Síða 1 af 1

Vantar gamlan IBM Deskstar 40 GB

Sent: Mán 27. Jún 2005 12:38
af Ég Sjálfur
Daginn.

Er með IBM Deskstar 40 GB, sem varð fyrir hnjaski,
þá þarf ég bráðnauðsynlega annan eins.

IBM Deskstar 40 GB
Model: DLTA-307045
P/N 07N3931
RPM: 7200
Framleiddur: Nov/2000

Ef þú liggur á eða veist um einhvern einhverstaðar,
vinsamlega hringdu á mig sem fyrst í S: 867-4461

Sent: Mán 27. Jún 2005 12:53
af Stutturdreki
Akkuru þarf hann að vera eins?

Prófaðu að pósta á Partalistann, helst hægt að nálgast gamlan vélbúnað þar.

Annars færðu nýjan 120gb á undir 7000þ.. (minnsti diskurinn sem er listaður á vaktinni)

Sent: Mán 27. Jún 2005 13:14
af arnarj
Hann sagði að hann hafi orðið fyrir hnjaski, því þarf hann eins disk í varahluti!

Sent: Mán 27. Jún 2005 13:30
af MezzUp
Hann ætlar líklega að reyna að tengja stýrirásirnar á nýja disknum við mekaníska partinn á þessum sem dó, right?

Sent: Mán 27. Jún 2005 14:27
af Ég Sjálfur
Það er rétt, vantar annan í varahluti því
að ég þarf að komast í gögn sem ekki
er til afrit af.

En takk fyrir að benda á partalistann.