Síða 1 af 5

Krónan í frjálsu falli...

Sent: Fim 12. Mar 2020 11:37
af GuðjónR
Ekki gott...

Re: Krónan í frjálsu falli...

Sent: Fim 12. Mar 2020 11:49
af Hnykill
Það eru þá bara innanlandviðskipti til að styrkja þetta aðeins. RTX 2080 TI kort á nær 200.000 kall á næstunni hjá mér. allt keypt heima. með ábyrgð. ;)

Eyði ekki krónu til erlendra fyrirtækja þótt það sé aðeins dýrara heima. Steam kannski.. ekki meira en það.

Re: Krónan í frjálsu falli...

Sent: Fim 12. Mar 2020 11:57
af GuðjónR
Hnykill skrifaði:Það eru þá bara innanlandviðskipti til að styrkja þetta aðeins. RTX 2080 TI kort á nær 200.000 kall á næstunni hjá mér. allt keypt heima. með ábyrgð. ;)

Eyði ekki krónu til erlendra fyrirtækja þótt það sé aðeins dýrara heima. Steam kannski.. ekki meira en það.
Þetta mun hafa keðjuverkandi áhrif og allt snarhækka innanlands. Flestar okkar vörur innfluttar.

Re: Krónan í frjálsu falli...

Sent: Fim 12. Mar 2020 12:18
af Hnykill
Common, guðjón. ætla ekki að kaupa skjákort af Ebay eða Amzon eða einhverju. ALLIR okkar tölvubúnaðir koma að utan. styrki allavega íslenskar tölvuverslanir hér heima með nokkrum auka þús köllum. fæ líka 2 ára ábyrgð og þarf ekki að fara langt ef eitthvað bilar. ekkert RMA shit fyrir mig takk og 2-3 mánaða bið eftir nýju korti ? ..nei það kostar að fá þessa hluti senda til Íslands. er alveg íslendingur í gegn.. það er svosem hægt að fá ódýrari hluti gegnum netið. en hvað verður þá um tölvuverslanir okkar íslendinga ? ekki eins og við höfum margar.. hvað.. 5-6 búðir sem allt fer í gegn. ég hef fengið bilaðan vélbúnað og tala bara venjulega íslensku við næsta mann í verslununni. ég segi þeim bara að það sem ég keypti sé bilað og virkar ekki. fæ nýjan búnað ef það fellur undir ábyrgð hjá þeim og þeir RMA sitt dót. vill frekar tala við íslenska tölvuverslun í 15 mín að útskýra hvað er bilað en að eyða 3 mánuðum í eitthvað erlent kísildal kjaftæði. annars skil ég vel þá sem panta að utan. pantaði kassa þaðan, var hætt að selja hann á Íslandi. svo bilar hann ekkert ;)

Þetta er misjafnt strákar þið vitið það vel. vélbúnað vill ég bara fá frá Íslandi uppá 2 ára ábyrgð og að tala íslensku, fyrir utan að afgreiðslan hjá þeim virkar hraðast fyrir mig. hvaða verslun þið kaupið frá er ykkar mál. bara.. ekki kaupa allt að utan svo tölvuverslanirnar hér á Íslandi leggist í eyði. þið vitið við búum á eyju lengst frá öðrum löndum. oft kosta tölvuhlutir hér aðeins meira en annarstaðar. bara.. ekki panta allt að utan til að spara 5 þús kall.

Re: Krónan í frjálsu falli...

Sent: Fim 12. Mar 2020 16:56
af GuðjónR
Og áfram fellur krónan, greinilegt að fjármagnseigendur studdir af ríkinu eru að taka stöðu gegn krónunni eins og í síðasta hruni.
4.35% lækkun gagnvart dollar í dag.
Hefði ekki getað losað mig við verðtryggða hryllingslánið á betri tíma.

Re: Krónan í frjálsu falli...

Sent: Fim 12. Mar 2020 17:30
af rapport
GuðjónR skrifaði:Og áfram fellur krónan, greinilegt að fjármagnseigendur studdir af ríkinu eru að taka stöðu gegn krónunni eins og í síðasta hruni.
4.35% lækkun gagnvart dollar í dag.
Hefði ekki getað losað mig við verðtryggða hryllingslánið á betri tíma.
Lánin munu hugsanlega ekki hækka mikið en fasteignaverð mun lækka þegar allar þessar Airbnb íbúðir fara í sölu.

Re: Krónan í frjálsu falli...

Sent: Fim 12. Mar 2020 18:11
af GullMoli
rapport skrifaði:
GuðjónR skrifaði:Og áfram fellur krónan, greinilegt að fjármagnseigendur studdir af ríkinu eru að taka stöðu gegn krónunni eins og í síðasta hruni.
4.35% lækkun gagnvart dollar í dag.
Hefði ekki getað losað mig við verðtryggða hryllingslánið á betri tíma.
Lánin munu hugsanlega ekki hækka mikið en fasteignaverð mun lækka þegar allar þessar Airbnb íbúðir fara í sölu.
Hvað meinarðu? Það fer að verða gífurlega hagstætt fyrir útlendinga að koma hingað :D

Annars fer þessi noja að verða rosalega þreytt, Guðjón þú lætur eins og heimurinn sé að farast og ert að reyna að espa aðra í kringum þig upp. Eitthvað segir mér að þú sért með heila geymslu yfirfulla af klósettpappír #-o

Re: Krónan í frjálsu falli...

