Síða 1 af 1

Kínversk lóðbolta dauðagildra.

Sent: Sun 23. Maí 2021 18:17
af jonsig
Sælir.
Eins og þið vaktara félagarnir eru farnir að vita þá er gamli oft með sniðuga random pósta hérna :)
Í þetta skiptið varð ég bara að minnast á hætturnar sem fylgja því að panta eitthvað kína dót, þótt tiltekið apparat sé vinsælt á samfélagsmiðlunum.

Þar sem ég er farinn að dunda mér frekar mikið heima að laga dót þá vildi ég kaupa auka lóðstöð til sem getur notað sömu lóðodda og mín trausta Hakko Fx-941 sem ég nota tugi klst á mánuði í vinnunni. Hinsvegar er hakkóinn ágætlega dýr ef hann er keyptur genuine, en af skærri tilviljun lenti ég á youtube video sem gæji var að prufa fluss, fyrir smd lóðningar. Og mælti hann sérlega með þessari græju, sem er PERFORMER fyrir 8 þús innflutt, og er hún vinsæl í beinu hlutfalli hversu góð hún er og notar osom T-12 hakkó odda / bæði genuine og fake,,, nice !! Svo gamli hugsaði sig ekki tvisvar um og keypti 1x stk svona gerpitrýni :hjarta þó gleymdi "sérfræðingurinn" á youtube að minnast á að hún er vel þekkt fyrir að vera stórhættuleg græja og hefur hann líklega lagað hana því annars væri helmingurinn af öllum viðgerðunum hans líklega ónýtar eða hann undir torfu.

*edit* gæjin var með 24V útgáfuna sem notar utanáliggjandi aflgjafa sem er líklega mjög öruggur ef hann er ekki frá kína. Hinsvegar gæti ESD vörnin verið eitthvað glötuð eða ekki til staðar og íhluta zapp gæti átt sér stað.


Svo hérna er fjörið.
Þettar byrjar á að stöðin krassar... skjárinn fer í FOKK, og sé ég að þetta er tengt einhverju af zappinu sem ég gaf stöðinni áður og hugsa ekkert meira útí þetta.. Síðan kemur að því að helv. borðið sem ég lóða gefur mér ágætis stuð, þá ekki bara þetta venjulega ZApp, heldur í hvert einasta skipti sem ég snerti stellið á græjunni sem ég er að laga þó hún sé algerlega ótengd ! Þá fer ég að pæla, þar sem ég er alltaf með anti-esd úlnliðsstrapp á hendinni þá fer maður að leggja tvo og tvo saman þar sem einu tengingarnar eru lóðboltinn og úlnliðsbandið og bæði tengt sömu jörð. Svo ég fer að mæla.

Hérna sjáum við hvorki meira né minna en heil 70V riðspennu til jarðar. Svo ef ég er að lóða eitthvað þá fara 70V gegnum íhlutinn þaðan í gegnum prentið og endanum í jörðina á prentpötunni og endar þar í stellinu sem hendin á mér liggur við...
Mynd

70V
Mynd

Næst er draslið skrúfað í sundur, og ENGAR sjáanlegar jarðbindingar, nema skitinn smd 1Mohm (1/8W) viðnám frá lóðboltajörð til jarðar, sem skýrir spennuna sem ég fékk.
Síðan er helvítins draslinu breytt, eða í raun bara klárað það sem sá sem setti draslið saman í verksmiðjunni átti að gera... :mad


1.Ég gegnumbora bakhlífina og set skrúfu sem tengd er jörð. PE(varnarleiðari)
2.Skrapa einangrandi álhúðina úr öllum skrúfugötum bæði aftan og framan. Þó ég ætti í raun að setja teina allstaðar á alla fleti skeljarinnar þá virkar þetta fyrir mig. Hinsvegar er það ekki proper leiðin til að hafa þetta 100%. En nota bara það sem hendi er næst.
3.Tek helvítins viðnámið, frá lóðbolta jörð og set beint á PE(varnarleiðari) . Viðnámið væri ágætis ANTI-static varnaraðgerð ef það væri ekki svona mikill "leki" í spennunum. Hinsvegar fer MIL-spec frammá <5ohm til jarðar, og sá sem notar stöðina nýtur vafans yfir einhverja íhluti.
4. Set 1.5q koparvír frá PE(varnarleiðari) á neikvæða skautið á smáspennuhliðinni. Hann hefði mátt vera gulgrænn á litinn en hafði ekkert þannig.

