Síða 1 af 1

Held aldrei aftur framhjá

Sent: Mið 07. Okt 2020 22:02
af Templar
Búinn að iðrast og sættast aftur við gömlu kærustuna, AsRock.

Keypti Gigabyte AC Elite, Coil Whine-ið var að gera mig brjálaðan og spennusettið er ekki betra en það að USB DAC sem ég nota fyrir góða hátalara var að fá suð og surg sem að DAC-inn náði ekki að einangra frá. Boot var aldrei í native 1440p og leit aldrei vel út. Gigabyte setti svo misheppnað BIOS update sem braut RGP á móðurborðinu, löguðu það samt að lokum. Meh BIOS og ekkert autoupdate.

Fannst Z490 línan frá AsRock ekki nógu spennó en stundum er spennó bara ekki málið, það eru litlu atriðin og kjarnavirkni hlutanna þegar á reynir.
Inn fór AsRock Taichi Z490..
Native 1440P ultra fast boot núna, lúkkar margfalt betur sérstaklega þar sem ég nota bitlocker, allt í einu er núll surg í hátölurunum og guð minn góður hvað er gott að hafa nákvæmlega ekkert coil whine, ég bý á mjög hljóðlátum stað og allt coil whine heyrist.
Betra BIOS, auto updates beint frá BIOS og ekkert ves.

Aðrir sem hafa lennt í svona coil whine á nýlegum mid-range borðum? Gékk eitthvað að fá skipt?

Re: Held aldrei aftur framhjá

Sent: Mið 07. Okt 2020 22:57
af GuðjónR
LOL ég hélt ég væri að fara að lesa eitthvað mega slúður!
Þú hefur verið óheppinn með móðurborð, alls ekki eðlilegt miðað við hvernig þú lýsir þessu.
Að því sögðu, þá segi ég til hamingju með nýja móðurborðið, mér finnst Taichi línan hjá AsRock alltaf bera höfuð og herðar yfir önnur móðurborð bæði út frá gæðum og ekki síður útliti.

Re: Held aldrei aftur framhjá

Sent: Mið 07. Okt 2020 23:13
af jonsig
Mér finnst alltaf asrock standa sig vel

Re: Held aldrei aftur framhjá

Sent: Mið 07. Okt 2020 23:34
af Mossi__
.. Gigabyte. That was your mistake :D

Re: Held aldrei aftur framhjá

Sent: Fim 08. Okt 2020 01:08
af vesi
ef þetta er ekki mest clickbate þráður vaktarinar ever!!!

Re: Held aldrei aftur framhjá

Sent: Fim 08. Okt 2020 09:16
af Sallarólegur
Kannast við þetta USB suð vesen.

Ein af ástæðunum fyrir því að tónlistarfólk notar Mac.

Re: Held aldrei aftur framhjá

Sent: Fim 08. Okt 2020 09:48
af DaRKSTaR
ætlaði að taka taichi borðið, var ekki sáttur við það eftir þau reviews.

ekkert á þessu borði sem réttlætir verðið.

Re: Held aldrei aftur framhjá

Sent: Fim 08. Okt 2020 09:53
af jonsig
DaRKSTaR skrifaði:ætlaði að taka taichi borðið, var ekki sáttur við það eftir þau reviews.

ekkert á þessu borði sem réttlætir verðið.
það var samt borið saman við MSI godlike sem kostar slatta meira, og Taichi hafði bara fínustu hitatölur á einhverju hita pintinga testi

Re: Held aldrei aftur framhjá

Sent: Fim 08. Okt 2020 09:53
af Dropi
Þegar ég keypti mér studio monitora 2011 datt ég ofaní þessa gryfju. Endaði með að skipta um alla þétta og spenna (yfir í toroid) í hátölurunum sjálfum en það dugði ekki til. Eina sem virkaði og hefur enst eitthvað var að kaupa DAC með góðu hreinu power supply og optical input - allt annað surgar og syngur eins og djöfullinn. Allt í allt kostuðu þessi hátalarakaup mín tvöfalt meira en sjálfir hátalararnir kostuðu.

Mesti pirringurinn var þegar ég skipti um móðurborð og var ekki með optical á nýja borðinu, þá þurfti ég að nota USB DAC með Optical out yfir í Optical á þessum DAC...

Núna er ég með AsRock borð, var einmitt með Gigabyte þegar þetta lét verst, svo ASUS, þyrfti eiginlega að prófa að rífa alla þessa DAC frá og sjá hvernig þetta hegðar sér á AsRock borðinu!

Svo hefur þessi DAC ekki verið eintóma sæla, bæði relayin biluðu - ég skipti um eitt og skammhleypti yfir hitt því það var eingöngu notað fyrir Mute.

Mynd

Re: Held aldrei aftur framhjá

Sent: Fim 08. Okt 2020 10:20
af olihar
Ég er með AsRock móðurborð og ég þarf að hafa filter á hátalara köplunum þar sem ég er með studio monitora, það lekur hrikalega rafmagni yfir. Ég reyndi USB DAC og það var algjör dauði við þetta móðurborð. Ég lenti líka í vandræðum með Thunderbolt 2 þangað til ég fór yfir í optical kapal sem flytur ekki rafmagn á milli. Ég svo reyndar bætti við UPS og það bætti ástandið aðeins.

Re: Held aldrei aftur framhjá

Sent: Fim 08. Okt 2020 11:06
af Templar
Ég er einmitt með stúdíó monitora og já þetta er alvöru ves að fá hreint hljóð. Var með local ground loop sem tók flest en þetta með Gigabyte, var eitthvað extra powerful, með local ground loop kom samt hátíðni píp, var samt ekki alltaf heldur með óreglulegu millibili og verst þegar coil whine-ið lét í sér kræla á fullu. Klárlega eitthvað andsk. spennuvirkis bull á kortinu. Núna hef ég ekkert, hélt að ég hafði slökkt á hátölurunum, svo gott var þetta.

