Síða 1 af 1
Hvar fæ ég magnara(PowerAMP) á Íslandi
Sent: Mán 21. Sep 2020 16:29
af osek27
Hvar fæst svona magnarar fyrir stór kerfi. Finn bara magnara fyrir dvd á íslenskum síðum.
Re: Hvar fæ ég magnara(PowerAMP) á Íslandi
Sent: Mán 21. Sep 2020 17:30
af DJOli
https://pfaff.is/kraftmagnarar
Hljóðfærahúsið á líka að eiga eitthvað til, sem og Tónastöðin.
Svo er bara að skoða hjá öllum hljóðfærahúsum og jafnvel þeim sem halda úti hátalarakerfum og prófa að spyrja

Annars myndi ég telja viturlegast að panta Crown kraftmagnara bara hjá Amazon. Kosta ekkert svo agalega mikið.
Re: Hvar fæ ég magnara(PowerAMP) á Íslandi
Sent: Mán 21. Sep 2020 18:52
af arons4
Spurning með exton líka.
Re: Hvar fæ ég magnara(PowerAMP) á Íslandi
Sent: Þri 22. Sep 2020 09:40
af Hauxon
Rín er með Crown hljóðkerfismagnara.
https://www.rin.is/index.php?option=com ... gory_id=64
Í hvað ætlar þú að nota þetta? Hljóðkerfismagnarar eru oftast mjög öflugir (Class D) en eru oft með viftum og eru meira "crude" en hefðbundnir hifi kraftmagnarar. Í heimahús hafa þeir helst verið notaðir við heimasmíðaða bassahátalara. En í sjálfu sér ekkert að þeim ef þú ert fyrst og fremst að leita efir aflinu.
Ef þú ert að spá í hljómtækjum (hifi) þá hafa NAD kraftmagnarar fengist í Heimilistækjum.
Það er lítil búð í Hafnarfirðinum sem heitir Norðurljósa-hljóðtækni. Þeir eru með mörg góð merki, m.a. Cambridge Audio
http://nlh.is/.
Önnur lítil búð er Stereo.is
https://stereo.is/
..og auðvitað Hljómsýn:
https://hljomsyn.com/