Mynd MyndMynd

Útkoman:
Mynd

22mV er eðlileg loftnetsáhrif, þegar mælt er frá jörð í tengli 1 gegnum loftadós og niður í tengil 2. Lægra ef ég setti ESD strappið mitt í sama fjöltengi og lóðboltinn er.

Og.. smá PID stillingar til að fá hann perfect. Og chekka hvort það sé ekki jörð á öllu núna.
Mynd

Og voilà ! Græjan er núna töluvert öruggari og SVÍN virkar, mæli virkilega með einni svona af banggood á 50ish dollara. Hinsvegar geta módelin reikað í útgáfum, og eru líklega mishættulegar. Og ekket við í öðru en að gera svipaðar breytingar og ég gerði, nema kannski í spekka, og gegnumbora alla fleti á hlífinni og nota 400V skilgreint raflagnaefni. Auk þess að athuga hvort einhver af þessum kæliplötum fyrir díóðuna og mosfetinn sé nálægt heitum 230V trakka eða íhlut og gera ráðstafanir. Annars var þetta uþb 1klst fun project í alla staði og flott útkoma fyrir klink.
Mynd

Re: Kínversk lóðbolta dauðagildra.

Sent: Sun 23. Maí 2021 18:34
af mjolkurdreytill
Var þetta fyrsta notkun eða ertu búinn að vera að nota hann í einhvern tíma?

Re: Kínversk lóðbolta dauðagildra.

Sent: Sun 23. Maí 2021 19:07
af jonsig
mjolkurdreytill skrifaði:Var þetta fyrsta notkun eða ertu búinn að vera að nota hann í einhvern tíma?
Fékk hana á föstudag frá banggood, og moddaði hana þá. Búinn að nota hana í kannski 10klst núna og er frekar sáttur. Ég er vanur að nota Weller og hakko, og þessi virðist ekkert vera neitt mikið öðruvísi fyrir utan að zappa allt sem lóðoddurinn snerti fyrir modd. Ég er kannski með <1,2mm flata odda í þessar fínu lóðningar og breiðan hoof tip í stór power plane.

Re: Kínversk lóðbolta dauðagildra.

Sent: Þri 06. Júl 2021 13:48
af mort
Sko...

yfirleitt er viðnámið mjög stórt frá lóðbolta í jörð - enda hættulegt að hafa það of lágt - þá getur of mikill straumur farið þarna í gegnum, t.d. ef þú óvart ferð í "live" rás. En til að afhlaða ESD er það alveg nóg - þó svo ESD sé 10kv þá er það svo rosalega líill straumur

En, ég nota mikið TS-80 og TS-100 sem eru kína lóðboltar - alveg frábærir samt.

en þeir eru tengdir með USB-C / DC tengingu og eru alveg skermaðir frá jörð.

planið með ESD vörnum er að allt sé á sama "potential" - þ.e. þú gætir verið með allt í 10 þús voltum, bara að það sé enginn spennumunur - en til þess að straumur "renni" - þá þarf að vera spennumunur.

þannig eru lóðstöðvar og fleira með sér jörð sem þú tengir í - hún er ekki endilega sama jörð og er í innstungunni - yfirleitt alveg einangrað frá. Þannig verður lóðboltinn, rist strap, dúkur á borði, ESD teppi whatever allt að vera tengt saman - helst allt í sama punkt- og jörðin á borðinu sem þú ert að lóða í - þannig það sé alls enginn spennumunur á milli

ég hef mælt AC spennu frá tip á TS-80 og í jörð. Þetta myndast líklega vegna lélegrar afriðlunar/span í vírum ertc á low-voltage hliðinni á USB-C hleðslutækinu. ... Enda er USB spennugjafinn ekki með neina jörð.

Re: Kínversk lóðbolta dauðagildra.

