Síða 1 af 1
12V í USB hleðslukapall
Sent: Mið 22. Júl 2020 17:53
af mikkimás
Sælir.
Mig vantar að hlaða starttæki með 12V kapli í USB.
USB portið á tækinu er orðið wonky og virkar ekki lengur.
Veit einhver hvar ég fæ svona á landinu?
p.s. Þetta er fyrir fyrirtækið sem ég vinn hjá, annars myndi ég panta sjálfur að utan.

- Skýring 2020-07-22 175053.png (228 KiB) Skoðað 533 sinnum
Re: 12V í USB hleðslukapall
Sent: Mið 22. Júl 2020 19:31
af jonsig
Sækiru 12V úr usb socket?? Best fyrir þig að tinkera nýjan sjálfur. Klippa usb af gamalli mús eða einhverju og færð þetta 5.5mm Dc jack í íhlutum
Re: 12V í USB hleðslukapall
Sent: Mið 22. Júl 2020 23:02
af mikkimás
Æji, ég er ekki sérstaklega gáfaður.
Að sjálfsögðu vantar mig spennubreyti en ekki bara snúru.
Mig vantar sem sagt að geta hlaðið starttækið í gegnum þetta port:

- Skýring 2020-07-22 230057.png (140.86 KiB) Skoðað 471 sinnum
Er þetta mögulega það sem ég er að leita að?
https://www.computer.is/is/product/spen ... 6w-acpa004
Re: 12V í USB hleðslukapall
Sent: Fim 23. Júl 2020 00:00
af jonsig
1.Hugsa að rétti pinninn fylgi ekki. 2. Þetta eru ekki heavy duty spennar þetta iQ/nedis dót , svona 36W er meira eins og 25W þó myndi ég ekki hafa kínaspennir svo lestaðan lengur en korter

Re: 12V í USB hleðslukapall
Sent: Fim 23. Júl 2020 08:26
af mikkimás
Ég vildi svo innilega að ég vissi hvað allar þessar tölur og hugtök þýða, en ég hef ekki hundsvit á rafmagnsfræði.
Þetta gengur væntanlega ekki?
https://www.oreind.is/product/spennubre ... 15a-53997/
Output, max. amperage 1.5 A
Ef ég skil rétt, þá vantar mig upp í 3A.