Síða 1 af 1
Innflutningsgjöld
Sent: Fös 07. Ágú 2020 13:07
af GuðjónR
Stundum, þegar ég versla erlendis frá greiði ég fyrir hraðsendingu, yfirleitt kostar svoleiðis þjónusta aðeins meira en afhending er oft 2-4 dögum eftir pöntun. Þegar ég panta í gengum kennitölu þá bætast yfirleitt engin gjöld nema VSK en þegar ég panta sem einstaklingur þá bætis við tollkrítargjald ~1600 kr.
Var að fá myndlistavörur frá Bretlandi en það var ekki boðið upp á hraðsendingu og því fór þetta í gengum ríkis-Póstinn og það er ekki gefins.
6.205.- krónur er Pósturinn að ryksuga til sín.
Það getur því verið ódýrara þegar upp er staðið að nota hraðsendingaþjónustu einkaaðila.
Fyrir utan augljósan tímasparnað, en þessar vörur voru pantaðar 29 júní.
Re: Innflutningsgjöld
Sent: Fös 07. Ágú 2020 18:48
af hagur
"Viðbótarlína í tollskýrslu"
Hvað næst, rukka fyrir hvert stafabil?
Re: Innflutningsgjöld
Sent: Fös 07. Ágú 2020 19:04
af jonsig
Þetta er gallinn við að koma undir nafni á vaktinni og vera einræðisherra. Þá koma gjöldin fyrir aukalínur.
Kannski hakkarin sé byrjaður hjá svartfuglagenginu?
Re: Innflutningsgjöld
Sent: Fös 07. Ágú 2020 20:39
af svanur08
svona ræna þeir mann á íslandi.
Re: Innflutningsgjöld
Sent: Fös 07. Ágú 2020 20:55
af mainman
Re: Innflutningsgjöld
Sent: Fös 07. Ágú 2020 21:05
af nonesenze
ég er nánast hættur að panta eitthvað sem er ekki með ups, dhl eða sambærilegu því pósturinn er bara slow og mikið dýrari og leggur á allt sem hægt er sem ég skil bara ekki hvernig er hægt
"ég þurfti að ýta á enter 2x .. gjörðu svo vel 500kr ? hvaða bulll er í gangi?
btw ég er enþá að bíða eftir pakka sem tengdó frá kanada sendu 15 apríl með flottum amg bens sparkbíl með mp3 spilara ... tracking numer löngu komið í "we will no longer give information about this" sem var sent með express post frá kanada og kostai meira en 300$ bara shipping, á meðan eru vinir mínir að fá sendingar frá ali og amazon og ebay a 4 dögum með dhl og ups
hvað er að frétta
Re: Innflutningsgjöld
Sent: Lau 08. Ágú 2020 10:52
af lollipop0
það kemur svo kallaður "geymslugjöld" 195kr per dag sem reiknast eftir 7 daga frá komudegi sendingar
var rukkað geymslugjöld fyrir að senda inn ekki réttum invoice til þeirra, fékk til kynningur tvær vikur eftir það svo geymslugjöld alls kostaði sirka 12Þ fyrir eina £10 bók
mæli ekki með þeim
Re: Innflutningsgjöld
Sent: Sun 09. Ágú 2020 16:11
af halipuz1
Ég hef aldrei þurft að borga geymslugjöld
Núna síðasta sem ég fékk frá útlöndum voru skynjarar á golf kylfur, fékk þá frítt útaf því ég keypti golf kylfur og gat redeemað skynjara, ég borgaði ekki eina krónu fyrir það fyrir komuna, plús þá tók meira en 10 daga að afgreiða og engin geymslugjöld.
En þetta var líklegast heppni!
Yfirleitt þá borga ég toll og umsýslugjöld en aldrei er það mikið. Pósturinn kom svolítið á óvart þarna.