Síða 1 af 1
Varðandi kaup á HDD fyrir Plex
Sent: Sun 31. Maí 2020 13:37
af fhrafnsson
Góðan dag vaktarar!
Mig langar að kaupa mér annað hvort 2x 8TB eða 1x 12-16TB disk fyrir Plex hjá mér og sýnist verðin lang best í USA. Hvernig hafið þið verið að kaupa þetta, er best að nota einhverja þjónustu eins og shopusa eða er best að versla beint fyrir ákveðna aðila?
Ef þið lumið á góðum tilboðum eða ábendingum væri það snilld líka
Kveðja,
Finnur.
Re: Varðandi kaup á HDD fyrir Plex
Sent: Sun 31. Maí 2020 14:00
af Hausinn
Fer dálítið eftir því hvort þú viljir íslenska ábyrgð eða ekki.
2x 8TB hljómar sniðugra. 16TB kostar rúmlega jafn mikið og tveir 8TB og ef eitthvað bilar missir þú bara hálf gögnin í staðinn fyrir öll.
Re: Varðandi kaup á HDD fyrir Plex
Sent: Sun 31. Maí 2020 14:14
af MrIce
Mæli með að taka 2x8 (helst fleiri) uppá að geta sett í RAID þannig að það glatist ekki alltsaman (in case of 1x16tb)
Re: Varðandi kaup á HDD fyrir Plex
Sent: Sun 31. Maí 2020 16:02
af gnarr
Ég myndi ekki eyða pening/plássi í raid fyrir plex vél. Ef einhver diskur deyr, þá sækirðu efnið bara aftur.
Re: Varðandi kaup á HDD fyrir Plex
Sent: Sun 31. Maí 2020 17:17
af fhrafnsson
Já held ég tími ekki raid einmitt. Hvaðan hafið þið verið að kaupa harða diska?
Re: Varðandi kaup á HDD fyrir Plex
Sent: Sun 31. Maí 2020 17:58
af nonesenze
gæti verið að ég geti selt þér einn 12tb wd red (whitelabel)
Re: Varðandi kaup á HDD fyrir Plex
Sent: Sun 31. Maí 2020 20:10
af Tiger
Re: Varðandi kaup á HDD fyrir Plex
Sent: Mán 01. Jún 2020 23:32
af GullMoli
Tók eitt dæmi, 4TB Seagate IronWolf. Sama verð heim komið og er í @tt, nema í @tt ertu með 2 ára ábyrgð hér heima.
Kom mér samt á óvart að það væri sama verð.. nokkrum krónum ódýrara í gegnum BHP miðað við kreditkorta gengið akkurrat núna (138.65).
Re: Varðandi kaup á HDD fyrir Plex
Sent: Þri 02. Jún 2020 08:36
af fhrafnsson
Svo sér maður svona drif
https://www.amazon.co.uk/gp/product/B07 ... UTF8&psc=1sem eru á mjög góðu verði. USB3 ætti alveg að ráða við plex spilun en mér sýnist líka vera hægt að "shucka" það tiltölulega auðveldlega:
https://www.youtube.com/watch?v=Y1pJOJ_AHZQ. Einhver reynsla af því eða að nota USB3 utanáliggjandi harðan disk fyrir Plex?
Re: Varðandi kaup á HDD fyrir Plex
Sent: Þri 02. Jún 2020 09:26
af Hjaltiatla
fhrafnsson skrifaði: Einhver reynsla af því eða að nota USB3 utanáliggjandi harðan disk fyrir Plex?
Já, ég nota USB3 flakkara á móti Plex server (Plex media file-a) og það er allt í góðu. Hef reyndar ekki álagsprófað en mínar uppsetningar höndla allavegana 2 strauma.
Re: Varðandi kaup á HDD fyrir Plex
Sent: Þri 02. Jún 2020 10:42
af CendenZ
ég er með NUC vél og svo utanáliggjandi USB3 box með kælingu. Get strímað í sjónvarpið, ipaddinn og síma án þess að fá hökkt
Re: Varðandi kaup á HDD fyrir Plex
Sent: Þri 02. Jún 2020 11:32
af Gislinn
fhrafnsson skrifaði:Einhver reynsla af því eða að nota USB3 utanáliggjandi harðan disk fyrir Plex?
Já, ég var með svoleiðis í 2 ár hjá mér. Það virkar ef þú ert með fáa strauma í gangi í einu.