Síða 1 af 1
3080Ti
Sent: Lau 17. Apr 2021 18:23
af L0ftur
Re: 3080Ti
Sent: Lau 17. Apr 2021 22:11
af Hausinn
Hverjum er ekki sama þessa dagana.
Re: 3080Ti
Sent: Lau 17. Apr 2021 22:14
af worghal
Hausinn skrifaði:Hverjum er ekki sama þessa dagana.
ekki eins og við séum að fara að fá einhver eintök á næstu misserum
Re: 3080Ti
Sent: Lau 17. Apr 2021 22:18
af Brimklo
Hlakkar til að geta keypt þetta kort eftir 3 ár, þegar það verður available.
Re: 3080Ti
Sent: Lau 17. Apr 2021 22:36
af agnarkb
Man hvað ég átti það til að fá smá samviskubit eftir að ég keypti mér 1080Ti árið 2017 sem var á þeim tíma alveg overkill fyrir mína leikjaspilun. En það hefur heldur betur komið í ljós núna síðustu misseri hvað þetta voru mikil dúndurkaup! Heldur ennþá í alla leiki í hæstu graphics og á 1440p þannig að maður er ekki eins óþolinmóður í að uppfæra og margir aðrir.
Að því sögðu, þá er mögulegt 3080Ti mjög freistandi!
Re: 3080Ti
Sent: Lau 17. Apr 2021 22:47
af L0ftur
Svakalega eru allir neilvæðir hérna...... Þetta skánar vonandi fljótlega.
Re: 3080Ti
Sent: Lau 17. Apr 2021 23:50
af urban
L0ftur skrifaði:Svakalega eru allir neilvæðir hérna...... Þetta skánar vonandi fljótlega.
"fljótlega"
Þetta eru nokkur vandamál.
Covid hefur bæði áhrif á framleiðslu og eftirspurn (fólk er heima hjá sér og langar að spila)
Scalpers eru stórt vandamál, en þrátt fyrir að þeir myndu selja allt sitt, þá myndu þeir engan vegin anna eftir spurn.
Mining heimurinn er líklegast stærsta vandamálið, þar eru menn tilbúnir til þess að yfirborga kortin til þess að fá þau og kaupa í gríðarlegu magni.
Ég er bara hoppandi kátur að hafa hoppað á 20línuna í fyrra þegar að ég sá eitthvað video um það að það gæti orðið þrusu eftirspurn eftir nýju línunni, var að spá í að kaupa mér einmitt 30 línuna en ákvað að hoppa bara frekar á 2080super.
Re: 3080Ti
Sent: Sun 18. Apr 2021 10:15
af L0ftur
urban skrifaði:L0ftur skrifaði:Svakalega eru allir neilvæðir hérna...... Þetta skánar vonandi fljótlega.
"fljótlega"
Þetta eru nokkur vandamál.
Covid hefur bæði áhrif á framleiðslu og eftirspurn (fólk er heima hjá sér og langar að spila)
Scalpers eru stórt vandamál, en þrátt fyrir að þeir myndu selja allt sitt, þá myndu þeir engan vegin anna eftir spurn.
Mining heimurinn er líklegast stærsta vandamálið, þar eru menn tilbúnir til þess að yfirborga kortin til þess að fá þau og kaupa í gríðarlegu magni.
Ég er bara hoppandi kátur að hafa hoppað á 20línuna í fyrra þegar að ég sá eitthvað video um það að það gæti orðið þrusu eftirspurn eftir nýju línunni, var að spá í að kaupa mér einmitt 30 línuna en ákvað að hoppa bara frekar á 2080super.
Já já við vitum nú flestir afhverju staðan er eins og hún er.... Málið er bara að það er að koma nýtt kort, hvort sem þú getur keypt það eða ekki, sökum fjárhagslegs ástands, framboðs, eða annara ástæðna þá má alveg fjalla um það og jafnvel gerast svo djarfur að fagna því eða hlakka til komu þess.
Af því sem ég hef séð þá eru gpu shipment drops í retail búðir hið ytra að aukast, sérstaklega á 3070 og 3090, sem og 3060. Það sem hefur orðið vel undir er 3080 og 3060Ti.
Ég hef fulla trú á því að þetta fari að skána og er full meðvitaður um ástandið eins og það er í dag.
Löndin í kringum okkur eru að undirbúa að opna sig meir og meir fólk er farið að huga að sumrinu og vilja setja peninginn sinn í útiveru. Mining er að sjálfsögðu vandamál fyrir gamers, en ég hugsa að margir nýjir í þeim dúr fari að átta sig á því að mining er bara heilmikil vinna og fyrirhöfn, þeir voru örugglega margir að sækjast eftir quick buck. Þeim fer að vanta pening fyrir sumarið líka.
Ég ætla allavegana að leyfa mér að fagna þessu, þið hinir sem ætlið að hanga í fýlu megið bara gera það. Góðir hlutir gerast hægt
Re: 3080Ti
Sent: Sun 18. Apr 2021 10:24
af GuðjónR
Re: 3080Ti
Sent: Sun 18. Apr 2021 12:25
af Zorglub
Auðvitað fagnar maður nýu dóti hvort sem maður getur/ætlar að kaupa það eða ekki, maður spyr sig hinsvegar hvaða taktík þeir ætla að spila.
Vanalegt 3080 er það öflugt að flestir taka það frekar út af verðmun, en neyðast núna kannski til að taka þetta ef það verður lögð meiri áhersla á að dæla því út og eigum við ekki að giska á að verðmiðinn hérna heima verði 240.000+
Veit ekki með ykkur en ég á orðið erfitt með að réttlæta þessar tölur fyrir fps/grafík þar sem allt er í botni nú þegar og uppfærsla er bara skemmtilegt tæknirúnk, maður er nánast orðin þannig þenkjandi að sleppa bara 3000 línunni alveg.
Re: 3080Ti
Sent: Sun 18. Apr 2021 13:37
af MatroX
Zorglub skrifaði:Auðvitað fagnar maður nýu dóti hvort sem maður getur/ætlar að kaupa það eða ekki, maður spyr sig hinsvegar hvaða taktík þeir ætla að spila.
Vanalegt 3080 er það öflugt að flestir taka það frekar út af verðmun, en neyðast núna kannski til að taka þetta ef það verður lögð meiri áhersla á að dæla því út og eigum við ekki að giska á að verðmiðinn hérna heima verði 240.000+
Veit ekki með ykkur en ég á orðið erfitt með að réttlæta þessar tölur fyrir fps/grafík þar sem allt er í botni nú þegar og uppfærsla er bara skemmtilegt tæknirúnk, maður er nánast orðin þannig þenkjandi að sleppa bara 3000 línunni alveg.
það verður ekki þannig þetta er allt sami kubburinn, 3090 er að seljast með yfirstrikuðu 3080ti númeri á kubbnum
- ExgarYEW8AcpME2.jpg (2.25 MiB) Skoðað 917 sinnum