Síða 1 af 1
Uppfærsla (endurnýjun)
Sent: Fös 27. Nóv 2020 18:25
af J1nX
Sælt veri fólkið.
Ég var að gæla við að gefa sjálfum mér "uppfærslu" eða endurnýjun á nokkrum íhlutum sem eru orðnir töluvert gamlir í tölvunni..
ég hef verið duglegur við að halda við í örgjörvum, móðurborði og skjákorti og þarf ekki uppfærslu á því en turnkassinn er með 2 brotnar lappir, hörðu diskarnir orðnir gamlir og power supply-ið orðið slappt held ég (man ekki hvenær ég keypti það.. er HX650w corsair), svo er ég með 1x 16gb corsair minni.
Ég er semsagt að leita eftir kassa með góðu loftflæði og viftum,
Power supply mögulega ef það er frá fornöld?
bæta við minnið til að hafa þetta dual channel (sama hvort ég kaupi alveg nýtt og selji gamla, eða bæti við kubbinn sem ég á)
m.2 ssd disk (var að pæla í 1tb og hafa 1 partition fyrir windows og rest fyrir leiki)
geymsludisk (ekki minna en 2tb) fyrir gamla leiki sem þurfa ekki hraða ssd, forrit og myndir/þætti.
Málið er að ég bý á Sigló og hef því ekki greiðan aðgang að tölvuverslunum, þannig ég hafði hugsað mér að kaupa þetta allt í sömu búðinni og koma gamla kassanum til þeirra og færa allt yfir í þann nýja og sækja svo allt heila klabbið þegar þeir eru búnir. Kísildalur heillar mest en þægilegast væri að versla við Tölvulistann eða Tölvutek þar sem þeir hafa verslanir á Akureyri
set inn mynd af því sem er í tölvunni (vantar skjákortið á myndina en það er 1080 Ti) og svo það sem ég var búinn að setja saman hjá Kísildal (ég hef samt ekkert vit á þessu og setti bara inn það sem mér leyst á) *edit* bætti við mynd af einhverju sem ég setti saman hjá tölvulistanum
Getiði mælt með einhverju í svipuðum dúr?
Re: Uppfærsla (endurnýjun)
Sent: Fös 27. Nóv 2020 18:43
af SolidFeather
Budget?
Re: Uppfærsla (endurnýjun)
Sent: Fös 27. Nóv 2020 19:07
af J1nX
SolidFeather skrifaði:Budget?
það er bara eitthvað í kringum þetta sem ég setti inn, helst ekki yfir 140k
Re: Uppfærsla (endurnýjun)
Sent: Fös 27. Nóv 2020 19:44
af SolidFeather
Mér lýst ágætlega á þennan pakka frá TL. Ég er með kassa frá Fractal Design og vifturnar sem fylgja með eru fínar og kassinn sjálfur veglegur. Flott verð líka á þessum C kassa núna. Ég þekki þennan AeroCool ekki neitt en hann virkar pínu... "cheap".
Ég myndi ábygglega bömpa mig upp í RM850w aflgjafann.
Svo er spurning hvort það sé þess virði að fara í M.2 drifið. Þú gætir t.d. notað núverandi 250GB samsung SSD diskinn sem stýrikerfisdisk og fengið þér annan 2tb samsung SSD fyrir leiki/forrit/gögn. Er þessi Corsair SSD diskur núverandi stýriskerfisdiskur? Það er hægt að fá 2TB samsung evo ssd disk á sirka 37.000 kominn heim frá B&H, svo er eflaust hægt að fá ennþá ódýrari diska frá öðru merki.
Svona lítur þetta þá út:

Re: Uppfærsla (endurnýjun)
Sent: Fös 27. Nóv 2020 20:03
af J1nX
128gb m4 diskurinn er stýriskerfisdiskurinn, en þessi pakki hjá þér hljómar vel.. heldurðu að diskarnir mínir séu ekkert orðnir þreyttir og kominn tími á skipti?
