Síða 1 af 1
7.2k SATA Raid 1 vs 10k SATA Raid 1
Sent: Þri 31. Maí 2005 12:02
af W.Dafoe
ég þarf að fá frá ykkur álit á eftirafandi uppsetningu:
Annaðhvort:
x2 SATA SEAGATE 200GB 8mb buffer diskar í Raid 1 (mirror)
kostnaður: 20k
eða:
x2 SATA WD RAPTOR 76GB 8mb buffer diskar í Raid 1 (mirror)
kostnaður: 33k
hver er ykkar tilfinning á kostnaði og gagnamagni vs hraða ?
Upplýsingar um Raid 1 má finna hér:
http://www.acnc.com/04_01_01.html
Sent: Þri 31. Maí 2005 12:04
af gnarr
það fer algjörlega eftir því í hvað á ða nota þetta hvort er sniðugra.
Sent: Þri 31. Maí 2005 12:09
af W.Dafoe
þetta fer í vefþjón með medium gagnagrunnsvinnslu og ráðstöfunarfé er ekki mikið.
Ég vil samt ekki sjá eftir því að hafa keypt efri uppsetninguna og komast að því að hún dugi ekki.
reynslu "input" væri vel þegið!!
Sent: Þri 31. Maí 2005 12:53
af gnarr
hvað kallaru medium gagnagrunnsvinslu?
Hvernig gagnagrunnur á að vera á þessu?
Ég er með Win 2003 server með MS-SQL.
Það eru settar inn um 2500 línur á viku í grunninn og hann er strax kominn í 2GB á um 2 mánuðum
þetta er loadið á servernum þegar ég "selecta" um 6000 línur með 12 dálka í línu og læt reikna út fleiri dálka í leiðinni með php.
Ég er með 2x 36GB 10000rpm SCSI diska í RAID1 fyrir gögn og 2x 17GB 15000rpm SCSI diska RAID1 fyrir windows og forrit.
Þessi uppsetning ætti að duga okkur í um 3-4ár, og þá er lítið mál að bæti við öðrum 2GB af vinsluminni eða örðum Xeon 2.8.
Ég mæli miklu frekar með því að þú notari Raptor í RAID1 ef þú ert að keyra þungann gagnagrunn. Hugsaðu líka um það, að ef grunnurinn nær einhverntíman að verða þá stór að hann fylli raptor diskana, þá er hann orðinn það þungur að það tæki margfaldann tíma að accessa hann á 200GB diskunum.
Sent: Þri 31. Maí 2005 13:22
af W.Dafoe
Ég get eiginlega ekki alveg ímyndað mér notkunina á gagnagrunninum per viku, en á þessari vél verða líklega hýst 5-10 gagnagrunnstengdar vefsíður, þar af helmingurinn blog-síður og myndasíður.
Á vélinni veður linux og eins og þú komst að áðan ertu með sér diska fyrir stýrikerfið sjálft, er ekki í lagi að hafa stýrikerfið á sömu diskum og gagnagrunnurinn í þessari uppsetningu sem ég er að spá í ?
kv. arib
Sent: Þri 31. Maí 2005 13:28
af W.Dafoe
svo ég komi aðeins inná vélina sjálfa líka þá er hugmyndin svona:
3200xp, 64bit AMD 754 örgjörvi
ASUS K8V móðurborð
1gb DDR 400mhz minni
svo Raid 1 á x2 diska.
Sent: Þri 31. Maí 2005 13:51
af gnarr
ég myndi frekar taka 939 borð ef ég væri þú. þá hefuru séns á að uppfæra í dualcore ef einn kjarni er ekki að höndla vinsluna.
en eins og þú segir.. 5-10 síður og helmingurinn blog.
þetta er ekki eitthvað sem gerir miklar vélbúnaðar kröfur. þú ættir þessvegna að geta keyrt þetta á P2 dollu
Það ætti að vera alltí fínasta lagi fyrir þig að vera með stýrikerfið á sama disk og grunninn fyrst það verður engin alvarleg vinsla í gangi.
Sent: Þri 31. Maí 2005 14:13
af W.Dafoe
Ókei, en hvað mundir þú segja með harðadisksvinnsluna ef ég væri með x2 Raid 1 200GB SATA 7.2k diska og þeir væru að verða fullir eftir 3 ár.
Verður vinnslan vængbrotin eða verður þetta í ágætu standi ?
Sent: Þri 31. Maí 2005 14:33
af gnarr
þú fyllir aldrei 200GB af sql nema að þú sért eða reka eitthvað risa banka kerfi eða álíka
ef það verður bara texti og kanski nokkrar myndir duga 200GB endalaust. Í svona lítilli vinslu er breytir hraðinn á diskunum sjálfsagt ekki miklu.
Sent: Þri 31. Maí 2005 14:58
af W.Dafoe
Ókei, takk fyrir hjálpina
