Síða 1 af 1
Uppfærsla á skjákorti
Sent: Mán 18. Jan 2021 23:00
af AndriáflAndri
Langar að uppfæra skjákortið mitt þar sem núverandi kortið er ekki að ráða nógu vel við skjáinn minn, er að spila í 3440x1440p og er að fá í kringum 60fps með gtx 1070 strix í cod.
Er að pæla að fara í rtx 3060 strix, væri það ekki nógu góð uppfærsla til að fá í kringum 100fps?
Re: Uppfærsla á skjákorti
Sent: Mán 18. Jan 2021 23:06
af steinar993
kannski koma með full specs á tölvunni, fer líka eftir örranum
Re: Uppfærsla á skjákorti
Sent: Mán 18. Jan 2021 23:28
af AndriáflAndri
hérna eru specs,
https://pcpartpicker.com/list/qcRZrr
svo er ég með þennan skjá og einn annan 24" 1080p
https://computer.is/is/product/skjar-sa ... hz-c34h890
myndi svo skipta um mobo og örgjöva stutt eftir að ég er kominn með skjákortið, svo það bottleneckar ekki
Re: Uppfærsla á skjákorti
Sent: Mán 18. Jan 2021 23:36
af steinar993
held þú þurfir ekkert að skipta um Það með þessu, nýtt skjákort væri nóg myndi ég halda
ertu nokkuð með stillingar settar í eitthvað max fps? og búinn að stilla skjáinn í 100hz?
Re: Uppfærsla á skjákorti
Sent: Mán 18. Jan 2021 23:48
af AndriáflAndri
steinar993 skrifaði:held þú þurfir ekkert að skipta um Það með þessu, nýtt skjákort væri nóg myndi ég halda
ertu nokkuð með stillingar settar í eitthvað max fps? og búinn að stilla skjáinn í 100hz?
Nei öll settings frekar low, skjárinn í 100hz, búinn að setja overlay í gforce experience til að láta leikinn líta aðeins betur út í 2560x1080p
held ég kýli þá bara á skjákortið, hitt getur þá beðið þangað til það er orðið úrelt
Re: Uppfærsla á skjákorti
Sent: Mán 18. Jan 2021 23:52
af Bangsimon88
Upplausn umfram 1080p er svo mikið háð GPU að 9600k er alveg að fara að massa þetta auðveldlega með Nvidia 3000 series.
Ég uppfærði frá 9600 í 5600x og það var gífulegt stökk á 1080p undir 10% í 1440p og ekkert í 4k. Minnir að hardware unboxed hafi gert myndband nýlega um þetta ef þú vilt kíkja á youtube.
Bara eyða meira í GPU og fara í 3080.
Re: Uppfærsla á skjákorti
Sent: Þri 19. Jan 2021 01:05
af AndriáflAndri
Bangsimon88 skrifaði:Upplausn umfram 1080p er svo mikið háð GPU að 9600k er alveg að fara að massa þetta auðveldlega með Nvidia 3000 series.
Ég uppfærði frá 9600 í 5600x og það var gífulegt stökk á 1080p undir 10% í 1440p og ekkert í 4k. Minnir að hardware unboxed hafi gert myndband nýlega um þetta ef þú vilt kíkja á youtube.
Bara eyða meira í GPU og fara í 3080.
3080 er alveg frekar mikið overkill, fer bara í 3070 þar sem það er bara 5þús verðmunur á 3060ti og 3070
https://www.att.is/asus-rog-strix-rtx-3 ... aming.html
https://www.att.is/asus-rog-strix-rtx-3 ... aming.html
Re: Uppfærsla á skjákorti
Sent: Þri 19. Jan 2021 09:34
af Lallistori
3070 er þrusu gott og þú nærð leikandi 100 fps.
Re: Uppfærsla á skjákorti
Sent: Þri 19. Jan 2021 14:02
af Alfa
Þú segir CoD svo ég býst við að þú sért að meina Warzone, fór sjálfur úr 2080 í 3080 og það er töluverður munur en er að keyra 2560x1440 svo ekki jafn háa upplausn og þú. 2080 (~3060ti) keyrði leikinn í optimised stillingum 120 fps nokkuð stabílt, gerði töluvert test á þessu í öllum upplausnum og hinum og þessum stillingum með Afterburner/Rivatuner Benchmark og Warzone Practise mode. Allt í Ultra (án Raytracing var average 108 fps), 160+ með 3080.
AndriáflAndri skrifaði:búinn að setja overlay í gforce experience til að láta leikinn líta aðeins betur út í 2560x1080p
held ég kýli þá bara á skjákortið, hitt getur þá beðið þangað til það er orðið úrelt
Vanalega verður þetta bara counterproductive því Nvidia filterarnir draga fps niður um 15-20% alveg. Ef þú hefur efni á því er það þess virði þó !
