Síða 1 af 1
Rant um Serrano því þau skilja ekki hvað ég er að segja
Sent: Mið 02. Des 2020 23:18
af netkaffi
Ég ætla gera þráð almennt um þjónustukúltúr. Ætla á byrja á nokkur sem eflaust margir sjá ekkert að, en sjá einhverjir fleiri eitthvað að þessu hjá Serrano en ég?
Hérna er á ferð ósköp eðlileg spurning um hvort einhverjar takmarkanir séu á svokölluðm gjafabréfsleik sem er bara þannig að þú færð gjafabréf með vöru. Ég kaupi þess vöru oft og finnst díllinn líka góður, og finnst ósköp eðlilegt að ég fái að vita hvort þessi gjafabréf sem fylgja með séu háð einhverjum takmörkunum. Ég var ekki alveg að búast við "Ég átta mig ekki alveg á spurningunni?," með spurningarmerki í endanum eins og það sé skrítið væb. Og svo "Ertu með svona mörg?" eins og ég sé krakki. LOL.
Re: Þjónustukúltúr
Sent: Mið 02. Des 2020 23:20
af Dúlli
Hvað ertu eiginlega að tala um ?
Skil vel að serrano skilur þig ekki.
Re: Þjónustukúltúr
Sent: Mið 02. Des 2020 23:23
af netkaffi
Hvað er flókið við "Já ok, ekki neinar takmarkanir [á þessu gjafabréfi]? Eins og fjöldatakmarkanir eða eitthvað."
Re: Þjónustukúltúr
Sent: Mið 02. Des 2020 23:27
af netkaffi
Mér finnst íslendinar oft vera á eftir kananum menningarlega, ég veit að sumir hafa aldrei heyrt um validating væb í viðskiptum en ég tek eftir því að Nova sérstaklega leggja sig mjög fram við þá kúnst.
https://www.google.com/search?q=validat ... er+service
Edit: býst við miklu skítkasti hérna, því ég veit að það eru ákveðnir þættir hérna sem ég er að vinna með sem triggerar ákveðið eðli.
Re: Þjónustukúltúr
Sent: Mið 02. Des 2020 23:31
af mjolkurdreytill
Ert þú skilgreininingin á Karen?
Einhver skildi ekki spurninguna þína og allt er ómögulegt.
Re: Þjónustukúltúr
Sent: Mið 02. Des 2020 23:33
af ZiRiuS
Er ég mættur á boomer.vaktin.is eða?
Aldrei í lífinu myndi ég vilja fá þjónustu eins og í Bandaríkjunum þar sem starfsfólkið er svo tilgerðarlegt að í cringea við að hugsa um það. Allan daginn myndi ég fara inn í búð þar þú ert ekki spurður "get ég aðstoðað?" af 5 mismunandi starfsmönnum.
Re: Þjónustukúltúr
Sent: Mið 02. Des 2020 23:36
af stinkenfarten
einhver skildi ekki spurninguna þína og þú breyttist í Karen, en gaman
Re: Þjónustukúltúr
Sent: Mið 02. Des 2020 23:36
af Lexinn
Þetta þykir mér skemmtilegur þráður
Re: Þjónustukúltúr
Sent: Mið 02. Des 2020 23:36
af stinkenfarten
mér líka, þarf ég að segja
Re: Þjónustukúltúr
Sent: Mið 02. Des 2020 23:41
af netkaffi
Boomer? Mér finnst Nova einmitt vera minnst boomer fyrirtæki á Íslandi og mest valdidating þegar kemur að þjónustusamskiptum og það ber vott um tilfinningagreind og puttann á púlsinum. Ég er engin Karen, ég er ekkert að kvarta. Mér finnst gaman að ræða svona og spá í svona.
Spurningin er "Einhverjar takmarkanir á þessu tilboði, eins og t.d. fjöldatakmarkanir?" og það er ekkert Karen að ræða áhugamál sitt um hvernig á að svara viðskiptavinum. Ég hef sjálfur verið í rekstri, það eru ekki allir á gólfinu eins og þú?
Allan daginn myndi ég fara inn í búð þar þú ert ekki spurður "get ég aðstoðað?" af 5 mismunandi starfsmönnum.
