Síða 1 af 1
Getur einhver útskýrt PHP version?
Sent: Lau 08. Ágú 2020 14:00
af GuðjónR
Er að velta fyrir mér PHP á server, þetta spjallborð er phpBB 3.1.12 og kominn tími á uppfærslu.
Það nýjasta er phpBB 3.3.1 en það þarf netþjón með PHP 7.1.3+
Þetta spjallborð segir að netþjóninn sé PHP 5.3.23
Cpanel segir að PHP sé 5.4.34
phpMyAdmin segir að PHP sé 7.2.7
Núverandi config leyfir ekki uppfærslu, hvað er til ráða?
Re: Getur einhver útskýrt PHP version?
Sent: Lau 08. Ágú 2020 14:12
af Revenant
Ég held að þú getir í cpanel breytt hvaða php útgáfa er keyrandi á síðunni.
Re: Getur einhver útskýrt PHP version?
Sent: Lau 08. Ágú 2020 14:38
af Dóri S.
Áður en þú breytir þessu skaltu auhlýsa ákveðinn niðritíma. Þú þarft að reikna með því að sumar fúnksjónir hætti að virka á meðan það er mismatch á spjallborðskerfinu og php.
Re: Getur einhver útskýrt PHP version?
Sent: Lau 08. Ágú 2020 14:56
af Dóri S.
Revenant skrifaði:Ég held að þú getir í cpanel breytt hvaða php útgáfa er keyrandi á síðunni.
Sum hýsingarfyrirtæki leyfa ekki breytingar á php version. Þá þarf að hafa samband og biðja um að láta breyta því en yfirleitt getur maður gert það sjálfur.
Re: Getur einhver útskýrt PHP version?
Sent: Lau 08. Ágú 2020 15:41
af GuðjónR
Pælingin er að setja upp nýja uppfærslu byggða á backupi af þessu borði og vinna að þeim lagfæringum sem þarf að vinna að áður en það er svissað, t.d. styles og language.
Það er PHP selector á cpanel en ekki hægt að breyta frá 5.4
Svo er líka spurning hvort þetta borð og verðvaktin sjálf þoli skyndilega breytingu í 7+
Re: Getur einhver útskýrt PHP version?
Sent: Lau 08. Ágú 2020 18:02
af hfwf
Þessvegna geriru backup, uppfærir og sérð hvort allt sé í okay
spjallbeta.vaktin.is , frekar ez.
Re: Getur einhver útskýrt PHP version?
Sent: Lau 08. Ágú 2020 18:44
af ElGorilla
phpMyAdmin er á sínum eigin server og notar bara sama gagnagrunn myndi ég halda.
Re: Getur einhver útskýrt PHP version?
Sent: Lau 08. Ágú 2020 18:59
af GuðjónR
hfwf skrifaði:Þessvegna geriru backup, uppfærir og sérð hvort allt sé í okay
spjallbeta.vaktin.is , frekar ez.
Já, einmitt það sem ég geri.
Er bara í vandræðum núna þar sem php er ekki samhæft.
Re: Getur einhver útskýrt PHP version?
Sent: Lau 08. Ágú 2020 22:07
af Sallarólegur
Er ekki einhver Docker meistari sem getur græjað þetta fyrir manninn?
Það er einnitt til að losna við svona vesen.
Re: Getur einhver útskýrt PHP version?
Sent: Sun 09. Ágú 2020 12:05
af Hjaltiatla
Sallarólegur skrifaði:Er ekki einhver Docker meistari sem getur græjað þetta fyrir manninn?
Það er einnitt til að losna við svona vesen.
Það er allavegana til phpbb image á Docker hub, held það sé fyrsta skrefið að átta sig á því hvaða sérlausnir spjall.vaktin.is er að nota ef það þarf að útbúa custom Dockerfile fyrir uppsetningu. En reikna með að GuðjónR þurfi að geta verið með puttann í þessu þannig að hann þyrfti að setja sig inní þessa menningu (reikna ekki með að Hringdu séu t.d með Docker swarm eða Kubernets hýsingu fyrir þessar pælingar).
En þetta er jú eina vitið horft fram á veginn.Mæli með að Sallarólegur taka þátt í þeirri innleiðingu
Edit: Siðan er góð pæling að senda GuðjónR á Terraform,packer,Ansible, Kubernetes og Docker námskeið við tækifæri svo hann geti einfaldlega tæklað þetta allt saman sjálfur
Re: Getur einhver útskýrt PHP version?
Sent: Sun 09. Ágú 2020 15:19
af worghal
Dóri S. skrifaði:Áður en þú breytir þessu skaltu auhlýsa ákveðinn niðritíma. Þú þarft að reikna með því að sumar fúnksjónir hætti að virka á meðan það er mismatch á spjallborðskerfinu og php.
það er greinilegt að þú hefur ekki verið hérna lengi en niðritími er auglýstur þegar Guðjón póstar í bjór þráðinn!
ekki meiða mig Guðjón!