Síða 1 af 1
HDD eða SSD Fyrir Plex
Sent: Þri 12. Jan 2021 16:31
af halipuz1
Hvort á maður að fara í SSD eða HDD fyrir Plex? Lítill fugl sagði mér að sleppa bara algjörlega við HDD, það væri bara steindautt dæmi. Væri gaman að vega pros og cons, SSD að sjálfsögðu dýrari en HDD. Hef notað HDD fyrir plex nokkuð lengi, ekki prufað SSD reyndar þannig ég spyr ykkur ágætu vaktarar, hvað eru menn að púlla í þessum málum?
Re: HDD eða SSD Fyrir Plex
Sent: Þri 12. Jan 2021 16:35
af Klemmi
Ef þú átt skítnóg af peningum, þá geturðu alveg farið í SSD.
Einu kostir HDD eru verðið og þar með stórar stærðir á viðráðanlegra verði, og helsti ókostur er bilanatíðni og sóknartími ef þú ert með rooosa marga notendur, en myndi ekki hafa áhyggjur ef samtímanotendur eru ekki mikið fleiri en 10.
Re: HDD eða SSD Fyrir Plex
Sent: Þri 12. Jan 2021 16:45
af halipuz1
Klemmi skrifaði:Ef þú átt skítnóg af peningum, þá geturðu alveg farið í SSD.
Einu kostir HDD eru verðið og þar með stórar stærðir á viðráðanlegra verði, og helsti ókostur er bilanatíðni og sóknartími ef þú ert með rooosa marga notendur, en myndi ekki hafa áhyggjur ef samtímanotendur eru ekki mikið fleiri en 10.
Þakka þér fyrir svarið, einfalt, gott og eiginlega bara case closed haha. Aldrei fleiri en 1-2 að horfa á plexið hjá mér. Mjög þétt setið um þetta

Re: HDD eða SSD Fyrir Plex
Sent: Þri 12. Jan 2021 20:03
af MrIce
HDD Ef þú ert ekki að drukna í pening
SSD Ef þú ert að drukna í pening
M.2 Ef þú fjárfestir í tesla fyrir ca 2 árum og varst að casha út
HDD er alltaf solid fyrir magn en ef þú ætlar ekki að vera með 20tb+ þá ættu SSD að virka allveg.