Síða 1 af 1
Ónýtt skjákort?
Sent: Þri 19. Maí 2020 23:46
af ViktorS
Ég ætlaði að henda SSD disk í gamla borðtölvu sem var mikið rykuð að innan og hefði ekki komist í loftpressu fyrr en daginn eftir svo ég ákvað ég að ryksuga örlítið. Síðan tengi ég diskinn og kveiki á tölvunni og þá vill skjárinn allt í einu meina að hann sé ekki tengdur við neina tölvu (virkaði fyrir þessar aðgerðir).
Gæti verið að ég hafi einhvernvegin náð að skemma skjákortið með ryksugunni? Er búinn að prófa að tengja annan skjá, aftengja og tengja skjákortið aftur og aftengja SSD diskinn og samt vill enginn skjár þekkja tölvuna.
Re: Ónýtt skjákort?
Sent: Mið 20. Maí 2020 00:20
af Heidar222
Já, ryksugan getur hafa myndað stöðurafmagn sem hefur síðan farið í kortið. Það er ekki algilt en alls ekki út úr myndinni.
Re: Ónýtt skjákort?
Sent: Mið 20. Maí 2020 00:21
af Klemmi
Það eru því miður ágætis líkur... Það er hættulegt að ryksuga inn í tölvu, myndast auðveldlega stöðurafmagn sem getur skemmt tölvuíhluti
.
Re: Ónýtt skjákort?
Sent: Mið 20. Maí 2020 00:57
af einarhr
Ertu búin að fara yfir öll tengi? Það getur eitthvað af þeim hafa losnað þegar þú varst að hamast á ryksugunni. En já hún getur möguleg eyðilagt vélbúnað en það skaðar ekki að fara yfir allt
Re: Ónýtt skjákort?
Sent: Mið 20. Maí 2020 01:13
af ViktorS
einarhr skrifaði:Ertu búin að fara yfir öll tengi? Það getur eitthvað af þeim hafa losnað þegar þú varst að hamast á ryksugunni. En já hún getur möguleg eyðilagt vélbúnað en það skaðar ekki að fara yfir allt
Já ég fór yfir allar snúrur eftir minni bestu getu áðan þegar ég tók skjákortið úr og setti aftur í. Var samt ekki beint að hamast á ryksugunni, bara gera þetta bærilegra þar sem að þetta var vægast sagt ógeðslegt, þegar ég komst í loftpressuna áðan þá hvarf tölvan í reyk.
Er líklegt að aðrir hlutir hafi skemmst? Væri ekki bara sterkasti leikurinn að græja skjákort og vona það besta? Annars er þetta 10 ára gamalt og löngu tími á að uppfæra.
Re: Ónýtt skjákort?
Sent: Mið 20. Maí 2020 07:54
af Alfa
Er þetta vél með innbyggðu skjákorti líka? Ef svo er þá geturðu prufað að starta henni án skjákortsins til að útiloka annað, nú eða prufað annað skjákort.
Re: Ónýtt skjákort?
Sent: Þri 26. Maí 2020 20:10
af ViktorS
Jæja ég prófaði nýtt skjákort og ekkert gerðist. Prófaði að tengja skjáina við aðra tölvu og ekkert gerðist nema það birtist músarbendill á öðrum þeirra, annars allt svart.
Þannig ég hef greinilega náð að eyðileggja skjáina líka, er þá ekki frekar öruggt að allt sé bara komið í klessu? Ég eiginlega þori ekki að tengja annan skjá við ef að hann skyldi eyðileggjast líka.
Re: Ónýtt skjákort?
Sent: Þri 26. Maí 2020 20:18
af Klemmi
Það er reyndar mjög skrítið... Myndi kíkja með dótið á verkstæði, skoðunargjald er oft í kringum 3-4þús, færð þá að vita hvað er að....
Þykir ótrúlegt að skjáirnir hafi farið við þetta
Re: Ónýtt skjákort?
Sent: Þri 26. Maí 2020 21:14
af ViktorS
Klemmi skrifaði:Það er reyndar mjög skrítið... Myndi kíkja með dótið á verkstæði, skoðunargjald er oft í kringum 3-4þús, færð þá að vita hvað er að....
Þykir ótrúlegt að skjáirnir hafi farið við þetta
Já ég veit ekki hvað skal segja, held ég kíki með þetta á verkstæði við tækifæri.
Re: Ónýtt skjákort?
Sent: Þri 26. Maí 2020 21:50
af jonsig
Held að það sé lítil hjálp í að fara með þetta á heimilistölvu verkstæði. Ég veit ekki hvort það séu einhverjir alvöru rafeindavirkjar þarna úti sem eru að bixa við svona.
Re: Ónýtt skjákort?
Sent: Þri 26. Maí 2020 22:01
af nonesenze
ef þú treystir þér í það þá myndi ég taka aflgjafann úr og ath hvort þú finnir brunalykt, og taka bara laveg ALLT úr sambandi og aftengja og setja svo aftur saman og blása í öll tengi eða athuga skít eða ryk, svona áður en þú ferð að dæma eitthvað ónýtt eða fara með á verkstæði
Re: Ónýtt skjákort?
Sent: Þri 26. Maí 2020 22:12
af jonsig
Það er örugglega sniðugra að finna lausan enda á pcie eða laust 4 pinna AMP tengi og mæla hvort 12V- 5V séu ekki til staðar og setja á AC stillingu og sjá hvort riðstraumsgildið sé ekki pottþétt lægra en 10-20mV AC. Þyrfti helst að vera fjölsviðsmælir með true rms.
Re: Ónýtt skjákort?
Sent: Fim 28. Maí 2020 04:03
af ViktorS
Takk fyrir góð ráð!