Ósammála. Hef oft farið út úr búð án þess að fá svör og það var ekkert næs. Frekar vil ég fá 5 starfsmenn sem vilja hjálpa? Ertu að grínast? LOL
Ég vann í BT í nokkur ár og það er rosalega mikill munur á hvernig búð er tekið eftir hvað verslunarstjórinn lætur starfsmenn gera, er það bjóða öllum góðan daginn eða bara slæpast bakvið kassa?
Re: Þjónustukúltúr
Sent: Mið 02. Des 2020 23:59
af machinefart
Ef fjarvinna á covid tímum hefur kennt mér eitthvað þá er það að lesa ekki of mikið inn í skrifuð skilaboð frá öðrum. Hér er mín skoðun ef þú hefur einhvern áhuga á henni að þú ert að lesa full mikið í spurningarmerkið góða. Vissulega hefði verið hægt að svara þér öðruvísi en ég fæ bara svona informal vinalegt vibe úr þessu, en þá er ég aftur farinn að lesa á milli línanna.
Re: Þjónustukúltúr
Sent: Fim 03. Des 2020 00:10
af netkaffi
Já, þetta skiptir engu máli sem slíkt. Ég bara tek eftir mismunandi væb frá fyrirtækjum í fjarskiptasamskiptum. Ég spái ógeðlega mikið í þessu og finnst það böggandi þegar það er slakari svörum á ákveðnum stöðum en maður er orðinn vanur annarstaðar. Ég tek t.d. eftir að sum láta spurningar hjá manni hanga í nokkra daga og það er ekki sterkur leikur 2020. Ég er ekki að tala um útaf covid, ég er búinn að vera þjónustusamskiptanördi síðan ég var unlingur síðan eftir aldamót. En ég skal þó segja að covid er aukafaktor. Takk fyrir þroskað svar machinefart.
Re: Þjónustukúltúr
Sent: Fim 03. Des 2020 00:41
af J1nX
Ég sé ekkert að þessu frá Serrano, aðilinn segir að hann skilji ekki alveg spurninguna þína og spyr hvort þú sért með mörg. Þá "ákveður" þú bara að hann sé að meina að það séu fjöldatakmarkanir sem hann notabene gerir ekki (á myndinni sem þú gefur til útskýringar allaveganna). Finnst þú lesa full djúpt í þetta. Ekkert illa meint en ég hef tekið eftir þessu oftar en einu sinni og oftar en tvisvar hjá þér að ef þú færð svar sem þú bjóst ekki við eða þú ert ekki ekki sammála þá ertu strax mættur í vörn og beint upp á "háa c-ið" og farinn að hneykslast/rífast í staðinn fyrir að útskýra þig betur. Hefði ekki verið betra að púlla kurteisina á þetta og segja bara "ahh sorry, ég var að meina hvort það væru einhverjar fjöldatakmarkanir á þessu eða aðrar reglur, eða get ég notað miða í hvert skipti sem ég kaupi tilboðið"
Re: Þjónustukúltúr
Sent: Fim 03. Des 2020 00:51
af netkaffi
Ok, takk.
Re: Þjónustukúltúr
Sent: Fim 03. Des 2020 01:17
af Brimklo
Alltaf vinalegur fílingur í starfsfólkinu hjá Serrano, get ekki sagt það sama um kúnnann.
Re: Þjónustukúltúr
Sent: Fim 03. Des 2020 01:28
af netkaffi
Brimklo skrifaði:Alltaf vinalegur fílingur í starfsfólkinu hjá Serrano, get ekki sagt það sama um kúnnann.
Gott ef það er þannig með starfsfólkið þar.
Umboðsaðili: þetta er gjafabréf sem gildir til 21. Júní, 2021.
Kúnni: Já, eru einhverjar aðrar takmarkanir eins og fjöldi?
Þetta er í raun það sem gerðist, ég fékk svo svar með furðulegum væb en ég get alveg séð að aðrir sjái þetta sem að lesa of mikið í. Ég bara spái í hvað er ideal, og
það er að kúnnar fái að spyrja út í smáa letrið. Og ég verð pirraður ef mér finnst eins og umboðsaðilar séu að ætlast til að maður spyrji ekkert út í "alla" skilmála.
Re: Þjónustukúltúr
Sent: Fim 03. Des 2020 01:36
af Brimklo
netkaffi skrifaði:Umboðsaðili: þetta er gjafabréf sem gildir til 21. Júní, 2021.
