Síða 1 af 1

Hvar get ég fengið Opteron 146(FX-57) á klakanum?

Sent: Mán 10. Okt 2005 21:01
af kristjanm
Veit einhver hvernig hægt er að nálgast öfluga Opteron kubba hérna á klakanum?

Það virðist sem að hægt er að fá 939 pinna Opteron 146 sem er nákvæmlega eins og AMD FX-57, en á 200$.

Sent: Mán 10. Okt 2005 22:29
af Veit Ekki
http://www.shopping.is/php/linux?/jalta ... 6907871569&&&&

Edit: Sá svo að þetta var socket 940 ekki 939.

Sent: Mán 10. Okt 2005 22:34
af kristjanm
Takk samt :)

Sent: Þri 11. Okt 2005 10:07
af gnarr
Opteron 146 er 2GHz..

Sent: Þri 11. Okt 2005 17:30
af wICE_man
Já, Opteron 146 er ekki FX-57, þó er verið að flytja 1XX seríuna yfir á 939 pinna sökkulinn svo að tæknilega séð gætirðu notað niðurklukkaðann FX örgjörva sem 146 opteron :)

Sent: Þri 11. Okt 2005 19:16
af kristjanm
Hann notar sama "die" og FX-57.

Ef þið skoðið XtremeSystems forumið þá sjáiði fullt af vitleysingum sem eru komnir með þennan örgjörva.

Sent: Mið 12. Okt 2005 00:45
af wICE_man
Tæknilega séð er FX-57 með sama die og 3700+/4000+, nema bara ólæstum multiplier, held að opteron 1XX (939) séu reyndar líka byggðir á San Diego kjarnanum en er þó ekki viss.

Sent: Mið 12. Okt 2005 07:56
af kristjanm
Ég veit það vel, en gaurarnir á XtremeSystems halda ekki vatni yfir þessum örgjörva og segja að hann sé alveg nákvæmlega eins og FX-57, allavega "fyrsti skammturinn".

Sent: Mið 12. Okt 2005 12:45
af wICE_man
Það er ólíklegt að við fáum að sjá þá hér á landi :(