Sent: Fim 12. Mar 2020 19:20
af worghal
mér líður nokkuð vel með þessa dollara sem ég á :D

Re: Krónan í frjálsu falli...

Sent: Fim 12. Mar 2020 20:42
af Klemmi
rapport skrifaði:Lánin munu hugsanlega ekki hækka mikið en fasteignaverð mun lækka þegar allar þessar Airbnb íbúðir fara í sölu.
Tjah, ég sé ekki af hverju verðbólgan ætti ekki að fara af stað...

Útflutningstekjur okkar munu lækka umtalsvert bæði vegna nær stöðvunar ferðamannaiðnarins í einhverja mánuði útaf COVID, sem og á öðrum mörkuðum sem lokast útaf öllu havaríinu í kringum þetta.

IcelandAir held ég að séu í mjög slæmum málum, megnið af þeirra flugmiðum er fólk sem millilendir hér á Íslandi, við erum stoppistöð milli USA og Evrópu. Með þessu minnkar ekki einungis farþegaflutningur, heldur alls kyns útflutningur, s.s. á ferskum fiski og fleiru.

Ofan á þetta, þá bætist auðvitað við að atvinnuleysi snarhækkar, þar sem það eru ófá störfin sem hverfa. Hversu margir í skemmtana- og veitingaiðnaði standa þetta af sér? Held það séu margir sem hafi spennt bogann ansi vel í því góðæri sem hefur ríkt, með tilheyrandi skuldsetningu og ábyrgðum gagnvart starfsfólki.

Kannski er ég óþarflega svartsýnn, en ég held í sannleika satt að við séum í byrjun umtalsverðrar efnahagslegrar lægðar, með tilheyrandi verðbólgu, og þar með hækkun lána vegna verðtryggingar.
Ég ráðlegg þeim sem hafa tök á því að íhuga alvarlega að drífa í að skipta yfir í óverðtryggð lán.

Ef það reynist rangt hjá mér, þá fagna ég því innilega, en ef ég hef rétt fyrir mér, þá getur það munað milljónum fyrir marga að hafa tryggt sig með óverðtryggðu láni.

*** Bætt við eftir ábendingu frá rapport ***
Hér er ég að tala um óverðtryggð lán með föstum vöxtum.

Re: Krónan í frjálsu falli...

Sent: Fim 12. Mar 2020 21:02
af rapport
Klemmi skrifaði:
Ég ráðlegg þeim sem hafa tök á því að íhuga alvarlega að drífa í að skipta yfir í óverðtryggð lán.

Ef það reynist rangt hjá mér, þá fagna ég því innilega, en ef ég hef rétt fyrir mér, þá getur það munað milljónum fyrir marga að hafa tryggt sig með óverðtryggðu láni.
Óverðtryggðu lánin eru "jafnar afborganir" og með breytilegum vöxtum = miklu þyngri vaxtagreiðslur starx í upphafi = ef vextir hækka þá á fólkeftir að finna mikið fyrir því, 1% breyting á vöxtum getur hækkað afborganir um 10-15% á nýlegu láni.

Verðtryggt jafngreiðslulán mundi jafna svona sveiflu miklu betur.

Þetta ráð gæti því sett fólk á hausinn ef það ræður ekki við að greiðslur hækki um 10-20% ef vaxtastig breytist hratt og mikið.

Re: Krónan í frjálsu falli...

Sent: Fim 12. Mar 2020 21:05
af Klemmi
Afsakaðu að ég tók það ekki fram, en ég er að tala um með föstum vöxtum. Þar veistu nákvæmlega hvað þú borgar næstu 2-5 árin, og endurskoðar málið að þeim tíma loknum :)

Re: Krónan í frjálsu falli...

Sent: Fim 12. Mar 2020 22:00
af GuðjónR
GullMoli skrifaði:
rapport skrifaði:
GuðjónR skrifaði:Og áfram fellur krónan, greinilegt að fjármagnseigendur studdir af ríkinu eru að taka stöðu gegn krónunni eins og í síðasta hruni.
4.35% lækkun gagnvart dollar í dag.
Hefði ekki getað losað mig við verðtryggða hryllingslánið á betri tíma.
Lánin munu hugsanlega ekki hækka mikið en fasteignaverð mun lækka þegar allar þessar Airbnb íbúðir fara í sölu.
Hvað meinarðu? Það fer að verða gífurlega hagstætt fyrir útlendinga að koma hingað :D

Annars fer þessi noja að verða rosalega þreytt, Guðjón þú lætur eins og heimurinn sé að farast og ert að reyna að espa aðra í kringum þig upp. Eitthvað segir mér að þú sért með heila geymslu yfirfulla af klósettpappír #-o
Hvaða vitleysa, engin noja að krónan sé í frjálsu falli hún er það.
Varðandi klósettpappírinn þá á ég eitthvað smotterí af honum og hreinlætisvörum.

