Síða 1 af 1

--SELD--[TS]Sony WH-1000XM3 heyrnatól

Sent: Mán 25. Maí 2020 11:59
af tomasandri
Sony WH-1000MX3 þráðlaus noise-cancelling heyrnatól.
Þau eru nánast alveg ónotuð og allt kemur með þeim, kassi, leiðbeiningar, snúrur og hulstur utanum heyrnatólin. Notkun á þeim er einhverstaðar í kringlum klukkutíma.
Þetta eru stórfín þráðlaus heyrnatól sem eru einhverju besta noise cancelling á markaðnum. 30 klukkutíma batterísending og hellingur af smart features :)
Set þau á 35k

Edit:Bætti við myndum af heyrnatólunum beint í þráðinn

Edit 2: Heyrnatólin eru seld! :)
Mynd
Mynd

Re: [TS]Sony WH-1000XM3 heyrnatól

Sent: Mán 25. Maí 2020 12:26
af nonesenze
sá þessi á 31k í costco fyrir um viku síðan glæný

Re: [TS]Sony WH-1000XM3 heyrnatól

Sent: Mán 25. Maí 2020 13:36
af tomasandri
Þessi eru á 50k á flestum stöðum:
Vodafone 49.990kr https://vodafone.is/vorur/nanar-um-voru ... 06dd32514c
Síminn 49.990kr https://vefverslun.siminn.is/vara/heyrn ... ss-b-tooth
Elko 42.995kr https://elko.is/sony-headphones-ae-bt-nc-black-41578
Origo 49.990kr https://verslun.origo.is/Heyrnartol/Son ... 248.action

Myndi endilega vilja mynd af þessu á 31k í Costco því það er þá ca 40% afsl miðað við verð í allflestum verslunum.

Re: [TS]Sony WH-1000XM3 heyrnatól

Sent: Mán 25. Maí 2020 14:01
af IL2
Þau voru til í Cosco á þessu verði en ekki lengur sýnist mér.

Re: [TS]Sony WH-1000XM3 heyrnatól

Sent: Mán 25. Maí 2020 14:06
af tomasandri
Tjah, þau eru allavega til hérna hjá mér á þessu líka fína verði :) 35k er ca 30% afsl miðað meðal verð á þeim í verslunum, tel það alls ekki lélegt verð fyrir splunkuný heyrnatól :)

Re: [TS]Sony WH-1000XM3 heyrnatól

Sent: Mán 25. Maí 2020 22:35
af Nariur
tomasandri skrifaði:Tjah, þau eru allavega til hérna hjá mér á þessu líka fína verði :) 35k er ca 30% afsl miðað meðal verð á þeim í verslunum, tel það alls ekki lélegt verð fyrir splunkuný heyrnatól :)
Mér reiknast nú að það sé bara 19% af Elko verðinu...

Re: [TS]Sony WH-1000XM3 heyrnatól

Sent: Þri 26. Maí 2020 09:01
af tomasandri
Nariur skrifaði:
tomasandri skrifaði:Tjah, þau eru allavega til hérna hjá mér á þessu líka fína verði :) 35k er ca 30% afsl miðað meðal verð á þeim í verslunum, tel það alls ekki lélegt verð fyrir splunkuný heyrnatól :)
Mér reiknast nú að það sé bara 19% af Elko verðinu...
Sagði einmitt "35k er ca 30% afsl miðað við meðal verði á þeim í verslunum", reyndi aldrei að halda fram að 35k væri ca 30% af Elko verði , bara af meðal verðinu :) s.s. 49990+49990+49990+42990=192960, 192960/4=48240, og ca 27.5% afsl af því er 34974kr.

