Síða 1 af 1
Vantar aðstoð með heimagerðan cat 5
Sent: Lau 15. Ágú 2020 20:01
af worghal
Sælir.
Ég er að laga til net lagninguna heima svo ég sé ekki með tvo kapla þvert yfir ganginn og inn um hurð.
Nú er ég búinn að taka kapal og ætla að leggja hann meðfram gólfi og lofti og svo inn í herbergi gegnum lítið gat, af einhverri ástæðu þá fæ ég aldrei almennilega tengingu á kapalinn og hann rokkar á milli 100mbps og 10mbps.
Ég er búinn að prufa tvær tangir, tvo mismunandi rj45 hausa og búinn að setja nýja hausa báðu megin ca. 5 sinnum og vírunin er rétt.
Gæti verið að það sé einhver skemmd í kapplinum?
nb. fékk þennan kapal úr afgöngum hjá félaga mínum og þetta á allt að vera í lagi, bara verst að þetta var eini kapallinn í hrúgunni sem nær 15m+
Re: Vantar aðstoð með heimagerðan cat 5
Sent: Lau 15. Ágú 2020 20:06
af Dúlli
Eru einhverjar 90 gráð beygjur ? þær get haft áhrif á strenginn ef þær eru of crappar.
Nota síðan paratester til að sjá hvort allir vírar ná contact.
Re: Vantar aðstoð með heimagerðan cat 5
Sent: Lau 15. Ágú 2020 20:07
af worghal
Dúlli skrifaði:Eru einhverjar 90 gráð beygjur ? þær get haft áhrif á strenginn ef þær eru of crappar.
Nota síðan paratester til að sjá hvort allir vírar ná contact.
engar 90 gráðu beygjur og er ekki með tester.
Re: Vantar aðstoð með heimagerðan cat 5
Sent: Lau 15. Ágú 2020 20:14
af Dúlli
worghal skrifaði:Dúlli skrifaði:Eru einhverjar 90 gráð beygjur ? þær get haft áhrif á strenginn ef þær eru of crappar.
Nota síðan paratester til að sjá hvort allir vírar ná contact.
engar 90 gráðu beygjur og er ekki með tester.
Sjónskoða strengin, gæti hafi snúist upp á hann, en para tester kemur þér mjög langt, síðan gæti það verið að pinnarnir eru ekki nægilega vel klemmdir þótt það líti þannig út, vírarnir ná ekki alla leið inn og svo framvegis.
Reyndu að komast yfir paratester, það mun auðvelda þetta talsvert.
Re: Vantar aðstoð með heimagerðan cat 5
Sent: Lau 15. Ágú 2020 20:17
af jonsig
Þegar maður var í úttektum á þessu í den, þá var þetta yfirleitt installer error hjá þeim sem splæsti tengin á hann eða hvort þetta var sett í punchpanel, .. hvaðeina...
Re: Vantar aðstoð með heimagerðan cat 5
Sent: Lau 15. Ágú 2020 20:40
af Hjaltiatla
Ef þú gefst upp á þessum kapli þá á ég cat5e kapal niðrí geymslu á kefli , samskonar þessum :
https://www.computer.is/is/product/kapa ... i-af-rullu Gætir fengið 15 metra á 2000 kr ef þú nennir í 113 rvk (úlfarsárdal)
Re: Vantar aðstoð með heimagerðan cat 5
Sent: Lau 15. Ágú 2020 20:55
af worghal
tek þig mögulega upp á þessu tilboði á morgun
Re: Vantar aðstoð með heimagerðan cat 5
Sent: Lau 15. Ágú 2020 22:11
af arons4
Taktu góðar myndir af báðum endum þar sem vel sést í vírana.
BTW metraverð á skermuðum cat5e hjá heildsölunum(rönning, ískraft og þá) er undir 100kallinn
Re: Vantar aðstoð með heimagerðan cat 5
Sent: Lau 15. Ágú 2020 22:49
af Dúlli
arons4 skrifaði:Taktu góðar myndir af báðum endum þar sem vel sést í vírana.
BTW metraverð á skermuðum cat5e hjá heildsölunum(rönning, ískraft og þá) er undir 100kallinn
Já og selt í kassavís.
Re: Vantar aðstoð með heimagerðan cat 5
Sent: Mán 17. Ágú 2020 21:58
af worghal
fór og fékk kapalspotta hjá hjaltiatla og viti menn, þetta svínvirkaði!
kapallinn sem ég var að nota áður var greinilega eitthvað gallaður á miðri leið