Hef verið með AsRock síðan Z90 kubbasettinu svo ég hef verið einstsaklega óheppinn með borð líklega þegar ég loksins kaupi eitthvað annað og þaðan kemur tilfinningin að "halda framhjá" en allt með AsRock hefur verið stöðugt og þegar eitthvað hefur komið upp á var ekki upp á borðin að klaga.

Það er svo margt í verðum sem erfitt er að dæma og kemur í ljós þegar á reynir, það virðist amk. vera rétt hjá mörgum reviewers þegar þeir hafa sagst hafa efasemdir um að sum móðurborð einfaldlega ráði við 10900K þó svo að framleiðandinn lofi öllu fögru.

Re: Held aldrei aftur framhjá

Sent: Fim 08. Okt 2020 11:06
af Templar
olihar skrifaði:Ég er með AsRock móðurborð og ég þarf að hafa filter á hátalara köplunum þar sem ég er með studio monitora, það lekur hrikalega rafmagni yfir. Ég reyndi USB DAC og það var algjör dauði við þetta móðurborð. Ég lenti líka í vandræðum með Thunderbolt 2 þangað til ég fór yfir í optical kapal sem flytur ekki rafmagn á milli. Ég svo reyndar bætti við UPS og það bætti ástandið aðeins.
Hvað borð ertu með, búinn að færa hátalarana yfir á aðra straumgrein?

Re: Held aldrei aftur framhjá

Sent: Fim 08. Okt 2020 11:15
af olihar
Templar skrifaði:
olihar skrifaði:Ég er með AsRock móðurborð og ég þarf að hafa filter á hátalara köplunum þar sem ég er með studio monitora, það lekur hrikalega rafmagni yfir. Ég reyndi USB DAC og það var algjör dauði við þetta móðurborð. Ég lenti líka í vandræðum með Thunderbolt 2 þangað til ég fór yfir í optical kapal sem flytur ekki rafmagn á milli. Ég svo reyndar bætti við UPS og það bætti ástandið aðeins.
Hvað borð ertu með, búinn að færa hátalarana yfir á aðra straumgrein?
https://www.asrock.com/mb/intel/x99%20ws/

Já monitorar eru á sér straum grein. Sem ég endaði með að bæta enn við og tölvan er á sér UPS líka.

Re: Held aldrei aftur framhjá

Sent: Fim 08. Okt 2020 11:17
af Templar
I feel your pain, svona studio græjur eru alveg listgrein að ná góðu, þekki ekkert til hljóðs en keypti svona sett því ég vildi "gott hljóð", endaði í DAC, snúrum osf. hellings auka kostnaður. Núna þori ég ekki að skipta um móðurborð á næsta ári, gæti byrjað allt aftur :)

Re: Held aldrei aftur framhjá

Sent: Fim 08. Okt 2020 11:19
af olihar
Getur prufað að setja ground loop isolator á hátalara ef þetta er allt á sömu grein.

Re: Held aldrei aftur framhjá

Sent: Fim 08. Okt 2020 11:36
af SolidFeather
Ég notaði um tíma 3.5mm jack tengin á mínu Gigabyte borði fyrir monitorana, það heyrðist ekkert suð. Fór svo í Asus Xonar Essence II og nota TRS tengin, ekkert suð þar heldur :baby

Allaveganna ekkert sem ég heyri í þeirri fjarlægð sem ég sit frá þeim, sem er innan við meter.

Re: Held aldrei aftur framhjá

Sent: Fim 08. Okt 2020 12:27
af Hjaltiatla
Kannast við þetta suð við að nota 3.5 jack tengið fyrir hátalara var að nota gamla Bose hátalara og Microlab hátalara á PC tölvu með Asrock móðurborð.
Er í dag að nota lítið Bluetooth soundbar (reyndar tengt við fartölvu) sem virkar miklu betur að mínu mati (ekkert vesen fyrir utan það að ég þarf að hlaða það annað slagið).

Edit: Gæti haft soundbarið tengt við usb-c hleðslutæki en hef ekki þurft á því að halda, þráðlaust FTW.

Re: Held aldrei aftur framhjá

Sent: Fim 08. Okt 2020 12:38
af worghal
Templar skrifaði:I feel your pain, svona studio græjur eru alveg listgrein að ná góðu, þekki ekkert til hljóðs en keypti svona sett því ég vildi "gott hljóð", endaði í DAC, snúrum osf. hellings auka kostnaður. Núna þori ég ekki að skipta um móðurborð á næsta ári, gæti byrjað allt aftur :)
hvernig DAC og hátalara ertu með og hvernig snúrur ertu að nota?
SolidFeather skrifaði:Ég notaði um tíma 3.5mm jack tengin á mínu Gigabyte borði fyrir monitorana, það heyrðist ekkert suð. Fór svo í Asus Xonar Essence II og nota TRS tengin, ekkert suð þar heldur :baby

Allaveganna ekkert sem ég heyri í þeirri fjarlægð sem ég sit frá þeim, sem er innan við meter.
ég er með Asus Xonar Essence I og ég þarf að notast við optical sem fer svo í optical > rca sem fer svo í 6,3mm jack í Yamaha HS7 og þá losnaði ég við suðið hjá mér :lol:

Re: Held aldrei aftur framhjá

Sent: Fim 08. Okt 2020 15:59
af Templar
Asus Xonar er legend, var með optical out í magnara/dac í passíva hátalara, aldrei suð eða neitt, pure as hell.