Kúnni: Já, eru einhverjar aðrar takmarkanir eins og fjöldi?
Serrano: Ertu með svona mörg?
Kúnni: Ertu að segja að ég megi bara vera með ákveðið magn af þessu?
Gamli ertu eh veruleikafirrtur? Haha hvað er í gangi, ég hlýt að vinna á Serrano því ég skil þig bara ekki.
Re: Þjónustukúltúr
Sent: Fim 03. Des 2020 01:40
af netkaffi
Þartu að vera svona dónalegur? Já, hún svaraði ekki spurningunni beint svo að ég spurðu hvort að ég mætti bara vera með ákveðið magn af þessu eða hvort það væri meiningin? Ég er bara að reyna fá svar við því. Hættu að vera svona ógeðslegur við mig. Ég er bara kúnni sem lendi í því að fá vafa um þessi gjafabréf sem fylgja með hvort þau endist mér eitthvað og ef svo er þá vil ég kaupa meira af þessari vöru. Ég er eflaust ekkert einn um það.
Re: Þjónustukúltúr
Sent: Fim 03. Des 2020 01:55
af Brimklo
netkaffi skrifaði:Farðu í ****. Ég tala oft við fyrirtæki og hef sjálfur unnið við þjónustu það var ekkert að þessu. Ég vissi að ég myndi fá svona pl***** sem myndu vera með afsakanir og invalidating stæla.
Já því ég er svo dónalegur og ógeðslegur haha. Týpískt að manneskja eins og þú ert dónalegur og ef það svarar eh í sömu mynt þá spilar þú þig sem fórnarlambið. Gott að þú getur tekið þetta út á okkur hér á vaktinni, þá fær kannski starfsfólkið á Serrano aðeins minni skít.
Re: Þjónustukúltúr
Sent: Fim 03. Des 2020 02:09
af netkaffi
Það er munur á að vera spjalla í gamni á spjallborði á netinu og að vera svara fyrir fyrirtæki í samskiptamiðlinum þeirra.
Gott að þú getur tekið þetta út á okkur hér á vaktinni
Rólegur vinur, ég var að þakka machinefart og J1nx fyrir póstana þeirra sem voru þroskaðir. Viltu ekki tjilla?
Re: Þjónustukúltúr
Sent: Fim 03. Des 2020 02:33
af Mossi__
Enn einn þráðurinn frá þér sem ég botna ekkert í, Netkaffi.
Hún er ekki að fatta hvað þú átt við, og biður þig um að útskýra hvað þú átt við, sem fólk gerir þegar það fattar ekki hvað hinn á við.
Eg er að reyna að fatta hvað þú átt við, en fatta ekki hvað þú átt við. Geturu útskýrt hvað þú átt við. Eða ætlarðu að stofna annan þráð þar sem þér finnst skrítið að ég skuli ekki fatta hvað þú átt við, í staðinn fyrir að útskýra bara hvað þú átt við.
Mér finnt hún ekki vera með einhvern slæman þjónustkúltúr.
Re: Þjónustukúltúr
Sent: Fim 03. Des 2020 03:01
af daremo
netkaffi skrifaði:Boomer? Mér finnst Nova einmitt vera minnst boomer fyrirtæki á Íslandi og mest valdidating þegar kemur að þjónustusamskiptum og það ber vott um tilfinningagreind og puttann á púlsinum. Ég er engin Karen, ég er ekkert að kvarta. Mér finnst gaman að ræða svona og spá í svona. ?
Það er ekki langt síðan ég spáði í því hvers vegna Nova var eiginilega svona vinsælt fjarskiptafyrirtæki.
Fór í viðskipti til þeirra í fyrsta skipti á þessu ári þegar ég flutti í íbúð sem býður upp á ljósleiðara frá gagnaveitunni.
Starfsfólkið þeirra var svo rosalega fake eitthvað.
Það var greinilega þjálfað í að nota einhverja ákveðna tækni til að láta fólk halda að það væri að fá rosalega góða þjónustu, bara með því að nota einhvers konar viðtalstækni sem ég þekki ekki.
Þetta hljómaði allavega mjög bandarískt og gervilegt, og ég ákvað þar og þá að ég myndi flytja aftur til Símans um leið og þeir fengju aðgang að ljósleiðara Gagnaveitunnar.
Það gerist í Janúar og ég get ekki beðið.
