Síða 1 af 1
Hljóðlatari tölvu takk.
Sent: Fös 03. Jún 2005 18:53
af CCR
Ég er orðinn alveg snargeðveikur á þessari helvítus hávaðadruslu sem ég sit við. Hvernig get ég gert hana eins silent og hægt er án þess að eyða fullt af pening í það. Ég er með fína Zalman viftu á örgjörvanum, og silent kassaviftur en málið er að þegar 4 harðir diskar koma saman þar er gaman. Svo er ég með fortron aflgjafa sem heyrist ekki múkk í en skjákort sem suðar smá.
Get ég einangrað kassan á einhvern ódýran hátt?
Get ég gengið frá hörðudiskunum eitthvað betur?
Vantar ráðleggingar.
Sent: Fös 03. Jún 2005 19:20
af Veit Ekki
Sent: Fös 03. Jún 2005 19:31
af gumol
Eða þetta:
http://start.is/product_info.php?cPath= ... cts_id=636
Sumir hafa verið að setja hörðu diskana í teyjur þannig það verði enginn titringur sem skapar hávaða. Það hefur samt lítil áhrif ef hljóðið er innanúr harða diskinum.
Sent: Fös 03. Jún 2005 20:17
af urban
já þess má geta að ef að þú setur þetta einangrunar dót í tölvuna hjá þér að þetta er EINANGRUN !!!
hitinn getur aukist ef þú gerir þetta (ath það er ekkert öruggt) þannig að þú skallt fylgjast með hitanum næstu daga á eftir og ath hvort að hann hækki eitthvað að ráði
Sent: Fös 03. Jún 2005 20:27
af fallen
urban- skrifaði:hitinn getur aukist ef þú gerir þetta (ath það er ekkert öruggt) þannig að þú skallt fylgjast með hitanum næstu daga á eftir og ath hvort að hann hækki eitthvað að ráði
Maður setur nottlega ekki einangrunarefnið fyrir loftinntökin á kassanum :L
Svona efni, silenx/papst viftur, silenx psu, zalman 7700/7000 örrakæling = skothelt.
Getur svo fengið þér
svona kaffi, á að lækka hávaðann í hdd eitthvað :O
Sent: Fös 03. Jún 2005 20:54
af MezzUp
Ég myndi persónulega ekki fara að „kæfa“ hávaðann inní kassanum, þótt að það sé reyndar eitt það ódýrasta í stöðunni. Ég sjálfur stefni á að reyna að lækka hljóðið í tölvunni bráðlega, þótt að það sé nú ekki hátt þá vill ég hafa það ennþá lægra.
Ég myndi henda út öllum þessum diskum og ætla að skella mér á eitt stk. Seagate Barracude eða Samsung Spinpoint(heita þeir ekki það?). Skella disknum svo í einhverskonar fjöðrun ef að hann titrar eitthvað, og ekki kæfa hann með neinu, nema að hann sé frekar kaldur fyrir og/eða gefið mikið af hljóðum innan úr sér.
Síðan er að skella sér á einhverskonar Zalman HS/FAN bolla fyrir örgjörvan.
Fæ mér síðan fanless VGA cooler eða bara skjákort án viftu(spila ekki leiki) og eitthvað PSU sem fær góða dóma á
http://www.silentpcreview.com.
Að lokum myndi ég kannski skella svona mottuefni í kassan ef að hann er frekar kaldur eftir þetta allt.
Ég er svona að pæla í að gera eitthvað af þessu, en þið verðið auðvitað fyrstir að heyra af því
fallen skrifaði:Maður setur nottlega ekki einangrunarefnið fyrir loftinntökin á kassanum :L
Nei, en það fer oftast einhver hiti út úr kassanum í gegnum hliðarnar. Prófaðu að setja hendurnar á allar hliðar kassans og athugaðu hvort að þær sé ekki örlítið volgar. Allur sá hiti væri þá inní kassanum.
Sent: Lau 04. Jún 2005 00:20
af Hognig
það tapast varmi gegnum þykka veggi... afhverju ekki gegnum 2mm (ef þetta nær því) stál/ál/járn (hvað sem er notað)

Sent: Lau 04. Jún 2005 01:30
af Sallarólegur
Er ekki bara málið að fá sér bara stóra slöngu, setja hana útum gluggann og láta vindinn kæla tölvuna

Sent: Lau 04. Jún 2005 01:36
af fallen
Viktor skrifaði:Er ekki bara málið að fá sér bara stóra slöngu, setja hana útum gluggann og láta vindinn kæla tölvuna

já
eða bara blása á örgjörvann, HVER ÞARF HEATSINK SKILURU ?
Sent: Lau 04. Jún 2005 15:58
af CCR
Viktor skrifaði:Er ekki bara málið að fá sér bara stóra slöngu, setja hana útum gluggann og láta vindinn kæla tölvuna

Hvað með rakan sem því fylgir????
Sent: Lau 04. Jún 2005 17:56
af Mr.Jinx
fallen skrifaði:Viktor skrifaði:Er ekki bara málið að fá sér bara stóra slöngu, setja hana útum gluggann og láta vindinn kæla tölvuna

já
eða bara blása á örgjörvann, HVER ÞARF HEATSINK SKILURU ?
>Ha Ha Ha Ha. góður Fallen.