*edit* ég hugsaði bara um m2 disk því hraðinn er svo miklu meiri á þeim og maður vill hafa allt í toppstandi þegar Cyberpunk kemur út

Re: Uppfærsla (endurnýjun)
Sent: Fös 27. Nóv 2020 20:18
af SolidFeather
Neee er það nokkuð. Ég er búinn að vera með 250GB 840 EVO sem stýriskerfisdisk í nokkurn tíma. Hann er í fullu fjöri. HWiNFO segir að hann sé með 92% Remaining Life. Reikna með að hann sé eldri en þinn 850 diskur. Ég er svo með nokkra Seagate HDD í server hjá mér, ég sé ekki ástæðu til þess að skipta þeim út nema þeir bili eða ef mig vantar meira pláss.
Ég sé allaveganna ekki ástæðu til þess að skipta út diskum "af-því-bara". Kannski veit einhver annar um ástæðu til þess.
edit: Já það virðist alveg vera munur á M.2 og SATA þegar kemur að loading tíma í leikjum allaveganna miðað við þetta myndband:
https://www.youtube.com/watch?v=WqjT0QSfGs4
Spurning hvort það sé samt þess virði? Það er þitt að ákveða!
Re: Uppfærsla (endurnýjun)
Sent: Fös 27. Nóv 2020 20:31
af J1nX
ahh miðað við þetta myndband er nú minni munur á ssd og m.2 en ég bjóst við.. kannski maður melti þetta eitthvað um helgina og ákveði á sunnudaginn áður en tilboðin hætta
*edit* samkvæmt hwinfo64 er stýriskerfisdiskurinn á 70% life og Evo diskurinn 97%, kannski rétt hjá þér að maður noti evo diskinn bara sem stýriskerfisdisk og splæsi í 2tb ssd fyrir rest.
Re: Uppfærsla (endurnýjun)
Sent: Fös 27. Nóv 2020 20:35
af SolidFeather
Ef ég myndi fara í M.2 dríf þá myndi ég líklegast gera það svona:
Nota 480GB diskinn fyrir strýrikerfi og forrit en 1TB drifið fyrir leikina. Nota svo 2TB HDD diskinn áfram og jafnvel merge-a 128GB + 250GB drifunum í eitt drif...
Það er nú meira hvað hægt er að pæla í þessu.
Re: Uppfærsla (endurnýjun)
Sent: Fös 27. Nóv 2020 20:41
af jonsig
Mér finnst alltaf meira virði að versla við búðir sem eru ekki með eitthvað pex ef það koma upp gallar eða bilanir á tölvunni manns, því er ég farinn yfir í kísildalinn þótt ég fýli ekkert sérlega sumt af stuffinu þeirra.
Re: Uppfærsla (endurnýjun)
Sent: Fös 27. Nóv 2020 20:46
af J1nX
jonsig skrifaði:Mér finnst alltaf meira virði að versla við búðir sem eru ekki með eitthvað pex ef það koma upp gallar eða bilanir á tölvunni manns, því er ég farinn yfir í kísildalinn þótt ég fýli ekkert sérlega sumt af stuffinu þeirra.
já ég verslaði alltaf við Kísildal áður en ég flutti aftur heim á sigló (flutti í apríl), það bara flækir málin svo mikið og væri helst til í að vera kominn með tölvuna til baka þegar Cyberpunk kemur út

Re: Uppfærsla (endurnýjun)
Sent: Fös 27. Nóv 2020 20:52
af jonsig
J1nX skrifaði:jonsig skrifaði:Mér finnst alltaf meira virði að versla við búðir sem eru ekki með eitthvað pex ef það koma upp gallar eða bilanir á tölvunni manns, því er ég farinn yfir í kísildalinn þótt ég fýli ekkert sérlega sumt af stuffinu þeirra.
já ég verslaði alltaf við Kísildal áður en ég flutti aftur heim á sigló (flutti í apríl), það bara flækir málin svo mikið og væri helst til í að vera kominn með tölvuna til baka þegar Cyberpunk kemur út

Það væri málið að taka þetta með DHL gegnum kísildal heldur en að díla við einhvern 18ára menntaskóla droupout sem veit allt um tölvur.