Samt sem áður, velkomið að bjóða bara, 35k er alls ekkert heilagt verð, finnst það bara solid verð fyrir heyrnatól sem eru notuð í klukkutíma :)

Re: [TS]Sony WH-1000XM3 heyrnatól

Sent: Þri 26. Maí 2020 09:10
af Dropi
Bara til að vera extra leiðinlegi gaurinn þá er ég akkúrat á leiðinni að kaupa þessi í costco með konunni, hún tók þessa mynd um daginn og við finnum þau hvergi á betra verði.
Mynd

Edit: Afsakið!! sá ekki að þetta eru over-ear WH útgáfan, en ekki WF útgáfan. Settu myndirnar þannig að þær sjáist um leið og maður opnar þráðinn með [img] tagginu, þessi nafnagjöf hjá Sony er 100% glötuð og alveg tilvalin í að valda svona ruglingi.
nonesenze skrifaði:sá þessi á 31k í costco fyrir um viku síðan glæný
Voru það WF eða WH? Ég held að við séum allir í smá ruglingi í þessum ágæta söluþræði. Mér finnst ekkert að þessu 35k verði.

Re: [TS]Sony WH-1000XM3 heyrnatól

Sent: Þri 26. Maí 2020 09:15
af Dr3dinn
Mjög fín headfone, eru að fá betri dóma en bose og sambærileg... er með svona í vinnunni alveg top headfone, gangi þér vel með söluna.

Re: [TS]Sony WH-1000XM3 heyrnatól

Sent: Þri 26. Maí 2020 09:18
af Hauxon
Dropi skrifaði:Bara til að vera extra leiðinlegi gaurinn þá er ég akkúrat á leiðinni að kaupa þessi í costco með konunni, hún tók þessa mynd um daginn og við finnum þau hvergi á betra verði.
Mynd

Edit: Afsakið!! sá ekki að þetta eru over-ear WH útgáfan, en ekki WF útgáfan. Settu myndirnar þannig að þær sjáist um leið og maður opnar þráðinn með [img] tagginu, þessi nafnagjöf hjá Sony er 100% glötuð og alveg tilvalin í að valda svona ruglingi.
nonesenze skrifaði:sá þessi á 31k í costco fyrir um viku síðan glæný
Voru það WF eða WH?
WF eru earbuds og WH eru over-ear. Ekkert eins nema Sony lógóið.

Er ekki lágmark að verðlöggur tali ekki með afturendanum?? Hálf sorglegur þráður hann er að selja ný heyrnartól töluvert lægra verðu en út úr búð og þráðurinn uppfullur af athugasemdum um aðarar vörur eða hvort að "afslátturinn" sé reiknaður nógu nákvæmt! :pjuke

Re: [TS]Sony WH-1000XM3 heyrnatól

Sent: Þri 26. Maí 2020 09:21
af Dropi
Hauxon skrifaði:WF eru earbuds og WH eru over-ear. Ekkert eins nema Sony lógóið.

Er ekki lágmark að verðlöggur tali ekki með afturendanum??
WH-1000XM3
WF-1000XM3

Er engin hætta á að menn ruglist á þessum nöfnum án þess að sjá mynd? Sá sem talaði um 31k hér fyrir ofan gæti líka verið að ruglast á þessu með mér. Eða lastu ekki seinni hlutann þar sem ég leiðrétti misskilninginn.

Re: [TS]Sony WH-1000XM3 heyrnatól

Sent: Þri 26. Maí 2020 09:26
af Jón Ragnar
Til að vera hundleiðinlegur, þá voru þessi headphones til í Costco fyrir stuttu síðan á 37.499kr

Re: [TS]Sony WH-1000XM3 heyrnatól

Sent: Þri 26. Maí 2020 09:28
af tomasandri
Ég var að uppfæra upprunalega þráðinn með myndum beint inná, fattaði ekki að það væri hægt.

Ég afsaka annars misskilninginn sem ég virðist vera að valda, ég vissi ekki að það væru heyrnatól með nánast nákvæmlega sama nafninu. Það hefur eflaust búið til smá ringulreið í þessum þráð.

Ég vill samt taka aftur fram að það er velkomið að bjóða hvað sem er ef einhver hefur áhuga(svo lengi sem það er raunhæft tilboð), ég var bara búinn að hugsa þetta svoleiðis að 35k væri solid verð fyrir svona heyrnatól miðað við pínulitlu notkunina en við erum auðvitað öll með okkar álit á því :)

TL;DR: Myndir komnar. Bjóðið hvað sem er ef þið hafið áhuga en hella næs ef það er sanngjarnt tilboð :D