Síða 1 af 1
eVGA eða MSI 6600GT kort?
Sent: Þri 11. Okt 2005 19:06
af corflame
Jæja, þá er komið að því að velja hlutina í pakkann, búinn að nurla fyrir
(nánast) öllu sem mig langar í.
Er að velta fyrir mér hvort ég eigi að taka eVGA kortið hjá Start
http://start.is/product_info.php?cPath= ... ts_id=1162
eða MSI kortið hjá ATT
http://www.att.is/product_info.php?cPat ... ts_id=1292
Ekki bara segja annað hvort því þið fílið það betur, heldur færið rök fyrir
máli ykkar, t.d. með því að gefa upp URL
Sent: Þri 11. Okt 2005 19:25
af Blackened
sko.. ég veit ekki mikið um eVGA kortið
En MSI kortið er tiltörulega hljóðlátt.. ég á þannig
Sent: Þri 11. Okt 2005 19:27
af kristjanm
Ég er líka með MSI kortið og ég er mjög sáttur við það, hljóðlátt og gott.
Sent: Þri 11. Okt 2005 22:16
af Mumminn
vinur minn er með svona kort.. hann er alveg heví sáttur
Sent: Fim 13. Okt 2005 01:04
af corflame
Ætli ég fái mér þá ekki MSI kortið, virðist enginn eiga hitt

Sent: Fim 13. Okt 2005 07:49
af gnarr
eVga hafa fengið alveg svakalega góða dóma.
Sent: Fim 13. Okt 2005 14:39
af corflame
Annaðhvort er ég ekki að finna þessi sömu review eða ég er að lesa annað
út úr þeim en aðrir. Í þessu sem ég hef séð þá er alltaf verið að tala um
bang/buck, en ég get ekki betur séð en að þessi kort séu ekki að performa
mikið betur en önnur sambærileg. Eina sem þau hafa stöðugt fram yfir
önnur er að þau eru ódýrari og þá í USA.
Nú vill svo til að MSI kortin eru ódýrari hérlendis, þannig að maður verður
enn meira ringlaður en áður

Sent: Fim 13. Okt 2005 15:13
af Pandemic
eVGA
Sent: Fös 14. Okt 2005 08:11
af gnarr
Sent: Fös 14. Okt 2005 09:28
af kristjanm
Hann er að tala um 6600GT
Framleiðendur geta lagt mikið meira í high-end kortin heldur en mid-range kort eins og 6600GT.
En annars eru bæði kortin örugglega alveg mjög fín. Ég er allavega mjög sáttur við MSI kortið.
Sent: Sun 16. Okt 2005 01:51
af wICE_man
kristjanm skrifaði:Hann er að tala um 6600GT
Framleiðendur geta lagt mikið meira í high-end kortin heldur en mid-range kort eins og 6600GT.
En annars eru bæði kortin örugglega alveg mjög fín. Ég er allavega mjög sáttur við MSI kortið.
Að sama skapi ættu MSI að leggja mikið í High-end kortin sín

Sent: Sun 16. Okt 2005 15:51
af kristjanm
Ég veit það.
En það segir samt ekki mikið um 6600GT.
Sent: Mán 17. Okt 2005 10:48
af wICE_man
Nei, bara um framleiðandan og Evga hefur betra orðspor í skjákortunum en MSI. MSI kortið þykir lágvært en það keyrir líka frekar heitt, í prófunum hjá TrustedReviwes hrundi SLI setup vegna þess hita sem kortin mynduðu, þau gátu ekki kælt sig nóg. Anandtech lenti í enn veri málum með sitt eintak sem var að fara upp í 110°C, en þeir voru víst með eitthvað misheppnað eintak að þeirra sögn. Bara vert að hafa í huga.
Bæði þessi kort hafa fengið frábæra dóma, Evga hentar betur til yfirklukks og ef kassinn er ekki vel loftræstur, MSI er hljóðlátara.
Sent: Þri 18. Okt 2005 01:28
af corflame
Gott að vita, verst að ég get ekkert gert með það akkúrat núna. Lenti í því
að missa 2 diska hvorn á eftir öðrum og kaup á nýjum fóru með of mikið
af peningnum sem ég var búinn að nurla saman fyrir uppfærslunni
Mæli ekki með Western digital, missti einn disk á fimmudag og svo annan
á föstudag, passaði auðvitað að ábyrgðin rann út í ágúst á þessu ári...
Sent: Þri 18. Okt 2005 01:54
af Mr.Jinx
oh bömmer! En voru þeir kældir?
Sent: Þri 18. Okt 2005 07:18
af corflame
Ekki sérstaklega, voru fyrir innan innblástursviftuna, en ekki í beinni línu samt. Aðeins fyrir neðan, hefði átt að vera í lagi, sérstaklega þar sem kassahitinn varð aldrei neitt svakalegur
Fékk mér samt dedicated viftu til öryggis núna

Sent: Þri 18. Okt 2005 07:46
af kristjanm
Ég hef alltaf átt Western Digital og aldrei klikkað diskur hjá mér.
Svo er MSI kortið ekki heitt, þeir fengu bara gölluð eintök í reviewið. Kortið mitt nær aldrei mikið hærra en 60°C þegar ég er að spila leiki eða keyra 3DMark.
Sent: Þri 18. Okt 2005 07:52
af gnarr
Mig minnir að GuðjónR hafi misst einhverja 4 WD diska á nokkrum dögum í denn.
Sent: Þri 18. Okt 2005 13:21
af Mumminn
ég hef átt 1x Wd disk. Var með mikilvæg gögn á honum, síðan crassaði hann og ég missti gögnin. síðan hef ég bara keypt mér Seagate

þeir hafa ekkert crassað enn.
Sent: Þri 18. Okt 2005 13:35
af Vilezhout
er með 4 80gb wd diska og búinn að vera með þá í nokkur ár aldrei neitt vesen á þeim
kannski bara spurning um hvernig menn eru að nota þá :p
t.d. er ég ekki stöðugt að lesa og skrifa af þeim einsog mig grunar að guðjónr hefur verið að gera
Sent: Þri 18. Okt 2005 13:49
af gnarr
Samkvæmt öllum rannsóknum, þá fer það talsvert betur með diska að nota þá mikið. Það er að segja að skrifa og lesa af þeim næstum stanslaust, Það er vegna þess að þegar þú lest af disknum, þá endursegulmagnast svæðin á disknum, og þar af leiðandi verða gögnin "sterkari".
Sent: Þri 18. Okt 2005 16:23
af wICE_man
Bróðir minn er einn af þessum óheppnu WD eigendum, hann átti 2 80GB WD, einn stútaðist fljótlega og hinn er sífellt að hrynja út af ofhitnun. Það er ekki merkilegt að þeir skuli vera búnir að missa forustuna á markaðnum til Seagate. Nýju diskarnir þeirra eru þó betri en samt ekki nógu góðir til að ég kaupi þá nema þá 320GB línuna.