Síða 1 af 1

10 milljarðar á ári ?

Sent: Mið 04. Mar 2020 09:44
af rapport
https://www.visir.is/g/2020200309792/st ... arda-a-ari


Þetta er virkilega göfugt markmið og ég er ekki í nokkrum vafa um að upphæðirnar séu a.m.k. 10 milljarðar.

Það væri hægt að sleppa haug af útprentunum, haug að starfsfólki og fermetrum í afgreiðslur og úrvinnsla allra gagna væri miklu einfaldari og réttari.

En er þetta ekki bara X-road?
Capture.JPG
Capture.JPG (104.21 KiB) Skoðað 1917 sinnum

Re: 10 milljarðar á ári ?

Sent: Mið 04. Mar 2020 10:06
af Hjaltiatla
Veit ekki 100% um hvað þetta X-Road verkefni snýst fyrir utan það sem ég hef lesið inná:https://stafraent.island.is/verkefni/straumurinn/

En að reyna að gera þjónustu miðlæga og einfaldari eins og þegar maður skráir sig inná mitt svæði island.is og getur tengt sig inná mismunandi kerfi er mjög jákvæð þróun. Að þurfa ekki að eiga í endalausum samskiptum við stofnanir ef maður getur bjargað sér sjálfur t.d með að fletta upplýsingum í kerfum og sínum réttindum er skref í rétta átt.

Re: 10 milljarðar á ári ?

Sent: Mið 04. Mar 2020 11:52
af vesley
Það mun mikið sparast þegar opinberar stofnanir einfalda sitt kerfi þegar kemur að umsóknum. Væri örugglega hægt að minnka flækjustig RSK og sýslumanns umtalsvert ef fólk þarf ekki að vera endalaust að skila inn pappírum og bíða í 7-10 virka daga eftir að það sé handvirkt skannað inn.
Tek mikið eftir þessu í fyrirtækjarekstri hvað kerfið er óþarflega flókið og heyri ég það reglulega frá þeim sem starfa við að sinna svona fyrir fyrirtæki. (lögfræðingar/bókarar/endurskoðendur)

Re: 10 milljarðar á ári ?

Sent: Fös 11. Jún 2021 15:16
af rapport

Re: 10 milljarðar á ári ?

Sent: Fös 11. Jún 2021 18:37
af jonsig
Þetta er frábær þróun ef erlend hugbúnaðarfyrirtæki fá að taka þátt líka, þetta getur líka verið gríðarleg fjárútlát fyrir ríkið ef t.d. hugbúnaðarfyrirtækið fer á viðhaldssamning áður en upprunalega verkið var klárað, eins og sumir hér þekkja til þó ég nefni engin nöfn.

Re: 10 milljarðar á ári ?

Sent: Lau 12. Jún 2021 14:06
af rapport
jonsig skrifaði:Þetta er frábær þróun ef erlend hugbúnaðarfyrirtæki fá að taka þátt líka, þetta getur líka verið gríðarleg fjárútlát fyrir ríkið ef t.d. hugbúnaðarfyrirtækið fer á viðhaldssamning áður en upprunalega verkið var klárað, eins og sumir hér þekkja til þó ég nefni engin nöfn.
Öll innkaup yfir 50 milljónum þarf að bjóða út á EU, "teddanum" eða "tenders europe daily".

Íslensk fyrirtæki mættu vera duglegri í útrás og koma sér í sambönd erlendis.

En þetta sem þú lýsir er léleg verkefnastjórnun, að hleypa ókláruðu kerfi í gegnum verklokaúttekt og í rekstur.