Re: Krónan í frjálsu falli...

Sent: Fim 12. Mar 2020 22:11
af Semboy
:'( var að kaupa tvó bíla og annar þeirra er bímmi

Re: Krónan í frjálsu falli...

Sent: Fim 12. Mar 2020 22:18
af GuðjónR
Semboy skrifaði::'( var að kaupa tvó bíla og annar þeirra er bímmi
Gott hjá þér, þeir eiga bara eftir að hækka í verði ;)

Re: Krónan í frjálsu falli...

Sent: Fim 12. Mar 2020 22:56
af rapport
89784116_3517060588309237_6297835787371151360_n.png
89784116_3517060588309237_6297835787371151360_n.png (443.09 KiB) Skoðað 5413 sinnum

Re: Krónan í frjálsu falli...

Sent: Fim 12. Mar 2020 23:00
af GuðjónR
.

Re: Krónan í frjálsu falli...

Sent: Fös 13. Mar 2020 09:43
af Hjaltiatla
Nú spyr ég eins og bjáni, af hverju ætti krónan að hrinja vs aðrir gjaldmiðlar ef þettt er heimsfaraldur sem er að ganga yfir heimsbyggðina?

Re: Krónan í frjálsu falli...

Sent: Fös 13. Mar 2020 09:54
af Hizzman
Hjaltiatla skrifaði:Nú spyr ég eins og bjáni, af hverju ætti krónan að hrinja vs aðrir gjaldmiðlar ef þettt er heimsfaraldur sem er að ganga yfir heimsbyggðina?
Erlendar ferðaskrifstofur sem hafa verið að kaupa íslenskar krónur til að greiða íslenskum aðilum fyrir þjónustu, gera það ekki lengur.

Re: Krónan í frjálsu falli...

Sent: Fös 13. Mar 2020 10:19
af Stuffz

Re: Krónan í frjálsu falli...

Sent: Fös 13. Mar 2020 11:34
af Klemmi
Hjaltiatla skrifaði:Nú spyr ég eins og bjáni, af hverju ætti krónan að hrinja vs aðrir gjaldmiðlar ef þettt er heimsfaraldur sem er að ganga yfir heimsbyggðina?
Án þess að vera með staðreyndirnar á hreinu, þá held ég að við séum með of mörg egg í sömu ferðamannaiðnaðarkörfunni, samanborið við önnur lönd.

Með okkar litlu krónu, þá er hún mikið viðkvæmari fyrir svona breytingum heldur en í stærri gjaldmiðlum með meira á bakvið sig.

Re: Krónan í frjálsu falli...

Sent: Fös 13. Mar 2020 12:03
af urban
Hizzman skrifaði:
Hjaltiatla skrifaði:Nú spyr ég eins og bjáni, af hverju ætti krónan að hrinja vs aðrir gjaldmiðlar ef þettt er heimsfaraldur sem er að ganga yfir heimsbyggðina?
Erlendar ferðaskrifstofur sem hafa verið að kaupa íslenskar krónur til að greiða íslenskum aðilum fyrir þjónustu, gera það ekki lengur.
Jább, þetta er í raun bara útaf því að eftirspurn eftir kónu snarminnkar.

Re: Krónan í frjálsu falli...

Sent: Fös 13. Mar 2020 12:16
af Hjaltiatla
Þá veit maður meira.
Las ágætis grein SA um þeirra sýn á landslaginu eins og staðan er í dag. Spurning hvort þetta ástand skili sér í hækkun á lánum fljótlega ef við eigum þennan 900 milljarða króna gjaldeyrisforða. Eitt er víst að þetta högg lendir fyrst á atvinnulífinu en spurning um framhaldið því þetta er tímabundið ástand.
Maður vonar auðvitað það besta.

https://www.sa.is/frettatengt/frettir/fyrsta-bylgjan

Re: Krónan í frjálsu falli...

Sent: Fös 13. Mar 2020 21:54
af GuðjónR
True...

Re: Krónan í frjálsu falli...

Sent: Fös 13. Mar 2020 22:30
af Hjaltiatla
GuðjónR skrifaði:True...
Mynd
1% þjóðarinnar með 99% af klósettpappírnum :guy

Re: Krónan í frjálsu falli...

Sent: Lau 14. Mar 2020 11:09
af vesley
GuðjónR skrifaði: Hvaða vitleysa, engin noja að krónan sé í frjálsu falli hún er það.
Varðandi klósettpappírinn þá á ég eitthvað smotterí af honum og hreinlætisvörum.
Geturu sagt mér af hverju þú hélst að þú þyrftir 2 ára byrgðir af skeinipappír?
Er að reyna að fatta hvað það er sem fékk fólk til að birgja sig upp af fáránlegum hlutum.
Það er alveg garanterað að það mun ekki koma vöruskortur. Vöruflutningar til landsins eru enn í fullu fjöri.