Síða 1 af 1
[TS] 1080 ti FE - Hættur við
Sent: Fim 17. Des 2020 23:31
af MarsVolta
Er með 1080 Ti Founders Edition kort til sölu. Er ekki með aldurinn á hreinu þar sem ég keypti það notað fyrr á þessu ári.
- 701DE5F3-4C48-4710-AC19-4305C0A9713F.jpeg (232.44 KiB) Skoðað 823 sinnum
Verð: Fer til hæst bjóðanda
Ath. Það er smá coil whine hljóð frá kortinu undir miklu load-i
Ég er búinn að prófa þetta betur, og það er ekkert coil whine frá kortinu. Heldur heyrist aðeins í viftunni undir max loadi.
Re: [TS] 1080 ti FE
Sent: Fim 17. Des 2020 23:40
af einarhr
Það er bara Veisla alla daga núna
Re: [TS] 1080 ti FE
Sent: Fös 18. Des 2020 06:54
af karjhaf
Coil whine undir loadi, hvað gæti það táknað ?
Hefði mögulega áhuga, en langar ekki að kaupa kort sem er að fara að hrynja eða eh svoleiðis
Re: [TS] 1080 ti FE
Sent: Fös 18. Des 2020 07:34
af Gislos
þarf bara ekki að smyrja leguna á viftunni. Hef gert það á viftum sem eru farin að heyra aðeins í. Yfirleitt hverfur allur auka hávaði.
Re: [TS] 1080 ti FE
Sent: Fös 18. Des 2020 08:08
af MarsVolta
Gislos skrifaði:þarf bara ekki að smyrja leguna á viftunni. Hef gert það á viftum sem eru farin að heyra aðeins í. Yfirleitt hverfur allur auka hávaði.
Þakka þér fyrir innleggið. Ég var sannfræður um að þetta væri coil whine, en held að þú hafir hitt naglann á höfuðið.
Ég ætla að taka kortið í sundur og skoða þetta.
Eina ástæðan fyrir því að ég er að selja þetta kort er auka hávaðinn, þannig kortið er mögulega ekki til sölu lengur
Re: [TS] 1080 ti FE
Sent: Fös 18. Des 2020 08:13
af Gislos
Bara passa sig að setja ekki WD40 eða olíu sem gufar upp eða setja of mikið. Setja bara vandaða olíu.
Re: [TS] 1080 ti FE
Sent: Fös 18. Des 2020 08:40
af jonsig
Ég myndi prufa að láta skipa um spólurnar á spennureglunni á kortinu ef þetta er ný tilkomið hljóð. Einnig gæti þetta þétta gniður, þeir geta farið að syngja þegar þeir eldast og fara í resonans á annari tíðni. Þetta er frekar auðvelt fyrir rafeindavirkja sem eru vanir SMT
Re: [TS] 1080 ti FE
Sent: Fös 18. Des 2020 10:10
af SolidFeather
Coil whine er alveg "eðlilegt" jafnvel í nýjum skjákortum. Það ætti ekki að þýða að það sé að gefa upp öndina.
Re: [TS] 1080 ti FE
Sent: Fös 18. Des 2020 13:06
af Dropi
Gislos skrifaði:Bara passa sig að setja ekki WD40 eða olíu sem gufar upp eða setja of mikið. Setja bara vandaða olíu.
Fartölvan mín er með segulviftu og keyrt alveg hljóðlaus með steikingarolíu í 18 mánuði
var að vinna að heiman í kofa í svíþjóð þegar ég lagðist á þetta ráð