Re: Uppfærsla (endurnýjun)
Sent: Fös 27. Nóv 2020 21:40
af J1nX
tjahh ef einhver setur saman góðsn pakka frá Kísildal þá er ég alveg opinn fyrir að skoða það að senda tölvuna bara með póstinum til þeirra (þeas ef sá möguleiki er fyrir hendi) eða senda tölvuna á vin eða ættingja og þeir henda tölvunni til þeirra..
fór líka að velta því fyrir mér hvort tölvulistinn á AK setji saman tölvur því samkvæmt heimasíðunni þeirra er verkstæðið þeirra bara í RVK
https://tl.is/page/verkstaedi og þá væri tölvan hvort sem er að ferðast suður og til baka og ég gæti þess vegna verslað frekar við Kísildal
Re: Uppfærsla (endurnýjun)
Sent: Fös 27. Nóv 2020 21:52
af Viggosson
jonsig skrifaði:J1nX skrifaði:jonsig skrifaði:Mér finnst alltaf meira virði að versla við búðir sem eru ekki með eitthvað pex ef það koma upp gallar eða bilanir á tölvunni manns, því er ég farinn yfir í kísildalinn þótt ég fýli ekkert sérlega sumt af stuffinu þeirra.
já ég verslaði alltaf við Kísildal áður en ég flutti aftur heim á sigló (flutti í apríl), það bara flækir málin svo mikið og væri helst til í að vera kominn með tölvuna til baka þegar Cyberpunk kemur út

Það væri málið að taka þetta með DHL gegnum kísildal heldur en að díla við einhvern 18ára menntaskóla droupout sem veit allt um tölvur.
Sæll
Er starfsmaður hjá TL á Akureyri, ég er kannski ekki 18 ára eða menntaskóla “dropout” og ég veit ekki allt um tölvur, það veit enginn allt.
Hinsvegar reyni ég mitt besta að veita sem bestu þjónustu og ég get veitt og hef gaman af því.
Starfsmenn hjá Tölvutek Akureyri eru líka duglegir að veita góða þjónustu, þekki ekki mikið til en
Hef heyrt góða hluti allavega fyrir norðan.
Eniak er á Akureyri og getur selt áfram vörur frá Kísildal og eru þeir eldklárir líka, þekki einn af þeim àgætlega og hann er líka mjög lipur í samskiptum.
Sem vaktari, þá er leiðinlegt að lesa að maður sé hrokafullur ungur maður sem telur sig vita allt og er ég viss að aðrir starfsmenn hjá mismunandi verslunum finnist það líka.
Það er hægt að mæla með verslun án þess að vera með óþarfa alhæfingar athugasemd um starfsmenn annarra verslana.
Kv Einar
Re: Uppfærsla (endurnýjun)
Sent: Fös 27. Nóv 2020 21:56
af Njall_L
Mér vitanlega eru Tölvutek og Eniak (
https://eniak.is/) einu verkstæðin á Akureyri, Tölvulistinn ekki með neitt slíkt.
Þetta er flottur pakki sem þú hefur sett saman hjá Kísildal, fyrir utan allt nema kassann. Fractal Design kassinn hjá TL væri að mínu mati margfalt betri kostur, sérstaklega á núverandi tilboði. Ef þú fengir félaga til að kaupa þennan FD kassa hjá TL og koma honum í Kísildal þá efast ég um að þeir í Kísildal myndu gera nokkuð annað en að byggja í honum fyrir þig.
Re: Uppfærsla (endurnýjun)
Sent: Fös 27. Nóv 2020 21:56
af Viggosson
J1nX skrifaði:tjahh ef einhver setur saman góðsn pakka frá Kísildal þá er ég alveg opinn fyrir að skoða það að senda tölvuna bara með póstinum til þeirra (þeas ef sá möguleiki er fyrir hendi) eða senda tölvuna á vin eða ættingja og þeir henda tölvunni til þeirra..
fór líka að velta því fyrir mér hvort tölvulistinn á AK setji saman tölvur því samkvæmt heimasíðunni þeirra er verkstæðið þeirra bara í RVK
https://tl.is/page/verkstaedi og þá væri tölvan hvort sem er að ferðast suður og til baka og ég gæti þess vegna verslað frekar við Kísildal
Þú getur komið með tölvuna í Tölvulistann á Akureyri og við græjum tölvuna á staðnum

Re: Uppfærsla (endurnýjun)
Sent: Fös 27. Nóv 2020 22:34
af jonsig
Viggosson skrifaði:
Sem vaktari, þá er leiðinlegt að lesa að maður sé hrokafullur ungur maður sem telur sig vita allt og er ég viss að aðrir starfsmenn hjá mismunandi verslunum finnist það líka.
