Síða 1 af 1

Android bíltæki af AliExpess?

Sent: Lau 02. Jan 2021 12:50
af Hizzman
Mig langar að panta Android bíltæki á Ali. Það kostar 3xx USD. Það er á Bosion official store. Er þetta góð hugmynd? Hvað er líklegt að sending taki langan tíma?

Re: Android bíltæki af AliExpess?

Sent: Lau 02. Jan 2021 13:10
af Jafo
Drasl keyptu frekar góðar græjur hér geima.

Re: Android bíltæki af AliExpess?

Sent: Lau 02. Jan 2021 13:21
af ChopTheDoggie
Jafo skrifaði:Drasl keyptu frekar góðar græjur hér geima.
Er einhver búð hér á klakanum sem selur 1din snertiskjá útvarp?

Re: Android bíltæki af AliExpess?

Sent: Lau 02. Jan 2021 13:21
af AndriáflAndri
Meirihlutinn af tækjunum á ali eru drasl, en ég keypti mitt af ali eftir að hafa skoðað mikið. Keypti apple carplay útvarp í polo sem er nákvæmlega eins og hjá vw og virkar alveg eins. Ef þú veist hvað þú ert að kaupa þá geturu alveg keypt þetta á ali.

Re: Android bíltæki af AliExpess?

Sent: Lau 02. Jan 2021 13:37
af Hizzman
Jafo skrifaði:Drasl keyptu frekar góðar græjur hér geima.
ok, en þetta er tæki sem á að passa í gömlu súkkuna, ekkert mix, bara drop-in, er sagt.

Re: Android bíltæki af AliExpess?

Sent: Lau 02. Jan 2021 13:41
af Hjaltifr123
Hef keypt nokkur android tæki þaðan og þau hafa virkað fínt fyrir utan eitt sem kom með brotnum skjá. Hef að vísu passað mig að skoða reviews um tækin og séð hvað aðrir segja um þau áður en ég kaupi.

Re: Android bíltæki af AliExpess?

Sent: Lau 02. Jan 2021 19:06
af Hizzman
Einhver sem hefur skoðun á Bosion merkinu? Hvernig gengur að fá pakka frá Ali núna, koma þeir sæmilega fljótt?

Re: Android bíltæki af AliExpess?

Sent: Lau 02. Jan 2021 22:35
af danniornsmarason
Keypti einusinni 2din snetisskjá bluetooth útvarp á 3k á ali, bjóst ekki við að það myndi virka lengi, en það virkaði fínt í 2 ár með keilu tengda við.
skjárinn var versti parturinn við þetta útvarp (aðalega að svarti liturinn var of bjartur)
sé ekki eftir að hafa keypt þetta útvarp en var heldur ekki að búast við besta útvarpi í heimi

þannig ekki búast við 150k útvarpi ef þú kaupir 30k útvarp af ali

Re: Android bíltæki af AliExpess?

Sent: Lau 02. Jan 2021 23:43
af Gunnar
keypti svona vw hja mér. virkar fínt.
keypti á sama tíma bakkmyndavél frá ali og virkar hún líka rosalega vel.
virkar allt í þessu. væri til i valmöguleika að útvarpið myndi ekki detta út þegar ég set i bakkgír en annars bara flott tæki.
útvap eða bluetooth af spotify og kort með bílnum í rauntíma á veginum með gps

Podofo Android 8.1 2 Din Car radio Multimedia Player GPS Stereo For Volkswagen Skoda Seat Octavia golf 5 6 touran passat B6 polo
https://www.aliexpress.com/item/4000052 ... 4c4d3AviQO

Re: Android bíltæki af AliExpess?

Sent: Sun 03. Jan 2021 00:01
af Hjaltifr123
Hizzman skrifaði:Einhver sem hefur skoðun á Bosion merkinu? Hvernig gengur að fá pakka frá Ali núna, koma þeir sæmilega fljótt?
Með einhverju standard shipping hef ég verið að fá pakka á svona 1 1/2 mánuði. Hefur þó verið styttra en ekki oft.

-Edit
Lenti í því í fyrra þegar covid var að fara í gang að panta frá ali og pakkinn skilaði eftir 8 mánuði :lol:

Re: Android bíltæki af AliExpess?

Sent: Sun 03. Jan 2021 19:44
af AndriáflAndri
Þetta er útvarpið sem ég keypti..
https://www.aliexpress.com/item/3283726 ... 4c4dhUOjK5
Virkar nákvæmlega eins og venjulegt vw útvarp
Líka mesta plug n play útvarp sem ég hef keypt, aftengir eitt plug og hendir því í
Með standard shipping tók shipping 2 vikur