Síða 1 af 1
Mjög góður, ódýr mic
Sent: Mán 30. Maí 2005 15:50
af ErectuZ
Jæja, veit einhver um mjög góðann og ódýrann míkrófón sem er hægt að stinga í tölvuna og tala í? Ég er nefnilega að fara að vinna í moddi þar sem að ég þarf að útvega nokkrar raddir.
Það má alls ekki heyra svona blásturshljóð, hann þarf að endast vel og hafa gott hljóð í sér. Hann má vera með áföstum headphonum, en það er ekkert skilyrði. Getur einhver bent mér á stað sem selur einn svona góðann?
Það er ekkert sérstakt verðcap, bara að hann kosti ekki alveg rosalega mikið.
Sent: Mán 30. Maí 2005 16:08
af galileo
Ef þú vilt mic sem ekki heyrist svona blásturshljóð myndi ég fá mér bara með svona svamp púðum utaná það ætti að laga blásturshljóðið.
Sent: Mán 30. Maí 2005 16:39
af gnarr
Einn af ódýrustu og næstum alveg pottþétt það besta sem þú færð fyrir peninginn er MXL1006BP. Hann kostar að ég held um 20.000kr hjá hljóðfærahúsinu.
Sent: Mán 30. Maí 2005 16:56
af galileo
20000

það finnst mér nú bara frekar mjöög dýrt hef séð góðan mic á 2000
Sent: Mán 30. Maí 2005 17:23
af gnarr
what?? hvar sástu góðann mic á 2.000kr ?!?!
hvernig mic var það?
Sent: Mán 30. Maí 2005 18:22
af ErectuZ
Úff, 20þús kall? Ég þarf nú líka að spara fyrir tölvuuppfærslum

Það eina sem mig vantar reyndar er bara mic sem heyrist alls ekkert blásturshljóð í. Þarf ekkert að hafa súper hljóðgæði, bara betri en average

Sent: Mán 30. Maí 2005 19:29
af gnarr
þá ertu að leita að popfilter en ekki mic..
Sent: Mán 30. Maí 2005 19:57
af ErectuZ
gnarr skrifaði:þá ertu að leita að popfilter en ekki mic..
Pah, ekki eins og ég viti neitt hvað ég er að tala um
En getur þú þá bent mér á "popfilter" í staðinn?

Sent: Mán 30. Maí 2005 22:23
af galileo
gnarr skrifaði:what?? hvar sástu góðann mic á 2.000kr ?!?!
hvernig mic var það?
Veit ekki hvar þú getur fengið hann en frændi minn keypti hann einhverstaðar og hann sagði að hann kostaði 2000 hann notar hann í CS það eru líka headpfone á honum og þau virka líka rosalega vel.
(hef reyndar ekkert vit á þessu

en hann er mjöög tær og heyrist ekkert blásturshljóð úr honum
Sent: Mán 30. Maí 2005 22:30
af MezzUp
galileo skrifaði:...það eru líka headpfone á [míkrafóninum] og þau virka líka rosalega vel.
ErectuZ skrifaði:[míkrafónninn] má vera með áföstum headphonum...
Er ég sá eini sem finnst að hljóðneminn sé fastur á heyrnatólunum, en aldrei öfugt?
Sent: Mán 30. Maí 2005 22:39
af galileo
nei fannst það líka en smitaðist