Það er hægt að mæla með verslun án þess að vera með óþarfa alhæfingar athugasemd um starfsmenn annarra verslana.
Kv Einar
Rólegur að reyna misskilja mig til að geta tekið eitthvað fórnarlambsvæl dagsins með því að leggja orð í minn munn til að græja smá auglýsingu á þetta.
Hrikalega er þetta orðið þreytt.
Re: Uppfærsla (endurnýjun)
Sent: Fös 27. Nóv 2020 22:36
af jonsig
Ég þarf varla að útskýra að kísildalsmenn bera höfuð og herðar í reynslu og þekkingu yfir allar þessar "tölvukeðjur" hérna á klakanum sem eru þjakaðar af starfsmannaveltu og láglaunastefnu.
Re: Uppfærsla (endurnýjun)
Sent: Fös 27. Nóv 2020 23:27
af Viggosson
jonsig skrifaði:
Rólegur að reyna misskilja mig til að geta tekið eitthvað fórnarlambsvæl dagsins með því að leggja orð í minn munn til að græja smá auglýsingu á þetta.
Hrikalega er þetta orðið þreytt.
Síðasta innlegg svo þetta fari ekki lengra off topic
Ég tilvitnaði þín orð og sagði svo mína skoðun rétt eins þú.
Þetta var heiðarleg tilraun hjá mér til að minna á almenna kurteisi
og hefur hún greinilega hitt í mark, fyrst þú ert orðinn þreyttur á að láta minna þig á þau.
þín orð, þín skoðun og ekkert matað upp í þig.
Ekki veit ég hvernig þú sást þetta sem auglýsingu þegar ég taldi upp staði á Akureyri sem gætu hjálpað
með samsetninguna, allar tölvubúðir á Akureyri nálægt Siglufirði.
Re: Uppfærsla (endurnýjun)
Sent: Lau 28. Nóv 2020 08:31
af jonsig
Viggosson skrifaði:
Síðasta innlegg svo þetta fari ekki lengra off topic
Viljum nú ekki að þetta fari off-topic núna eftir allt bullið í þér.
Re: Uppfærsla (endurnýjun)
Sent: Lau 28. Nóv 2020 09:21
af DaRKSTaR
Viggosson skrifaði:jonsig skrifaði:
Rólegur að reyna misskilja mig til að geta tekið eitthvað fórnarlambsvæl dagsins með því að leggja orð í minn munn til að græja smá auglýsingu á þetta.
Hrikalega er þetta orðið þreytt.
Síðasta innlegg svo þetta fari ekki lengra off topic
Ég tilvitnaði þín orð og sagði svo mína skoðun rétt eins þú.
Þetta var heiðarleg tilraun hjá mér til að minna á almenna kurteisi
og hefur hún greinilega hitt í mark, fyrst þú ert orðinn þreyttur á að láta minna þig á þau.
þín orð, þín skoðun og ekkert matað upp í þig.
Ekki veit ég hvernig þú sást þetta sem auglýsingu þegar ég taldi upp staði á Akureyri sem gætu hjálpað
með samsetninguna, allar tölvubúðir á Akureyri nálægt Siglufirði.
ekkert nýtt að þessi þunglindis/vaxtagreiðslumaður sé skjótandi á allt og alla hérna inni.
Re: Uppfærsla (endurnýjun)
Sent: Lau 28. Nóv 2020 11:14
af jonsig
DaRKSTaR skrifaði:
ekkert nýtt að þessi þunglindis/vaxtagreiðslumaður sé skjótandi á allt og alla hérna inni.
Vonandi færðu tvö eða þrjú læk fyrir þetta. skal gefa þér !
Re: Uppfærsla (endurnýjun)
Sent: Lau 28. Nóv 2020 13:24
af J1nX
Re: Uppfærsla (endurnýjun)
Sent: Lau 28. Nóv 2020 13:36
af mercury
Re: Uppfærsla (endurnýjun)
Sent: Lau 28. Nóv 2020 15:03
af J1nX