Sent: Þri 06. Júl 2021 18:44
af jonsig
Ég er pottþétt að fá spanstaum útfrá elementinu á oddinum með hátt viðnám til jarðar útaf skiptitíðninni á SMPS draslinu samtvinnað við spenna leka AC>DC hluta ólínulegs straumgjafans.

En já hef allt PE referanced núna til að hafa stabíl"0V" Meira segja fínasta jörð sem ég tók út í den (jarðskautsviðnám). Annars er spurningin hversu "lítill" straumurinn er. Því hann er áhrifaríkastur til að drepa mann kringum 20mA minnir mig eða á því sviði til að hafa áhrif á hjartað. Annars lóða ég mikið undir smásjá og þetta eru viðkvæmar rásir, og ef mikið liggur undir þá nota ég bara hakko fx-9xx sem er mil-spec <3ohm til jarðar.


+edit+
Þetta er kannski smá óskýr titill, en ég var að laga 1080 kort sem er lifandi í dag eftir þetta sem er ótrúlegt og UHF móttakara fyrir GPS rauntímaleiðréttingu. En málið er að ég hafði úlnliðsstrappa með 10M ohm til jarðar líklega. Og skjákortið bara á skrifborðinu heima og því fljótandi. En leiðnin var milli 402 viðnámsins sem ég var að lóða og gegnum power plane í skjákortinu og þaðan í upphandlegginn á mér hinum megin. Örugglega spennufall yfir einhverja íhluti í millitíðinni :megasmile
Annars átti þetta ekki að vera einhver flókinn þráður, heldur kannski benda leikmönnum á hætturnar við að kaupa þessar kínagræjur sem tengjast við neysluspennuna hjá okkur .

Re: Kínversk lóðbolta dauðagildra.

Sent: Þri 06. Júl 2021 23:26
af mort
jamm, nr1 að átta sig á hvernig þetta hangir allt saman. Ég er með gamla Weller MT1500 og svo TS-80/100 - lóða mikið SMD .. en passa mig vel á þessu - sér í lagi þegar ég mældi nokkuð háan spennumun á milli tip á TS-80 og "hús" jarðarinnar.

Re: Kínversk lóðbolta dauðagildra.

Sent: Þri 02. Nóv 2021 19:25
af Black
Hvaða hobby lóðstöð mynduð þið mæla með. Sem drepur mann ekki ?

Re: Kínversk lóðbolta dauðagildra.

Sent: Þri 02. Nóv 2021 20:38
af Njall_L
Black skrifaði:Hvaða hobby lóðstöð mynduð þið mæla með. Sem drepur mann ekki ?
Hvaða budgeti ertu að pæla í og hvaða notkun? Sjálfur finnst mér TS100 vera mjög fínt bang-for the buck. Það eina sem truflaði mig við það að í langri notkun þá gat húsið/handfangið hitnað svolítið þrátt fyrir að græjan færi í standby þegar hún væri lögð niður, en mjög fínt að öðru leiti.

Re: Kínversk lóðbolta dauðagildra.

Sent: Fim 04. Nóv 2021 11:17
af Black
Njall_L skrifaði:
Black skrifaði:Hvaða hobby lóðstöð mynduð þið mæla með. Sem drepur mann ekki ?
Hvaða budgeti ertu að pæla í og hvaða notkun? Sjálfur finnst mér TS100 vera mjög fínt bang-for the buck. Það eina sem truflaði mig við það að í langri notkun þá gat húsið/handfangið hitnað svolítið þrátt fyrir að græjan færi í standby þegar hún væri lögð niður, en mjög fínt að öðru leiti.
Undir 20k
Er að lóða allskonar rofa og mæla og drasl í bílinn hjá mér. 12v spenna á öllu.

Re: Kínversk lóðbolta dauðagildra.

Sent: Sun 07. Nóv 2021 21:47
af mort
ég á TS100 en ég fékk mér TS80p með 5 "tips" og nota hann nær eingöngu núna - allt frá stórum tengjum yfir í smd - TS-100 er flottur enda með wide input voltage (nota hann stundum úti með LiPo batteríum). En TS80p er frábær - bara passa að jartengja hann ef þú ert að vinna í einhverju critical

Re: Kínversk lóðbolta dauðagildra.

