með rétt mál?
Hmm.. þau virðast bara vera með tvo DVI og eitt TV-out.
Sent: Mán 24. Okt 2005 14:45
af Yank
Ég keypti 7800GT nýlega. Varð einfaldlega fyrir valinu því ég gafst upp á að bíða eftir ATI. Síðustu 2 kort sem ég hef átt hafa verið ATI.
Mikið svakalega sakna ég ATI catalyst driver support.