Síða 1 af 1
Er eitthvað að þessu buildi?
Sent: Þri 09. Mar 2021 03:07
af rgbfan
https://builder.vaktin.is/build/17F10
Ég er ekki að fatta hvað er að þessu, ef það er eitthvað. Nota stock kælinguna sem fylgir með CPU. Þetta er fyrsta tölvuleikjaspilunartölva fyrir fermingarstrák þannig að RBG er mikilvægt. Hugmyndin er að hann noti innbyggðu grafíkina í bili þangað til það er hægt að kaupa og bæta við skjákorti og svo er pláss til að uppfæra vinnsluminnið og kannski örgjörvann. Eða er kannski bara vitleysa að setja saman tölvu núna?
(úbbs, peistaði röngum link, búinn að laga)
Re: Er eitthvað að þessu buildi?
Sent: Þri 09. Mar 2021 07:41
af Hausinn
Er svo sem í lagi að setja saman núna en hann er ekki að fara að spila neitt af viti á integrated graphics. Mæli með því að kaupa notað skjákort sem hann gæti nýtt sér í millitíðinni.
Re: Er eitthvað að þessu buildi?
Sent: Þri 09. Mar 2021 08:38
af andriki
rgbfan skrifaði:https://builder.vaktin.is/build/17F10
Ég er ekki að fatta hvað er að þessu, ef það er eitthvað. Nota stock kælinguna sem fylgir með CPU. Þetta er fyrsta tölvuleikjaspilunartölva fyrir fermingarstrák þannig að RBG er mikilvægt. Hugmyndin er að hann noti innbyggðu grafíkina í bili þangað til það er hægt að kaupa og bæta við skjákorti og svo er pláss til að uppfæra vinnsluminnið og kannski örgjörvann. Eða er kannski bara vitleysa að setja saman tölvu núna?
(úbbs, peistaði röngum link, búinn að laga)
Án þess að skoða einnhver review um þennan kassa þá myndi ég segja að hann se með hræðilegt air flow þar sem viftur get ekki dregið loft í gegnum gler haha og það er alltof lítið pláss hliðanna glerinu til að draga inn loft myndi spara smá pening með að fara í b550 MB og eyða þá aðeins meirra í ramið þar sem on boards graphics a cpuinn græða á því að vera með betra ram t.d. 3600mh samt reyna velja eth sem er ekki með léleg timing
Re: Er eitthvað að þessu buildi?
Sent: Þri 09. Mar 2021 08:42
af andriki
Re: Er eitthvað að þessu buildi?
Sent: Þri 09. Mar 2021 08:57
af GullMoli
andriki skrifaði:rgbfan skrifaði:https://builder.vaktin.is/build/17F10
Ég er ekki að fatta hvað er að þessu, ef það er eitthvað. Nota stock kælinguna sem fylgir með CPU. Þetta er fyrsta tölvuleikjaspilunartölva fyrir fermingarstrák þannig að RBG er mikilvægt. Hugmyndin er að hann noti innbyggðu grafíkina í bili þangað til það er hægt að kaupa og bæta við skjákorti og svo er pláss til að uppfæra vinnsluminnið og kannski örgjörvann. Eða er kannski bara vitleysa að setja saman tölvu núna?
(úbbs, peistaði röngum link, búinn að laga)
Án þess að skoða einnhver review um þennan kassa þá myndi ég segja að hann se með hræðilegt air flow þar sem viftur get ekki dregið loft í gegnum gler haha og það er alltof lítið pláss hliðanna glerinu til að draga inn loft myndi spara smá pening með að fara í b550 MB og eyða þá aðeins meirra í ramið þar sem on boards graphics a cpuinn græða á því að vera með betra ram t.d. 3600mh samt reyna velja eth sem er ekki með léleg timing
Ég held að þetta sé full mikil noja. Það eru 3 viftur sem blása lofti inn að framan sem er alveg heill hellingur og yfirdrifið nóg fyrir þessa samsetningu. Ég er sjálfur með Antec P280 sem er með ennþá þynnri rifur á hliðunum og hann blæs heilan helling með viftunum að framan. Antec vita alveg hvað þeir eru að gera.
Hann talar um að RGB sé mikilvægt og þetta er kassi sem lúkkar mjög vel og á þokkalegu verði miðað við það, einmitt eitthvað sem myndi heilla fermingardreng
EDIT: Ég myndi þó ráðleggja þér að skoða minni turnkassa, M-ATX stærðina t.d. og
þá sömuleiðis M-ATX móðurborð. Hefur ekkert að gera með öll þessi PCI slot á full size ATX móðurborði. Nettari kassi sem tekur minna pláss.
Tvö dæmi um flotta RBG kassa í þeirri stærð:
https://kisildalur.is/category/14/products/1395
https://tl.is/product/masterbox-mb320l- ... med-glugga
Re: Er eitthvað að þessu buildi?
Sent: Þri 09. Mar 2021 11:51
af RikkzY
https://builder.vaktin.is/build/2926D
Ég myndi persónulega frekar setja þetta upp svona og para þetta við notað skjákort af vaktinni
þessi örgjafi er 6kjarna 12þráða í stað 4/8 3400g og hann outpreformar hann í nánast öllum af þeim leikjum sem ég hef skoðað
edit: Og 700w aflgjafi þar sem hann mun líklegast vilja vera með skjákort þá þarf ekki að uppfæra hann
Re: Er eitthvað að þessu buildi?
Sent: Mið 10. Mar 2021 04:01
af rgbfan
Hey takk öllsömul fyrir þessi frábæru innlegg. Góður punktur með M-ATX, einhvern vegin þá datt mér það ekki í hug einu sinni.
Ég reyndi að gera Intel vél en ég var ekki alveg að átta mig á hlutum varðandi tíðnina á minninu. Nenni ekki að pæla í því í bili, AMD virðist einfaldara..
https://builder.vaktin.is/build/87499
Þetta er það sem ég er með í augnablikinu, samt ekkert sérstaklega ánægður með þetta ennþá og breyti þessu örugglega en ég bara verð að hætta í bili. Ef það finnst ekkert skjákort þá breytist örgjörvinn aftur í 3400G (og stock kælingu). Hef ákveðið að ég verð að setja M.2 drif bara því það er kúl. Setti bara einhverja kælingu, skoða það mál betur seinna ef eitthvað verður keypt en ekki bara tilbúin samsett tölva. Gæti verið að gagnadiskurinn fjúki í bili. Ég held að 700W aflgjafi sé yfirdrepun jafnvel með skjákorti en það er kannski ágætt að vera algjörlega framtíðarheldinn ef það bætist við RTX 3090 og Ryzen 9 5950X og fleira.
(breytti aðeins hvernig ég orðaði sumt, var eitthvað pirraður þegar ég skrifaði þetta fyrst...)