Sent: Þri 14. Des 2021 22:51
af GuðjónR
Allir með svo fansy pansy lóðstöðvar, ég er ennþá að nota minn lóðbolta sem ég keypti árið 1982-3 og hann virkar súper vel.

Re: Kínversk lóðbolta dauðagildra.

Sent: Þri 14. Des 2021 23:04
af jonsig
Mynd
Mynd

Held að mín sé framleidd 1987, En ég hef reyndar ekki lóðtin sem var framleitt í V-Þýskalandi eins og þú GuðjónR :)
Ég á tvær aðrar, en þessi er nr.1 þar sem hún er custom job.


Smá virkni lýsing

Re: Kínversk lóðbolta dauðagildra.

Sent: Þri 14. Des 2021 23:28
af agnarkb
jonsig skrifaði:Mynd
Mynd

Held að mín sé framleidd 1987, En ég hef reyndar ekki lóðtin sem var framleitt í V-Þýskalandi eins og þú GuðjónR :)
Ég á tvær aðrar, en þessi er nr.1 þar sem hún er custom job.


Smá virkni lýsing
GuðjónR skrifaði:Allir með svo fansy pansy lóðstöðvar, ég er ennþá að nota minn lóðbolta sem ég keypti árið 1982-3 og hann virkar súper vel.
n00bs :megasmile
0-02-0a-0dd3f3cc483a71471fe0d768c148f9fc919ba14c90cea140aa34037e723b3089_9b191c8794adcea4.jpg
0-02-0a-0dd3f3cc483a71471fe0d768c148f9fc919ba14c90cea140aa34037e723b3089_9b191c8794adcea4.jpg (121.7 KiB) Skoðað 857 sinnum

Re: Kínversk lóðbolta dauðagildra.

Sent: Fim 16. Des 2021 00:03
af jonsig
mort skrifaði:ég á TS100 en ég fékk mér TS80p með 5 "tips" og nota hann nær eingöngu núna - allt frá stórum tengjum yfir í smd - TS-100 er flottur enda með wide input voltage (nota hann stundum úti með LiPo batteríum). En TS80p er frábær - bara passa að jartengja hann ef þú ert að vinna í einhverju critical

ESD MIL-STD úti er undir < 0.8 Ohm minnir mig <5 Ohm er gamli spec. Ekki vesen á metcal því stöðin slekkur á sér ef jörðin verður >4 Ohm.

Hinsvegar lenti ég í verra atviki með þessa Ksger. Að P-mosfetinn sem skammtar inná oddin á boltanum gaf sig og oddurinn varð +500°C rauðglóandi. En ég náði að henda honum útum gluggann. Það er ss. engin vörn fyrir þessu í svona drasli og það þarf að kvarða alla oddana svo það verði ekki 50-70°C hitamunur þegar þú skiptir úr chisel tip yfir í t.d. hoof tip.
Oddurinn gaf sig ekki, ég mældi hann eftir að ég sótti hann í blómabeðið.

Kaupa frekar staka OEM hakkó fx-951, fake auto-sleep lóðstand og handpiece. Alls ekki það dýrt. m.v. rauðglóandi lóðoddur getur alveg drepið stemminguna.

Re: Kínversk lóðbolta dauðagildra.

Sent: Fös 17. Des 2021 00:23
af L0ki
Þessi hér:

Aixun 200W T3A (með T245 eða T210 járninu þá, hin eru crap) er alger draumur og reynir actually ekki að drepa mann eins og flest allt frá kína sem maður stingur í mains.

Þetta er JBC clone Sambærileg við þessa, bara meira powah, tekur org JBC tips, rugl fljót að detta í temp, nákvæm og þessi 200W eru engar ýkjur, trukkar hita í 4 laga PCB eins og hún sé þunn eins laga.

Verstu dæmin um mánudags eintök eru svona Mynd

En t.d. Jörð, viðnám, frágangur og þessi basic safety atriði eru 100%

En myndi samt bæta nokkrum þúsurum við og fara í T3B með T210 boltanum