Síða 1 af 1

Passamyndir ökuskírteini?

Sent: Lau 10. Okt 2020 16:45
af jonsig
Sælir.
Ég hef svokallað meirapróf fyrir hobby. Ekki atvinnu. Hvar tekur maður passamynd fyrir endurnýjun á ökuskírteini? Eru sjálfsalarnir ennþá gúdderaðir? Þá.. hvar eru þannig á höfuðborgarsvæðinu

Re: Passamyndir ökuskírteini?

Sent: Lau 10. Okt 2020 17:00
af ElGorilla
Fór á stofuna sem var á Hlemmi síðast eru í Kópavogi núna. Fékk slatta af myndum í umslagi og svo sendu þeir mér þær líka í tölvupósti.

Re: Passamyndir ökuskírteini?

Sent: Lau 10. Okt 2020 17:34
af gotit23
Fór í smáralind þar er löggild "box"

Re: Passamyndir ökuskírteini?

Sent: Lau 10. Okt 2020 17:53
af Hizzman
bleksprautuprentari hér

Re: Passamyndir ökuskírteini?

Sent: Lau 10. Okt 2020 17:56
af vesi
Ég fer bara á stofuna í næsta húsi. Fynnst þeir ekki dýrir. Svo eiga þeir mynd af þér í eh tíma sem þú getur fengið prentaða út.
Þetta er sú sama sem var á hlemmi í gamla daga.

Re: Passamyndir ökuskírteini?

Sent: Lau 10. Okt 2020 18:32
af jonsig
gotit23 skrifaði:Fór í smáralind þar er löggild "box"

Eitthvað nýlega?

Re: Passamyndir ökuskírteini?

Sent: Lau 10. Okt 2020 18:51
af Kristján Gerhard
jonsig skrifaði:
gotit23 skrifaði:Fór í smáralind þar er löggild "box"

Eitthvað nýlega?
Það er á jarðhæðinni milli Bæjarins Beztu og skósmiðsins. Notaði þetta um daginn fyrir bankann.

Re: Passamyndir ökuskírteini?

Sent: Lau 10. Okt 2020 18:58
af arons4
Fór í svona sjálfsala í firðinum í hafnarfirði fyrir nokkrum árum.

Re: Passamyndir ökuskírteini?

Sent: Lau 10. Okt 2020 19:07
af gotit23
jonsig skrifaði:
gotit23 skrifaði:Fór í smáralind þar er löggild "box"

Eitthvað nýlega?
já fyrir mánuði siðan

Re: Passamyndir ökuskírteini?

Sent: Lau 10. Okt 2020 19:13
af jonsig
Kristján Gerhard skrifaði:
jonsig skrifaði:
gotit23 skrifaði:Fór í smáralind þar er löggild "box"

Eitthvað nýlega?
Það er á jarðhæðinni milli Bæjarins Beztu og skósmiðsins. Notaði þetta um daginn fyrir bankann.
Takk, en nenni ekki að fara í þennan miðbæ nema fyrir 100þús á tímann

Re: Passamyndir ökuskírteini?

Sent: Lau 10. Okt 2020 23:01
af Kristján Gerhard
jonsig skrifaði:
Kristján Gerhard skrifaði:
jonsig skrifaði:
gotit23 skrifaði:Fór í smáralind þar er löggild "box"

Eitthvað nýlega?
Það er á jarðhæðinni milli Bæjarins Beztu og skósmiðsins. Notaði þetta um daginn fyrir bankann.
Takk, en nenni ekki að fara í þennan miðbæ nema fyrir 100þús á tímann
Miðbæ? Smáralind telst nú seint vera í miðbænum.

Re: Passamyndir ökuskírteini?

Sent: Sun 11. Okt 2020 14:30
af kizi86
mér finnst bara fáránlegt að þurfa að koma sjálfur með mynd fyrir ökuskírtenið, en ekki ef ert að fá vegabréf, þar er krafan að sýslumaður tekur myndina af þér sjálfur.. bæði löggild skilríki, af hverju mismunandi reglur?

Re: Passamyndir ökuskírteini?

Sent: Sun 11. Okt 2020 14:43
af Hizzman
Síðast þegar ég endurnýjaði, tók ég sjálfur mynd og prentaði á ljósmyndapappír. Tók enga stund að græja það. Brot af tímanum sem það hefði tekið að finna eitthvert box eða ljósmyndara. Kostaði næstum ekkert. Fékk engar athugasemdir hjá Sýsla..

Re: Passamyndir ökuskírteini?

Sent: Sun 11. Okt 2020 17:33
af natti
kizi86 skrifaði:mér finnst bara fáránlegt að þurfa að koma sjálfur með mynd fyrir ökuskírtenið, en ekki ef ert að fá vegabréf, þar er krafan að sýslumaður tekur myndina af þér sjálfur.. bæði löggild skilríki, af hverju mismunandi reglur?
Því það eru mismunandi reglur fyrir þessar myndir.
Myndin fyrir vegabréfið verður að uppfylla ákveðin skilyrði. T.a.m. að ekki megi brosa þannig að það sjáist í tennur, hvernig þú snýrð, og svo framvegis.
Og þó svo að starfsfólk Sýslumanns taki alltaf mynd, þá er jafnframt í boði að fara til ljósmyndara til að láta "fagmann" taka mynd sem er svo notuð í vegabréfið.

Það eru ekki sömu kröfur fyrir ökuskírteinismynd. Það að þú sért skakkur/skökk í einhverjum passamyndaklefa í Kringlunni eða Smáralind eru "valid" myndir.