Síða 1 af 1

selt: TS Nvidia skjákort, 3060ti og 1080

Sent: Lau 29. Maí 2021 10:22
af Vinni
Hef til sölu 3 stk Gainward Geforce 3060Ti Ghost skjákort. Keypt í Tölvutek í janúar s.l. og hafa eingöngu verið notuð við námugröft síðan. Upphaflegar umbúðir fylgja kortunum.
https://www.gainward.com/main/vgapro.ph ... ov&lang=en

Einnig Gigabyte GTX1080 og Asus GTX1080. Mig minnir að ég hafi keypt þau í upphafi árs 2018. Notuð í námugreftri af og til, eitt og hálft ár í það heila sennilega. Þau hafa líka damlað eitthvað í tölvum hjá mér sem skjákort. Þessi kort eru bæði typical með 3 viftu kælingu. Ef það skiptir máli gæti ég líklega grafið upp frekari upplýsingar um þau.

Öll þessi kort hafa verið yfirklukkuð og keyrð á lágmarks afli, hitastigið á þeim í námugreftri hefur yfirleitt verið 55-65C°

Tilboð óskast.


Ég er úti á landi en kem líklega til RVK á morgun, sunnudag og gæti mögulega afhent eitthvað af þessu þá.

Edit -1
Það hefur ekkert verið átt við bios eða vélbúnað í þessum kortum. Mér vitanlega eru þau öll í lagi og hegða sér eins og þegar ég keypti þau. Og ég vil engin skipti.

Edit -2
Þetta virðist vera selt í einum pakka.

Re: TS Nvidia skjákort, 3060ti og 1080

Sent: Lau 29. Maí 2021 11:03
af Asipjasi98
Er með þessa https://elko.is/asus-zenbook-ux425-14-f ... 0qx1m01570 keypt í haust og lítið notuð. Skoðaru skipti á henni og 3 3060ti?

Re: TS Nvidia skjákort, 3060ti og 1080

Sent: Lau 29. Maí 2021 11:10
af jonsig
Hvað meinaru yfirklukkuð og keyrð á lágmarks afli ? Þú meinar undervoltuð ? Ertu eitthvað búinn að vesenast með biosinn í þeim ?

Re: TS Nvidia skjákort, 3060ti og 1080

Sent: Lau 29. Maí 2021 11:35
af L0ftur
jonsig skrifaði:Hvað meinaru yfirklukkuð og keyrð á lágmarks afli ? Þú meinar undervoltuð ? Ertu eitthvað búinn að vesenast með biosinn í þeim ?
Ég hugsa að hann sé að meina að hann yfirklukkar Memmory clock en lækkar TGP.
Semsagt hækkar tíðnina á minninu en lækkar aflið sem skjákortið fær frá PSU.

Re: TS Nvidia skjákort, 3060ti og 1080

Sent: Lau 29. Maí 2021 12:15
af Molfo
65 þús fyrir eitt 3060 kort ?

Re: TS Nvidia skjákort, 3060ti og 1080

Sent: Lau 29. Maí 2021 18:15
af cramer
75k eitt kort.