Re: Uppfærsla á skjákorti
Sent: Þri 19. Jan 2021 18:47
af jonsig
AndriáflAndri skrifaði:
3080 er alveg frekar mikið overkill, fer bara í 3070 þar sem það er bara 5þús verðmunur á 3060ti og 3070
Ertu alveg fastur í þessum strix pakka ? Mér finnst fínt að hafa Strix móðurborð útaf vatnskælingar ruglinu í mér, en Palit 3060ti kortin á ~100k í kisildal eru að mok virka þótt þau séu frekar ófríð en kosta alveg puttanum minna.
Samt ekki vera með of miklar FPS vonir og 2k upplausn með 3070 / 3060ti. Ég á 3060Ti og finnst það
gott en ekkert meira en það. Síðan viltu auðvitað nota RT þegar þú ert kominn með 3000 kort, þá fer fps endanlega í ruslið.
Re: Uppfærsla á skjákorti
Sent: Mið 20. Jan 2021 10:39
af AndriáflAndri
jonsig skrifaði:AndriáflAndri skrifaði:
3080 er alveg frekar mikið overkill, fer bara í 3070 þar sem það er bara 5þús verðmunur á 3060ti og 3070
Ertu alveg fastur í þessum strix pakka ? Mér finnst fínt að hafa Strix móðurborð útaf vatnskælingar ruglinu í mér, en Palit 3060ti kortin á ~100k í kisildal eru að mok virka þótt þau séu frekar ófríð en kosta alveg puttanum minna.
Samt ekki vera með of miklar FPS vonir og 2k upplausn með 3070 / 3060ti. Ég á 3060Ti og finnst það
gott en ekkert meira en það. Síðan viltu auðvitað nota RT þegar þú ert kominn með 3000 kort, þá fer fps endanlega í ruslið.
Ekkert svo mikill verðmunur á þessum palit kortum og strix, nema 3060ti sem er alveg 25þús munur og svo er 3070 10þús króna munur. Myndi alltaf fá mér 3070 strix frekar miðað við einungis 10þús kall. Hef alltaf verið með strix kort nema í eitt skipti evga sem var líka þrusu gott, en strix kortin eru líklega bestu kortin sem þú færð á markaðinum.
Re: Uppfærsla á skjákorti
Sent: Mið 20. Jan 2021 11:45
af stinkenfarten
AndriáflAndri skrifaði:jonsig skrifaði:AndriáflAndri skrifaði:
3080 er alveg frekar mikið overkill, fer bara í 3070 þar sem það er bara 5þús verðmunur á 3060ti og 3070
Ertu alveg fastur í þessum strix pakka ? Mér finnst fínt að hafa Strix móðurborð útaf vatnskælingar ruglinu í mér, en Palit 3060ti kortin á ~100k í kisildal eru að mok virka þótt þau séu frekar ófríð en kosta alveg puttanum minna.
Samt ekki vera með of miklar FPS vonir og 2k upplausn með 3070 / 3060ti. Ég á 3060Ti og finnst það
gott en ekkert meira en það. Síðan viltu auðvitað nota RT þegar þú ert kominn með 3000 kort, þá fer fps endanlega í ruslið.
Ekkert svo mikill verðmunur á þessum palit kortum og strix, nema 3060ti sem er alveg 25þús munur og svo er 3070 10þús króna munur. Myndi alltaf fá mér 3070 strix frekar miðað við einungis 10þús kall. Hef alltaf verið með strix kort nema í eitt skipti evga sem var líka þrusu gott, en strix kortin eru líklega bestu kortin sem þú færð á markaðinum.
Mér finnst strix kortin alveg fín, en þau eru huge. Svona kælingu á 3060ti er smá overkill finnst mér, mér líður eins og pcie slottið er að fara detta af með þessu korti í. Uppáhalds 30 seríu kortið mitt er palit gamerock pro, ég held það heitir svona. Rgb lýsingin er ótrúlega góð og myndi vera frábært í vertical position. Er samt ekki viss með gæði því það eru mjög fáir sem ég hef séð að review-a kortin frá less-known fyrirtækjum.
Re: Uppfærsla á skjákorti
Sent: Mið 20. Jan 2021 11:57
af AndriáflAndri
stinkenfarten skrifaði:AndriáflAndri skrifaði:jonsig skrifaði:AndriáflAndri skrifaði:

Var að horfa á þetta,
https://www.youtube.com/watch?v=N3lfXsa ... Technology
Palit gamerock kortin líta alveg vel út
Re: Uppfærsla á skjákorti
Sent: Mið 20. Jan 2021 13:06
af jonsig
Ég á palit 3060ti gaming oc pro útgáfuna. Kælingin virkar það vel að ég myndi ekki nenna setja það á vatnsblokk þótt ég fengi blokkina ókeypis. Þetta eru mjög líklega binnaðir gpu's í þeirri útfærslu og kortið er factory OC. En hitastigin á reviews sbr önnur kort gefur það ekki til kynna.
En ef það munar minna á 3070 þá fengi maður sér hiklaust strix uppá snobbið.