Síða 1 af 1
Windows 10 update til vandræða
Sent: Mán 06. Apr 2020 20:54
af Dúlli
Góðan og blessaðan.
Var að lenda í því að windows kerfi ákvað að uppfæra sig og nún er allt í taskbarinu horfið. Sem sagt network, sound, örin með fullt af drasli.
Ef ég fer í stillingar er þetta allt haka sýnilegt

Búin að reyna ýmsar aðferðir á netinu en engin þeirra hefur komið þessu drasli aftur upp.
Re: Windows 10 update til vandræða
Sent: Mán 06. Apr 2020 20:58
af einarhr

- sss.jpg (18.51 KiB) Skoðað 2085 sinnum
Ertu ekki bara komin í Tablet Mode? Breytir því í hægra horninu.
Re: Windows 10 update til vandræða
Sent: Þri 07. Apr 2020 07:49
af netkaffi
Talandi um slíkt. Bluetooth hvarf úr tölvunni minni! Ég var að ýta á bluetooth boxið sem birtist í ofanverðri mynd ef þú ert með bluetooth, til að slökkva á því. Var búinn að nota það með ágætum við smartspeaker sama dag. Bara hvarf. Ef ég fer í bluetooth í settings þá stendur "bluetooth is turned off" allt grátt og get ekki ýtt á neitt. Með því steiktara sem ég hef lent í síðastliðna sólarhringa. Ég sem var svo ánægður með að vera nota þetta. Eitthvað bug. Ætla prófa Windows Reset til að sjá hvort það kippi þessu ekki í liðinn.
Gæti líka virkað fyrir þig Dúlli. Ef það var ekki bara að slökkva á Tablet Mode eins og einarhr sagði.
https://support.microsoft.com/en-us/hel ... ry-options
Re: Windows 10 update til vandræða
Sent: Þri 07. Apr 2020 08:19
af Dúlli
einarhr skrifaði:sss.jpgErtu ekki bara komin í Tablet Mode? Breytir því í hægra horninu.
Glæsilegt, þetta er dottið inn, hver elskar ekki windows updates
