Síða 1 af 1
Brotinn Samsung S10+ Pælingar
Sent: Lau 26. Des 2020 12:50
af Cozmic
Er með nýlegann s10+ sem datt í gólfið í.
Neðra hornið er cracked og er smá sprunga þar líka upp í skjáinn. Er að spá í viðgerð.
Ódýrasta sem ég finn er 55k, en þá geri ég ráð fyrir að skipt er um allan skjáinn, er enginn sem sér um að skipta bara um glerið ? Óþarfi að blæða út pening í eitthvað sem þarf ekki þar sem skjárinn og snerti digit dótið er allt í góðu en aðeins glerið er sprungið.
Sé á netinu að gæjar eru að taka glerið af með hita og eitthverju stússi og hægt er að kaupa svona gler á ódýrt og skipta sjálfur en treysti mér ekki í það, mælið þið með eitthverjum ?
Re: Brotinn Samsung S10+ Pælingar
Sent: Lau 26. Des 2020 18:43
af gunni91
Heimilistrygging?
Sjálfsábyrgðin hjá mer er td. 20 þús en hún er sjaldan yfir 33 þús, fer auðvitað eftir hversu mikið maður borgar í þessar blessuðu tryggingar.
Re: Brotinn Samsung S10+ Pælingar
Sent: Lau 26. Des 2020 20:19
af einarbjorn
Eg lenti í svipuðu með S8 og þetta fór í gegnum tryggingarnar og tryggingarfélagið vildi að þetta færi í gegnum VISS en ég heimtaði að þetta færi í gegnum umboðið (ég þurfti reynar að borga allt en fékk svo til baka frá tryggingarfélaginu mínus sjálfsábyrgð) og fékk það í gegn og ég fékk símann samdægurs og hann var ennþá í ábyrgð en ef þetta hefði farið í gegnum viss þá hefði þetta tekið 2 vikur því þeir senda símana víst út til viðgerðar, það var reyndar fyrir 2 árum veit ekki með núna.
Re: Brotinn Samsung S10+ Pælingar
Sent: Sun 27. Des 2020 00:08
af Pandemic
einarbjorn skrifaði:Eg lenti í svipuðu með S8 og þetta fór í gegnum tryggingarnar og tryggingarfélagið vildi að þetta færi í gegnum VISS en ég heimtaði að þetta færi í gegnum umboðið (ég þurfti reynar að borga allt en fékk svo til baka frá tryggingarfélaginu mínus sjálfsábyrgð) og fékk það í gegn og ég fékk símann samdægurs og hann var ennþá í ábyrgð en ef þetta hefði farið í gegnum viss þá hefði þetta tekið 2 vikur því þeir senda símana víst út til viðgerðar, það var reyndar fyrir 2 árum veit ekki með núna.
Allt Samsung hjá Viss fer til Tæknavara, Apple er gert við á staðnum og aðrir símar fara annaðhvort út eða til viðeiganda viðgerðaraðila hér á landi.
Re: Brotinn Samsung S10+ Pælingar
Sent: Sun 27. Des 2020 15:21
af Opes
Pandemic skrifaði:einarbjorn skrifaði:Eg lenti í svipuðu með S8 og þetta fór í gegnum tryggingarnar og tryggingarfélagið vildi að þetta færi í gegnum VISS en ég heimtaði að þetta færi í gegnum umboðið (ég þurfti reynar að borga allt en fékk svo til baka frá tryggingarfélaginu mínus sjálfsábyrgð) og fékk það í gegn og ég fékk símann samdægurs og hann var ennþá í ábyrgð en ef þetta hefði farið í gegnum viss þá hefði þetta tekið 2 vikur því þeir senda símana víst út til viðgerðar, það var reyndar fyrir 2 árum veit ekki með núna.
Allt Samsung hjá Viss fer til Tæknavara, Apple er gert við á staðnum og aðrir símar fara annaðhvort út eða til viðeiganda viðgerðaraðila hér á landi.
Get staðfest það. Var hinsvegar ekki svoleiðis fyrir ári síðan, þá voru Samsung símar sendir til Írlands í official viðgerð.