Síða 1 af 1
Besti NAS-inn fyrir PLEX
Sent: Mán 10. Ágú 2020 23:43
af krissi24
Hvaða NAS er bestur fyrir PLEX server í dag? Sem ræður við 4K skrár til afspilunar.
Re: Besti NAS-inn fyrir PLEX
Sent: Þri 11. Ágú 2020 00:01
af russi
Sá sem þú smíðar sjálfur
Re: Besti NAS-inn fyrir PLEX
Sent: Þri 11. Ágú 2020 00:05
af krissi24
russi skrifaði:Sá sem þú smíðar sjálfur
Já, eflaust.... En ég er svona meira að leita af einu uniti að þessu sinni
Re: Besti NAS-inn fyrir PLEX
Sent: Þri 11. Ágú 2020 00:25
af russi
krissi24 skrifaði:russi skrifaði:Sá sem þú smíðar sjálfur
Já, eflaust.... En ég er svona meira að leita af einu uniti að þessu sinni
Já sem þú gerir sjálfur, finnur vel sem hentar og setur á hana t.d Unraid eða Proxmox, keyrir Plex og tengdar þjonustur á því og vistar gögnin þín á nokkuð öruggan hátt á meðan.
Það eru ekkert margir tilbúnir NAS sem ráða við 4K, þeir sem gera það kosta tvö til þrjú ungbarnanýru
Re: Besti NAS-inn fyrir PLEX
Sent: Þri 11. Ágú 2020 07:25
af Bourne
Þegar ég hef keyrt plex þá hefur það bara verið borðtölva í húsinu sem er í lítilli notkun og alltaf í gangi.
Eins og russi sagði þá eru NAS græjur sem geta ráðið við 4k fáar og mjög dýrar.
Re: Besti NAS-inn fyrir PLEX
Sent: Þri 11. Ágú 2020 07:48
af DJOli
Hljómar eins og um sé að ræða vél með 8 kjörnum í hið minnsta, amk 16gb ram, og gtx 1080, rtx 2060, 2070, 2080 eða "pro tier" kortin frá nVidia sem eru með stuðning fyrir fleiri en einn eða tvo decoding strauma í einu.
Re: Besti NAS-inn fyrir PLEX
Sent: Þri 11. Ágú 2020 10:01
af Hjaltiatla
Skárstu nas boxin á markaðnum eru Synology að mínu mati (fyrir utan Freenas mini, en maður myndi frekar setja box upp sjálfur frekar en að versla freenas mini).
Hérna er Plex NAS Compatibility skjal sem ég fann inná Plex forum-inu eftir stutt Gúggl:
https://docs.google.com/spreadsheets/d/ ... 1274624273
Ekki góður 4k Plex stuðningur beint af boxunum sjálfum.
Smá lestrarefni:
https://support.plex.tv/articles/catego ... s-devices/
Re: Besti NAS-inn fyrir PLEX
Sent: Þri 11. Ágú 2020 11:15
af russi
DJOli skrifaði:Hljómar eins og um sé að ræða vél með 8 kjörnum í hið minnsta, amk 16gb ram, og gtx 1080, rtx 2060, 2070, 2080 eða "pro tier" kortin frá nVidia sem eru með stuðning fyrir fleiri en einn eða tvo decoding strauma í einu.
Þú ferð í svona skjákort eða Quadro kort ef þú ert fara gera mörg streymi, annars ræður CPU vel við þetta og það sem meira er að Intel skjástýring fer leikandi með þetta, sérstaklega skjástýringar uppúr 8xxx seíunni.
Ef þú ert að spá í svona fyrir kannski 10 usera og við gerum ráð fyrir því að þeir aldrei allir að streyma trancoding strauma á sama tíma þá er nóg að finna þess vegna 6700k og keyra á 8GB.
Samt aðalmálið er að Client geti direct streamað það sem þú villt og losna við allt transcode þá
Re: Besti NAS-inn fyrir PLEX
Sent: Þri 11. Ágú 2020 12:06
af arons4
Getur keypt þér appbox, sem er bara VPS þjónn hýstur í eitthverju gagnaveri sem kemur fyrirframuppsettur með plex og aðgang að drifi með fleiri þúsund þáttum og myndum, yfirleitt bara takmark á fjölda transcodea en ekki á direct-play, hér er dæmi.
https://www.reddit.com/r/plexshares/com ... yment_19k/
Re: Besti NAS-inn fyrir PLEX
Sent: Þri 11. Ágú 2020 14:53
af CendenZ
Ég er með NUC smávél og utan á liggjandi USB3 hýsingu með kælibúnaði. Ódýrara, öflugra og flottara en NAS box. Nota hana sem server undir annað.
