Síða 1 af 1

Netflix eykur bannið gegn VPN

Sent: Fim 12. Ágú 2021 17:44
af jonfr1900
Netflix er að auka bannið gegn VPN og bannar að því virðist staðbundnar IP tölur sem koma frá internet þjónustum. Ég reikna með að þetta séu A - B og C blokkir. Spurning hvernig áhrifin af þessu verða á Íslandi.

Netflix Intensifies ‘VPN Ban’ and Targets Residential IP-addresses Too (Updated) (Torrentfreak)

Re: Netflix eykur bannið gegn VPN

Sent: Fim 12. Ágú 2021 18:34
af Semboy
so now they're being more aggressive they're getting more of the false positives (IPs wrongly identified as VPN endpoints)
Hljómar eins og Netflix veit þetta er ekki endanlegt lausn. Allavega geta þessir þekktustu vpn ip addressur þaggað í smátíma.

Edit: Og hver veit kannski þetta nýja svæði sem þau voru að banna verður meira
árangursrík enn það siðasta.

Re: Netflix eykur bannið gegn VPN

Sent: Fim 12. Ágú 2021 18:40
af Revenant
Mér sýnist þetta vera beint að proxy þjónustum (s.s. infatica eða brightdata) sem lætur traffíkina koma frá endanotendum í ákveðnu landi (aðallega BNA).
Þessi (spyware) hugbúnaður er settur inn í t.d. VPN client-a eða chrome extensions.

Dæmi:
Notandi A notar VPN þjónustu og er staðsettur í BNA.
Notandi B í ESB vill horfa á Netflix í BNA og notar VPN með exit nóðu í BNA en þá er Netflix traffíkinni rútað í gegnum nettengingu Notanda A.

Þá virðist Netflix traffík "B" koma frá nettengingu "A" en það er Netflix að reyna að loka á.

Re: Netflix eykur bannið gegn VPN

Sent: Fös 13. Ágú 2021 10:33
af beatmaster
Þeir eru búnir að gera þetta miklu erfiðara undanfarið, þeir eru líka orðnir betri með það að þú færð oft ekki upp Proxy villu en sérð ekki efnið í landinu sem að þú ert skráður í, það bara birtist ekki, eins og þú værir ekki VPN-aður inn.

Éger búinn að nota ExpressVPN í mörg ár með góðum árangri en það er hætt að virka almennilega núna, prófaði NordVPN sem virkar ila og StreamLocator sem virkar ekki neitt.

Er að spá í hvort að ég geti sett upp minn eiginn vpn þjón, þá leigja VPS og keyra VPN hugbúnað á honum en gallinn kanski er að ég vil auðveldlega getað svissað á milli landa, vitið þið hvort að eitthvað svona sé mögulegt?

Re: Netflix eykur bannið gegn VPN

Sent: Fös 13. Ágú 2021 11:43
af Revenant
beatmaster skrifaði:Þeir eru búnir að gera þetta miklu erfiðara undanfarið, þeir eru líka orðnir betri með það að þú færð oft ekki upp Proxy villu en sérð ekki efnið í landinu sem að þú ert skráður í, það bara birtist ekki, eins og þú værir ekki VPN-aður inn.

Éger búinn að nota ExpressVPN í mörg ár með góðum árangri en það er hætt að virka almennilega núna, prófaði NordVPN sem virkar ila og StreamLocator sem virkar ekki neitt.

Er að spá í hvort að ég geti sett upp minn eiginn vpn þjón, þá leigja VPS og keyra VPN hugbúnað á honum en gallinn kanski er að ég vil auðveldlega getað svissað á milli landa, vitið þið hvort að eitthvað svona sé mögulegt?
Held að Netflix sé búinn að blokka IP range flestra VPS þjónustna enda koma endanotendur ekki frá þeim netum.

Re: Netflix eykur bannið gegn VPN

Sent: Fös 13. Ágú 2021 12:19
af Tbot
Þetta er svipað og region læsingin var á DVD diskunum.

Framleiðendur voru með misjafnt verð í gangi eftir svæðum og mismunandi útgáfutíma.