Er reyndar mjög sáttur við Nova og allt það, hvað ljósleiðarinn er stöðugur osfrv, en það situr bara í mér að þetta fyrirtæki neyðir starfsfólkið sitt til að ljúga að viðskiptavinum og þykjast vera ógeðslega næs og í góðu skapi.
Re: Þjónustukúltúr
Sent: Fim 03. Des 2020 03:09
af netkaffi
Ókei, ég skal reyndar viðurkenna það að Nova hafa stundið verið svo "næs" að það virðist bera vera hafa verið bullað til að halda mér góðum. LOL. Einhver sagði mér að ég gæti fengið AlltSaman þó að að það ætti ekki við. En svo rættist það, ég er enn sáttur með Nova. Þau bara redduðu þessu fyrir mig. Mér finnst að þjónustusamskipti eigi ekki að vera persónuleg. Þau eiga að vera 100% gott og jákvætt væb og þú átt ekki að sýna neinn persónulegan pirring.
Ég var sjálfur að vinna í BT og mér var alveg sama ef kúnnar voru pirraðir. Ég var alltaf eins og svaraði bara eftir bestu getu.
Mossi__ skrifaði:Enn einn þráðurinn frá þér sem ég botna ekkert í, Netkaffi.
Hún er ekki að fatta hvað þú átt við, og biður þig um að útskýra hvað þú átt við, sem fólk gerir þegar það fattar ekki hvað hinn á við.
Eg er að reyna að fatta hvað þú átt við, en fatta ekki hvað þú átt við. Geturu útskýrt hvað þú átt við. Eða ætlarðu að stofna annan þráð þar sem þér finnst skrítið að ég skuli ekki fatta hvað þú átt við, í staðinn fyrir að útskýra bara hvað þú átt við.
Mér finnt hún ekki vera með einhvern slæman þjónustkúltúr.
Ókei, ég var bara of fljótur á mér. Mér fannst það kannski eitthvað niðurlægjandi að hún væri að spyrja hvort ég væri með mörg gjafabréf. LOL. Ég er með þrjú og þau gilda til næsta sumars.
Ég get ekki séð að það skipti máli hvort að ég sé persónulega með mörg eða ekki, ég er að spyrja út í viðskiptaskilirðin. Ég gæt verið að spyrja fyrir LAN-teymið mitt sem ætlar út á Serranó að borða og sá þetta tilboð.
Ég veit að sumir eru bara að White Knighta hérna. Taka upp hanskann fyrir eitthvað spurningaferli á Serrano veitingastaðakeðju, LOL
Auðvitað á ekki að svara persónulega þegar maður vinnur hjá veitingakeðju. Það kemur þessu ekkert við hvað ég er með mörg gjafabréf eða hvort litli frændi minn er hjá mér sem eyddi úr sparibauknum sínum til að kaupa 10 gjafabréf eða hvort ég sé að spyrja fyrir áfangaheimili með sprautufíklum sem ætlar út að borða, eða hvort ég sé að spyrja fyrir skátahóp sem var að fara með flöskur í endurvinnsluna.
Og ég vildi bara vera viss hvort það væri eitthvað "á meðan birgðir endast" eða hvort ég þyrfti að nýta þau áður en birgðir klárast. Mér er alveg nákvæmlega sama, ég bara tek svona Jói-út-í-bæ pælingu með þetta á hvernig ég upplifði þessi samskipti. Ég var ekkert að fá "já, þú getur notað eins mörg og þú vilt til 2021!" Þetta er kannski skrítinn þráður en ég er lærdómsins ríkari.
Re: Þjónustukúltúr
Sent: Fim 03. Des 2020 08:11
af Dúlli
Mig líður en svona eftir 20 sirka comment inná þræðinum.
Re: Þjónustukúltúr
Sent: Fim 03. Des 2020 08:49
af Sallarólegur
Þessi titill er í engu samræmi við þennan þráð og ég skil hvorki upp né niður í því hvað þú ert að meina með þessu, frekar en aðrir hér.
Læst
Edit:
Ég fékk að sjálfsögðu einkaskilaboð frá OP.
Hér er svarið mitt:
Nenni ekki svona neikvæðni.
Þetta er bara röfl sem á ekki heima á tölvuspjalli.
Svona þræðir bjóða bara upp á tuð og leiðindi.