Mikið einfaldar og þægilegra
Re: Besti NAS-inn fyrir PLEX
Sent: Þri 11. Ágú 2020 15:32
af Hjaltiatla
CendenZ skrifaði:Ég er með NUC smávél og utan á liggjandi USB3 hýsingu með kælibúnaði. Ódýrara, öflugra og flottara NAS box. Nota hana sem server undir annað.
Mikið einfaldar og þægilegra
Sammála , geri þetta líka. Er með Intel nuc og geri HDD passthrough í gegnum Proxmox yfir á Plex server sýndarvélina fyrir usb3 flakkarann sem hýsir gögn.
Re: Besti NAS-inn fyrir PLEX
Sent: Þri 11. Ágú 2020 20:48
af gotit23
er sjálfur að nota synology sem plex server með 16Gb minni og einhver 4 kjarna örg.
Re: Besti NAS-inn fyrir PLEX
Sent: Mið 12. Ágú 2020 13:33
af gnarr
russi skrifaði:DJOli skrifaði:Hljómar eins og um sé að ræða vél með 8 kjörnum í hið minnsta, amk 16gb ram, og gtx 1080, rtx 2060, 2070, 2080 eða "pro tier" kortin frá nVidia sem eru með stuðning fyrir fleiri en einn eða tvo decoding strauma í einu.
Þú ferð í svona skjákort eða Quadro kort ef þú ert fara gera mörg streymi, annars ræður CPU vel við þetta og það sem meira er að Intel skjástýring fer leikandi með þetta, sérstaklega skjástýringar uppúr 8xxx seíunni.
Ef þú ert að spá í svona fyrir kannski 10 usera og við gerum ráð fyrir því að þeir aldrei allir að streyma trancoding strauma á sama tíma þá er nóg að finna þess vegna 6700k og keyra á 8GB.
Samt aðalmálið er að Client geti direct streamað það sem þú villt og losna við allt transcode þá
Það er mjög auðvelt að unlocka nvenc til þess að geta gert marga strauma í einu og þar af leiðandi hægt að kaupa töluvert ódýrari kort þannig.
Ég myndi finna út hvaða kort hentar best fyrir það sem þú þarft hér
https://www.elpamsoft.com/?p=Plex-Hardware-Transcoding og aflæsa því svo með þessu
https://github.com/keylase/nvidia-patch
Re: Besti NAS-inn fyrir PLEX
Sent: Mið 12. Ágú 2020 23:17
af CendenZ
Ég ætla droppa svo smá bombu hérna og mæla með Windows 10 á NUC vél
Sé ekki eftir því
*hleypur í skjól*
Re: Besti NAS-inn fyrir PLEX
Sent: Fim 13. Ágú 2020 14:41
af MrIce
CendenZ skrifaði:Ég ætla droppa svo smá bombu hérna og mæla með Windows 10 á NUC vél
Sé ekki eftir því
*hleypur í skjól*
Re: Besti NAS-inn fyrir PLEX
Sent: Fim 15. Okt 2020 18:43
af krissi24
Jæja, núna er ég búinn að redda mér tölvu sem ég ætla að keyra Plex server á. Hvaða stýrikerfi er verið að nota í slíkt nú til dags?
Re: Besti NAS-inn fyrir PLEX
Sent: Fim 15. Okt 2020 18:46
af Uncredible
Ég mæli með Unraid, þú getur notað það frítt í 30 daga eða endalaust svo lengi sem þú þarft ekki að slökkva á tölvunni. Það getur gert meira en bara Plex.
Re: Besti NAS-inn fyrir PLEX
Sent: Fim 15. Okt 2020 21:24
af jericho
krissi24 skrifaði:Jæja, núna er ég búinn að redda mér tölvu sem ég ætla að keyra Plex server á. Hvaða stýrikerfi er verið að nota í slíkt nú til dags?
Var einmitt að setja plex server upp á vél sem mér áskotnaðist. ég notaði Ubuntu 20.04
Re: Besti NAS-inn fyrir PLEX
Sent: Fim 15. Okt 2020 22:29
af MrIce
Ég mæli með unraid, kaupa sér basic leyfið til að vera með allt að 6 diska og ekkert issue ef það fer rafmagnið af hverfinu ef þú værir að runna á freeware eftir 1 mánuðinn
Ég setti 6700k í vélina hjá mér, 16gb af ram og, jú ég fór í overkill fyrir gpu en ég fékk mér notað Quadro P2000 kort.. hef ekki séð það ennþá fara yfir 5% notkun